Selfoss - 24.04.2013, Blaðsíða 6

Selfoss - 24.04.2013, Blaðsíða 6
6 24. apríl 2013 Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar: Byggðastefna sem virkar Samfylkingin leggur þunga áherslu á hagsmuni hinna dreifðu byggða. Við höfn- um tilviljanakenndum aðgerðum í þágu útvalinna atvinnugreina eða sérvalinna krókmakara. Við vilj- um almennar leikreglur og alvöru byggðastefnu. Tryggja sjávarbyggðunum hlutdeild í veiðileyfagjaldinu. Síðasta frumvarpið sem ég fékk sam- þykkt sem efnahagsráðherra voru lög um jöfnun flutningskostnaðar. Við tryggjum með því framleiðslufyr- irtækjum á landsbyggðinni endur- greiðslu hluta flutningskostnaðar og jöfnum samkeppnisstöðu atvinnulífs á landsbyggðinni. Margir lögðu hart að mér að gera í frumvarpinu upp á milli atvinnugreina – undanskilja t.d. sjávarútveginn. Það gerðum við ekki, því við viljum að stuðningur ríkisins byggi á jafnræðisgrunni. Við höfum lagt á hraustlegt veiði- leyfagjald. Það er eðlilegt, enda á sjávarútvegurinn að greiða fyrir að- gang að sameiginlegum auðlindum eins og aðrar greinar. En hann þarf að geta þróast og þroskast og búa við fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi eins og aðrar greinar. Og sjávar- byggðirnar þurfa að eiga sérstaka hlutdeild í arðinum af auðlindinni. Því viljum við í Samfylkingunni tryggja sjávarbyggðunum hlutdeild í veiðileyfagjaldinu. Vaxtarmöguleikum íslenskra fyrirtækja eru lítil takmörk sett. Sköpunargetan vekur athygli um allan heim og við byggjum jafnt á hefðbundnum greinum og á nýjum þekkingargreinum. Mörg þessara fyrirtækja eru á landsbyggðinni. Við höfum lagt aukið fé í Tækniþróunar- sjóð og sett á stofn nýjan Grænan fjárfestingarsjóð, sem samtals eru að fá á annan milljarð af nýju fé. Við viljum halda þessu áfram og setja á fót nýjan opinberan fjárfestingar- sjóð, að franskri fyrirmynd, sem tengi saman starf opinberra aðila að stuðningi við atvinnulífið, sem nú er dreift í Byggðastofnun og Nýsköp- unarsjóði og víðar. Markmiðið er að tryggja að allar góðar hugmyndir geti orðið að veruleika og skapað okkur arð, hvort sem þær fæðast í Breiðholti eða á Bíldudal. Þegar fyrirtækin vaxa úr grasi bíð- ur okkar nú ærið verkefni: Að halda í þau í umhverfi hávaxta og hafta. Við erum nú að missa okkar bestu fyrir- tæki úr landi. Þess vegna verðum við að ljúka aðildarsamningum við ESB sem allra fyrst og leggja niðurstöð- una í dóm þjóðarinnar. Við verðum að reyna til þrautar þá einu leið sem nágrannaríki okkar hafa fetað til að standa undir alvöru lífskjörum. Við byggjum aldrei norræna velferð á atvinnulífi í höftum. Íslenskur landbúnaður getur átt stórkostleg sóknarfæri Við þurfum líka ný sóknarfæri í at- vinnumálum á landsbyggðinni. Að- ild að ESB mun vegna byggðastefnu sambandsins styðja við fjölbreytt atvinnulíf á landsbyggðinni og gera okkur kleift að fjölga þar störfum. Þar fyrir utan skapar aðild ný og áður óþekkt tækifæri fyrir íslenskan landbúnað. Einu sinni voru Íslendingar sann- færðir um að ekki borgaði sig að veiða fisk, því ávinningurinn af því að selja hann úr landi væri miklu minni en áhættan sem fylgdi því að opna landið. Við vitum hver niður- staðan varð úr því reikningsdæmi. Með sama hætti er ég sannfærður um að íslenskur landbúnaður get- ur átt stórkostleg sóknarfæri, þegar nýir markaðir opnast fyrir íslenskar afurðir á evrópskum markaði, sem gerir sífellt ríkari kröfur um hrein- leika og góða framleiðsluhætti. Ég neita að fallast á þá vanmetakennd fyrir hönd íslensks landbúnaðar, sem einkennir málflutning andstæðinga ESB-aðildar, og lýsir sér í linnu- lausum dómsdagsspám. Það ekkert sem bendir til annars en að íslenskar afurðir muni sigra í gæðakeppni á evrópskum markaði, ef íslenskur landbúnaður fær að njóta frelsis í markaðssetningu og viðskiptahátt- um eins og aðrar atvinnugreinar. Árni páll Árnason. Ég neita að fallast á þá vanmetakennd fyrir hönd íslensks landbúnaðar, sem einkennir málflutning andstæðinga ESB-aðildar, og lýsir sér í linnulausum dómsdagsspám. Það ekkert sem bendir til annars en að íslenskar afurðir muni sigra í gæðakeppni á evrópskum markaði, ef íslenskur land- búnaður fær að njóta frelsis í markaðssetningu og við- skiptaháttum eins og aðrar atvinnugreinar. Köstum ekki atkvæði okkar á glæ Ég ætla ekki að kasta atkvæði mínu á glæ í þessum kosn-ingum, sagði vinur minn úr Tungunum við mig í vikunni og ég hummaði eitthvað á móti um að ef maður greiddi atkvæði væri það nú alltaf framlag til lýðræðisins. - Nei, það er ekkert framlag til lýðræðisins. Það er afbökun á því, svaraði þessi félagi minn og var heitt í hamsi. Ég vissi varla hvert þetta símtal var að fara. Ætlaði maðurinn að koma með þessa lummu um að við fengjum ekki nógu mikið fylgi og atkvæðið dytti því dautt niður. Tilbúinn að benda á að í þeirri einu könnun þar sem mitt nafn var nefnt reyndust 44% íbúa Suðurkjördæmis óska þess að ég yrði kjörinn. Æi, mér leiðist að halda svo sjálfhverfum hlutum fram en meðan engin önnur mæl- ing hefur farið fram á mínu eigin fylgi gæti ég neyðst til þess ... En nú gáfust ekki tímar til heilabrota, rödd þessa gamla sveitunga var í tólinu og hélt áfram. - Síðast kaus ég VG, mest út af andstöðunni við ESB. Því atkvæði var svo sannarlega kastað á glæ og verra en það því þetta lið sem vill ná af okkur fullveldinu fékk það og þá þingmenn sem ég studdi af- henta á silfurfati. Ég var ekki svona heppinn eins og þú að hafa kosið Atla Gíslason ... - Ja ...! En ég komst ekkert að og hafði svosem ekkert mikið að segja. Maðurinn var farinn að segja mér frá frænda sínum öldruðum sem var kominn með nýtt hné hægra megin og hafði til skamms tíma kosið íhaldið. Þegar hann áttaði sig á að gamla hægri stjórnin hafði stolið ríkisbönkunum og allskonar fyrirtækjum fannst karli hann hafa verið svikinn. Atkvæðunum sínum stolið og hann ætlaði svo sannarlega ekki að láta það henda sig oftar að kjósa þá sem allt svíkja og öllu stela. - Við ætlum báðir að kjósa þenn- an Regnboga ykkar þó að þetta sé nú hálfskrýtið nafn. Ef þetta héti bara Listi Bjarna og Guðmundar þá hefðuð þið rakað inn í skoð- anakönnunum. Það veit enginn að þú sért á lista sem heitir Regnbogi en ég er viss um að þið fáið fylgi í sjálfum kosningunum. Þið farið líklega báðir inn og vertu blessaður! - Ha, já blessaður. Bjarni Harðarson Höfundur er oddviti á lista Regnbogans í Suðurkjördæmi Bjarni Harðarson. Vetur kveður og sumri heilsað Sumardagurinn fyrsti er haldinn hátíðlegur um allt Suðurland Bókakaffi á Heimalandi með Þórði í Skógum Á sumardaginn fyrsta (25. apríl) kl 14:00 verður síðasta bókakaffi vetrarins. Þórður Tómasson verð- ur með upplestur ásamt fleirum. Kaffiveitingar í boði félagsins. Kvenfélagið Eygló og bókavörður.

x

Selfoss

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.