Selfoss - 24.04.2013, Síða 4
4 24. apríl 2013
Af hverju XS?
Loforð sem hægt er að standa við
Í grundvallaratriðum snúast þessar kosningar um það hvort fylgja eigi jafnaðarstefnu Samfylkingar-
innar og byggja upp velferðarkerfið
eða ekki og hvort við viljum ábyrg
ríkisfjármál eða óraunhæf loforð.
Samfylkingin tók við stjórnartau-
munum þegar Ísland var á barmi
gjaldþrots, rúið trausti, halli ríkis-
sjóðs var stórkostlegur og fall krón-
unnar og verðbólgan höfðu brennt
upp eignir. Við náðum saman fjár-
lagagatinu á aðeins 4 árum sem er
afrek. Um leið og við stöðvuðum
skuldasöfnun ríkissjóðs forgangsröð-
uðum við í þágu velferðar og þeirra
sem minna hafa handa á milli.
Nú þegar við jafnaðarmenn höf-
um tekið til eftir aðra er mikilvægt
að við fáum stuðning til að byggja
upp á nýju kjörtímabili. Samfylk-
ingin er ábyrg og henni má treysta
til að skapa öruggt og gott samfélag.
Staðreyndin er sú að:
• Atvinnuleysi hefur minnkað
um helming frá 2009. Þúsundir
ungra atvinnuleitenda hafa fengið
skólavist í gegnum átakið Nám er
vinnandi vegur.
• Tækniþróunarsjóður var stórefld-
ur til að skapa ný störf og einnig
framkvæmdasjóður ferðaþjón-
ustunnar.
• Rammalöggjöf um ívilnanir til
nýfjarfestinga og endurgreiðsla
rannsókna- og þróunarkostnaðar
til fyrirtækja hefur komið mörgum
fyrirtækjum til góða.
Við ætlum að:
• Lækka tryggingagjaldið og fjölga
störfum.
• Koma á nýjum fjárfestingalána-
sjóði fyrir lítil og meðalstór fyrir-
tæki.
• Tryggja sjávarbyggðum hlutdeild
í veiðileyfagjaldinu.
• Setja tækni- og verkmenntun í
forgang í skólakerfinu.
• Ljúka jafnlaunaátaki hjá hinu op-
inbera.
Staðreyndin er sú að:
• 60% þjóðarinnar borgar hlut-
fallslega minni skatta eða jafn
mikla skatta og fyrir hrun. Þeir
sem betur standa greiða meira til
samfélagsins. Persónuafsláttur hef-
ur hækkað um 45% frá 2007 og er
verðtryggður frá ársbyrjun 2012.
• Barnabætur hafa hækkað um 30%
og stuðningur við barnafjölskyld-
ur verður alls 11 milljarðar króna
á árinu 2013.
• Samfylkingin hefur ráðist í
byggingu 12 hjúkrunarheimila
fyrir aldraða um land allt.
• Endurreisn fæðingarorlofssjóðs er
hafin og Barnasáttmáli Sameinuðu
þjóðanna lögfestur.
• Jafnrétti kynjanna hefur hvergi
mælst meira en á Íslandi undan-
farin 4 ár.
Við ætlum að:
• Láta börnin njóta forgangs. Gera
gjaldfrjálsar tannlækningar barna
að 18 ára aldri að veruleika, efla
starfssemi Barnahús og forvarnir
gegn ofbeldi.
• Koma á einu húsnæðiskerfi fyrir
alla, fjölga námsmannaíbúðum og
efla leigumarkað.
• Staðfesta nýjar, einfaldari og betri
almannatryggingar og bæta rétt
lífeyrisþega.
• Treysta grunnþjónustu heilbrigð-
iskerfisins.
Staðreyndin er sú að:
• Hrun gjaldmiðilsins árið 2008
setti fjárhag heimilanna í uppnám.
Skuldir hafa verið niðurfærðar um
300 miljarða króna á kjörtímabil-
inu. 12 þúsund heimili hafa notið
góðs af lækkun skulda. Þær eru nú
í sömu stöðu og árið 2006.
• Rúmlega 100 miljarðar króna hafa
runnið til fjölskyldna í gegnum
barna- og vaxtabætur.
• Húsleigubætur hafa hækkað og
dregið hefur úr tekjuskerðingu
þeirra.
• Sérstakar vaxtabætur eru komnar
á fyrir íbúðaeigendur með lánsveð.
Við ætlum að:
• Koma á Nýjum húsnæðisbótum
fyrir alla. Þeir sem leigja fá jafn
góðan stuðning og þeir sem kaupa.
• Koma 2000 nýjum leiguíbúðum á
markað í samstarfi við sveitarfélög
og búseturéttarfélög.
• Sjá til þess að bankar fjármagni
sanngjarna lækkun skulda þeirra
sem keyptu á versta tíma fyrir
hrun.
• Ljúka afnámi stimpilgjalda og
leggja af uppgreiðslugjöldin.
• Koma á stöðugleika og losa heim-
ili og fyrirtæki undan bólum og
verðbólguskotum. Það bætir kjörin
mest.
Jöfnuður og réttlæti er grunn-
tónninn í stefnu Samfylkingarinn-
ar. Sundrung og margir smáflokkar
munu veita sérhagsmunaöflunum
undirtökin eftir kosningar.
Aðeins samstaða skilar okkur ár-
angri.
Veljum öruggt og gott samfélag -
kjósum Samfylkinguna!
Oddný G. Harðardóttir,
1. sæti Samfylkingarinnar
í Suðurkjördæmi
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466,
netfang: amundi@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut
54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri:
Þorlákur Helgi Helgason, netfang: torlakur@fotspor.is Myndir: ÞHH og ýmsir aðrir.
Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 9.500 eintök. dreifing: Íslandspóstur
Fríblaðinu er dreiFt í 9.500 eintökum á öll heimili á suðurlandi.
SELFOSS
8. TBL. 2. ÁRGANGUR 2013
Selfoss inn á hvert heimili!
Oddný G. Harðardóttir.
Þeir sem betur standa
greiða meira til samfélags-
ins. Persónuafsláttur hefur
hækkað um 45% frá 2007
og er verðtryggður frá árs-
byrjun 2012.
Barnabætur hafa hækkað
um 30% og stuðningur við
barnafjölskyldur verður
alls 11 milljarðar króna á
árinu 2013.
Vildi kenna Reykvíkingum
heræfingar og vopnaburð
Vestmannaeyingar minnast þess að 160 ár eru liðin frá því að kafteinn Andr-
eas Kohl var settur sýslumaður
yfir Eyjum. Af því tilefni verður
herkvaðning á Skansinum á sum-
ardaginn fyrsta og hátíðarhöld í
Safnahúsinu.
Andreas August von Kohl hét
hann fullu nafni og var sýslumaður
1853-1860. Kapteinn Kohl varð
snemma dáður og þótti embætt-
isfærsla hans einkennast af stjórn-
semi og afskiptasemi en líka hafi
honum farist verk sín ,,eptir annari
góðsemi“.
Kohl lét það verða eitt sitt fyrsta
verk að koma á reglulegum heræf-
ingum og vopnaburði í Vestmanna-
eyjum. Blaðið Þjóðólfur (1856-57)
greinir frá því og bréfi frá Capitain
von Kohl. Bréfið fjalli eingöngu
um að Kohl votti „í nafni sjálfs sín
og allra eyjabúa ráðherrastjórninni
og stiptamtmanni vorum, greifa
Trampe, þakkir fyrir það, hve ljúf-
lega og rækilega ...“ stutt hafi verið
við því fyririrtæki og lagt til 30 bys-
sur með lagvopni („bajonet“) fram
af hverri. Og von sé í öðrum 30
samkynja skotvopnum að sumri.
Kohl sýslumaður kenndi mönn-
um vopnaburð og segir hann að
það sé ,,þessari óþreytandi alúð
að þakka, að allir hinir efnilegri
ýngri menn á eyjunum bjóði sig
ljúflega fram sjálfir til vopnaburð-
ar ...“ Alls séu 80 menn æfðir og
þeim skipt í 4 minni flokka með
flokksforingja yfir hverjum. Séu
ungur mennirnir svo vel æfðir „að
hver sem er úr hópnum væri tekinn
og sendur til Danmerkur, mundi
verða þar fullgildur hermaður og
órækur ...“ Þá segir í bréfi Kohls að
Eyjamenn bjóðist til að ljá Reyk-
víkingum einn flokksforingjann
til að kenna kaupstaðarbúum hér
heræfingar og vopnaburð.
Á heimasíðu Sagnheima,
byggðasafns Vestmannaeyja, segir
um atburði sumardaginn fyrsta:
Dagskráin byrjar á Skansinum
kl. 14 en Kohl bjó einmitt í Land-
lyst. Endurvakinn verður vísir að
herfylkingu Vestmannaeyja. All-
nokkrir hafa nú þegar skráð sig í
hersveitina en betur má ef duga
skal! Áhugasamir þátttakendur í
herfylkingunni eru beðnir um að
hafa samband við safnvörð í síma
698 2412. Algjört skilyrði fyr-
ir þátttöku er að menn séu edrú
þennan dag í anda Kohls! Frá
Skansinum verði haldið undir takt-
föstum bumbuslætti upp í Safna-
hús þar sem dagskrá hefst kl. 14:45.
Karl Gauti sýslumaður mun fjalla
um forvera sinn og verk hans í þágu
Eyjamanna og Óskar Guðmunds-
son sagnfræðingur mun koma
með nýja sýn á söguna en hann
telur líkur á að hann sé afkomandi
Kohls. Að lokinni dagskrá verður
lagður blómsveigur á gröf Kohls í
virðingar- og þakklætisskyni.
ÞHH
Mynd af vefnum heimaslod.is
Sveitarfélagið Árborg styrkir Ungmennafélag Selfoss um 25,1 milljón
krónur. í upphæðinni felst launa- og rekstrarkostnaður við Selfossvöll á
árinu 2013. Ungmennafélagið tekur að sér rekstur Selfossvalla. Gengið var
frá samningnum á aðalfundi Ungmennafélagsins sl. fimmtudag. Myndin
er frá undirritun.
Hann vakir yfir allskonar stjórnsemi og reglusemi
— Vér höfum áður getið um hinn
slaka skort í Vestmanneyjum;
þángaðkom í f. mán., jagt austan
af Austfjörðiim, og vann sýslumað-
urinn,
„Kapitain” herra Kohl hana óðar
til að sigla til Eyrarbakka og sækja
þángað korn, 25 tunnur, til að létta
af hinni bráðustu nauðsyn Eyja-
skeggja; er oss skrifnð, „að honum
hafi farizt þetta eptir annari góð-
semi hans, stjórnscnii og afskipta-
semi þar á Eyjunum”; hann vakir
yfir allskonar stjórnsemi og reglu-
senii, og hvetur Eyjabúa til ýmsra
þarfra samtaka; t. d. að leggja vagn-
vcgi yfir þvera heimaeyjuna;
(Úr Þjóðólfi 22.-23.tölublaði 26.5. 1855)
Vetur kveður og sumri heilsað
Sumardagurinn fyrsti er
haldinn hátíðlegur um
allt Suðurland
Skátafélagið Fossbúar á Selfossi
býður að venju til hátíðardag-
skrár. Skátarnir bjóða nú heim í
nýja skátaheimilið í Glaðheimum
að Tryggvagötu 36 á Selfossi en
dagskráin hefst þar kl.13:00 með
skrúðgöngu og starfsemi inni og
úti.
Skaftfellingar í Skaftárhreppi kveðja
vetur og fagna sumri með tónaflóði
að kveldi síðasta vetrardags.Hefjast
tónleikar í Kirkjuhvoli á Kirkju-
bæjarklaustri kl 20.30.