Kópavogur - 24.05.2013, Page 10
10 24. maí 2013
Kópavogsþríþrautin heppnaðist vel
-íþróttin nýtur vaxandi vinsælda
Kópavogsþríþrautin fór fram í Kópavogi sunnudaginn 12. maí síðastliðinn. Þetta var
fyrsta þríþrautarmót ársins og heppn-
aðist það vel. Fjöldi skráðra keppenda
var 108 og þar af skiluðu 95 þeirra sér
í mark. Flestir af bestu þríþrautar-
mönnum landsins voru skráðir til leiks
og var mikið fjör þegar skipt var á milli
þrauta. Hákon Hrafn Sigurðsson var
fyrstur í mark í karlaflokki á tímanum
36:48 og Birna Björnsdóttir var fyrst
kvenna á tímanum 40:05. Í þríþraut
er keppt í 400 m sundi, 10,4 km hjól-
reiðum og 3,6 km hlaupi.
Fjölskyldur fengu
að spreyta sig
Á eftir aðalþrautinni var boðið upp á
fjölskyldu- og barnaþraut. Þar tóku
fjölskyldur sig saman og kláruðu þraut-
ina í sameiningu í helmingi styttri
vegalengdum, 200 m sundi, 3,6 km
hjólreiðum og 1,4 km hlaupi. Fjöl-
skyldumeðlimir gátu skipt þrautunum
á milli sín og dæmi eru um að þrír ætt-
liðir hafi tekið sig saman í þrautinni.
Engin aldurstakmörk voru í þessari
keppni og var ungmennum á aldrinum
12 - 16 ára boðið að klára alla þrautina
ein og óstudd.
Kópavogsþríþrautin hefur síðustu ár
verið vinsælasta þríþrautin sem haldin
er. Hún var fyrst haldin árið 1996 og
svo óslitið frá árinu 2006. Íþróttin
nýtur vaxandi vinsælda og fjöldi þátt-
takenda hefur aukist mikið á milli
ára. Mótið telur til stiga í stigakeppni
Íslands í þríþraut. Það var Þríþrautafé-
lag Kópavogs, Þríkó sem stóð að þessu
móti.
LHÞ
ævintýRi HúSmÓðuRinnaR
Júróvisjónpartýið mikla
Það hefur líklega ekki farið fram hjá mörgum að Júróvisjón var allsráðandi í síðustu viku.
Undankeppni var haldin þar sem
Ísland tryggði sér sæti í úrstlitunum
við gífurlegan fögnuð. Eins og öðrum
sönnum Íslendingum sæmir fannst
húsmóðurinni tilvalið að halda júró-
visjónpartý að þessu tilefni.
Grillið notað
eftir vetrarhvíld
Ekkert er betra en að taka fram grillið
eftir langa vetrarhvíld og því voru
lambalundir í maríneringu ásamt
bökunarkartöflum fyrir valinu á
matseðli kvöldsins. Þar sem húsmóð-
irin er einstaklega fyrirhyggjusöm
tók hún fram grillið tímanlega þetta
laugardagssíðdegi og hreinsaði það
vel. Salatið var útbúið og köld sósa
búin til úr sýrðum rjóma og krydd-
jurtum. Húsmóðirin bar bakkann
með kjötinu að grillinu og kveikti
undir því. Eða þar að segja, hún ætl-
aði að kveikja á því. Sér til mikillar
mæðu uppgötvaði húsmóðirin að
gaskúturinn var galtómur.
Þá var bara eitt í stöðunni, rjúka á
næstu bensínstöð og skipta um kút.
Hún tók krakkaskarann með sér sem
ófær var að mestu um að bíða heima
á meðan.
Glerbakki í öreindum
Rúmum hálftíma síðar kom húsmóð-
irin heim á ný með fullan kút af gasi.
Grilllyktin steig fljótt upp og óðum
styttist í að söngvakeppnin myndi
hefjast. Kartöflurnar voru orðnar
meyrar og rauðvínið komið í glas. Í
tilefni dagsins ákvað húsmóðirin að
nota fallega glerbakkann sem tengda-
foreldrarnir gáfu henni í afmælisgjöf
undir grillkjötið. Kjötinu raðaði
hún listilega á bakkann og gekk með
hann að borðinu. Húsmóðirin komst
heldur fljótt að því að glerbakkinn
fallegi var ekki sérlega vel hitaþol-
inn. Því stuttu áður en lambalund-
irnar náðu að borðinu, splundraðist
glerbakkinn í öreindir og kjötið datt
í gólfið og var nú þakið glerflísum í
bland við maríneringuna.
Nú voru góð ráð dýr. Kjötið gjör-
samlega ónýtt og snemmbúnu frétt-
irnar að klárast sem þýddi bara að
óðum styttist í keppnina. Liggjandi
á fjórum fótum hreinsaði húsmóð-
irin upp gleragnir með annarri hendi
og hringdi á pizzustað í nágrenninu
með hinni. Júróvisjónstefið gall við
og þeystist stórfjölskyldan að sjón-
varpsskjánum svöng og spennt í senn.
Bökunarkartöflunum voru gerð góð
skil með köldu sósunni meðan fyrstu
lög keppninnar ómuðu. Að sjálfsögðu
hafði húsmóðirin fjárfest í nokkrum
snakkpokum eins og góðri húsmóður
sæmir á þessu kvöldi og eftir kartöflu-
átið komu kartöfluflögurnar sér vel.
Færni í skyndihjálp
Flatbökusendillinn birtist í gættinni
á tólfta lagi og hrifsuðu afkvæmin
kassana af honum. Svo svöng voru
blessuð börnin að þau tróðu hverri
sneiðinni af fætur annarri upp í sig.
Næst yngsta barnið hafði fylgst vel
með eldri systkinunum hvernig hægt
væri að troða sem mestu upp í sig
í einu án þess að tyggja. Því miður
hafði þetta afkvæmi ekki þjálfað þessa
færni sína mikið og því stóð nánast
heil sneið í koki barnsins. Húsmóð-
irin er fjölhæf og kann að sjálfsögðu
skyndihjálp. Heimlich-aðferðin hent-
aði því sérlega vel og með nokkrum
kippum flaug flatbökusneiðin úr hálsi
barnins og beint á rauðvínsglasið hálf-
fulla.
Glasið hélst sem betur fer heilt,
enda komið nóg af glerbrotum þetta
kvöldið en rauðleiti vökvinn seytlaði
frá borðinu og niður á gólf. Fleiri
tuskur voru teknar fram og með
skjótum hætti varð stofan hrein og fín
á ný. Magarnir voru vel mettir þegar
íslenska lagið ómaði loks stuttu síðar
í takt við hrotur húsmóðurinnar sem
lá steinsofandi í sófanum eftir þetta
eftirminnilega og skemmtilega partý.
Húsmóðirin deilir ævintýrum
hversdagsins með lesendum blaðsins
Meðfylgjandi myndir tók Örn Sigurðsson á mótinu.