Kópavogur - 24.05.2013, Síða 6
6 24. maí 2013
Menntaskólinn í Kópavogi:
308 útskriftarnemar útskrifaðir
Þann 17. maí var brautskráning frá Menntaskólanum í Kópa-vogi, við hátíðlega athöfn í
Digraneskirkju. Alls 83 stúdentar og
35 iðnnemar. Þá brautskráðust 16.
maí, 24 ferðafræðinemar, 48 leiðsögu-
menn, 37 nemar af skrifstofubraut, 16
matsveinar, 38 nemar úr meistaraskóla
matvælagreina, 9 nemar úr hótel-
stjórnunarnámi César Ritz og 5 nemar
af starfsbraut. Einnig útskrifuðust 23.
maí 13 nemar af framhaldsskólabraut.
Þannig að alls voru brautskráðir 308
nemar frá Menntaskólanum í Kópa-
vogi á þessu vori.
Ný skólanámskrá
og tilraunakennsla
Í máli Margrétar Friðriksdóttur,
skólameistara, kom fram að áfram var
unnið að nýrri skólanámskrá. Skólinn
hefur nú meira frelsi í mótun náms-
brauta jafnt í bóknámi sem verknámi
og námstíminn er breytilegur. Fjögur
þróunarverkefni eru nú í gangi sem
tengjast innleiðingu á nýrri skóla-
námskrá.
Tilraunakennsla var í vetur í
þverfaglegum áföngum á bóknáms-
brautum fyrir alla nýnema. Lögð
var áhersla á að gera nema virkari í
náminu, þjálfa sjálfstæð vinnubrögð,
frumleika og víðsýni. Áfanginn byggir
á grunnþáttum menntunar skv. nýrri
aðalnámskrá sem eru læsi, gagnrýnin
hugsun, sköpun, heilbrigði og velferð,
jafnrétti, lýðræði og mannréttindi.
Jafnréttisverðlaun
Kópavogsbæjar árið 2012
Í framhaldi af jafnréttisviðurkenningu
Jafnréttisráðs 2007 hefur skólinn staðið
fyrir árlegri jafnréttisviku sem að þessu
sinni var í marsmánuði undir yfirskrift-
inni „Staðalímyndir kynjanna og klám.
“ Boðið var upp á fjölda fyrirlestra og
kvikmyndasýningar sem tengdust efni
vikunnar og vöktu miklar vinsældir.
Skólinn hlaut jafnréttisverðlaun Kópa-
vogsbæjar á árinu 2012 fyrir markvisst
starf að jafnréttismálum.
Á skólaárinu var unnið að mörgum
nýjum verkefnum. Skólinn var þátt-
takandi í verkefninu „Heilsueflandi
framhaldsskóli“ en því er stýrt af
Lýðheilsustöð. Þá tekur skólinn þátt í
verkefninu „Nám er vinnandi vegur“
en 67 nemendur innrituðust í MK í
haust vegna þessa verkefnis. Unnið
var með nýtt umsjónarkerfi sem felur
í sér aukna umsjón og stoðþjónustu
við nemendur upp að 18 ára aldri og
aukið upplýsingastreymi til foreldra.
Þá tekur skólinn þátt í raunfærnimati í
matvælagreinum og skrifstofugreinum
fyrir fullorðið fólk sem vill hefja aftur
nám, svo nokkuð sé nefnt.
Viðurkenningar
fyrir námsárgangur
Forseti bæjarstjórnar, Margrét Björns-
dóttir, afhenti útskriftarnemum viður-
kenningar úr Viðurkenningarsjóði
MK sem stofnaður var af bæjarstjórn
Kópavogs árið 1993. Þrír nemar hlutu
viðurkenningu að þessu sinni: Nýstúd-
entar Lena Katarína Lobers og Hall-
mann Óskar Gestsson og Steinunn Lilja
Heiðarsdóttir nýsveinn í matreiðslu.
Rótarýklúbbur Kópavogs veitti ný-
stúdent Hallmanni Óskari Gestssyni
verðlaun fyrir góðan árangur í raun-
greinum og Rótarýklúbburinn Borgir
í Kópavogi veitti nýsveini í matreiðslu,
Steinunni Lilju Heiðarsdóttur, verðlaun
fyrir góðan námsárangur í iðnnámi.
Við sérhæfum okkur í
vatnskössum og bensíntönkum.
Gerum við og eigum nýja til á lager.
Skólameistari MK, Margrét Friðriksdóttir, í hópi verðlaunahafa.
Ræðu nýstúdents flutti Sandra Björg
Strange
Ræðu nýsveins flutti Tryggvi Þór
Traustason
Forseti Bæjarstjórnar Kópavogs Margrét Björnsdóttir veitti viðurkenningu
úr Viðurkenningarsjóði MK þeim Lenu Katarínu Lobers, Hallmanni Óskari
Gestssyni og Steinunni Lilju Heiðarsdóttur.
Hallmann Óskar Gestsson nýstúdent
með forseta Rótarýklúbbs Kópavogs
Eiríki Líndal Fríður hópur útskriftarnema.
auglýsingasíminn er
578 1190
netfang:
auglysingar@fotspor.is
bæjarblaðið KÓPavoguR
kemur út annan
hvern föstudag
fotspor.is