Selfoss - 24.04.2013, Page 8

Selfoss - 24.04.2013, Page 8
8 24. apríl 2013 Samanlagt fylgi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á tímabilinu 1963-2013. (Hlutfall af heildarfjölda atkvæða greiddum framboðum) 1963 1967 1971 1974 1978 1979 1983 1987 1991 1995 1999 2003 2007 2009 2013 69,6% 65,6% 61,5% 67,6% 49,6% 60,3% 57,1% 46,1% 57,5% 60,4% 59,1% 51,4% 48,3% 38,5% ? Alþingiskosningar 1963-2013 Framsókn og Sjálfstæðisflokkur á meðalróli 2013 Fyrir 50 árum var Viðreisnar-stjórn Sjálfstæðisflokks og Al-þýðuflokks við stjórnvölinn. Hún hafði komist til valda fjórum árum áður og sat til ársins 1971. Aðrir flokkar en Framsókn og Sjálf- stæðisflokkur hafa verið lagðir niður eða sameinast öðrum á tímabilinu. Það er því forvitnilegt að sjá hver hlutur þessara tveggja flokka hefur verið á umræddu tímabili 1963- 2013. Í kosningunum 1963 kusu 7 af hverjum tíu kjósendum annað hvort Sjálfstæðisflokk eða Framsókn. Þessir tveir flokkar hafa aldrei notið meira fylgis samanlagt á þessari hálfri öld sem liðin er. Í fimmtan ár 1963- 1978 nutu þessir flokkar yfir 60% fylgis í öllum kosningum. Í kosningunum 1978 fara B og D listar samanlagt niður í tæp 50% fylgi. Í þeim kosningum meir en tvö- faldaði Alþýðuflokkurinn fylgi sitt – Vilmundur Gylfason þá tæplega þrítugur var að flestra áliti maður- inn að baki góðu gengi flokksins. Í kosningunum í desember 1979 hlutu B og D að nýju 60% fylgi sem þeir hafa einu sinni náð aftur en það var í kosningum 1995. Þá 60,4%. Síðustu kosningar (2009) voru sögulegar. Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkur hlutu minnsta fylgi sem þeir hafa nokkru sinni haft þessa hálfa öld. 38,5% studdu flokkana í kosningunum 2009. Af 63 þingmönnum voru 27 nýir þing- menn kosnir til Alþingis og er það mesta endurnýjun á milli kosninga í sögu íslenska lýðveldisins. Konur á Alþingi urðu 26 talsins eða 43% og hefur kynjahlutfallið aldrei verið jafnara. Aldrei hafa fleiri skilað auðu á kosningum eða 3,2%. Samkvæmt skoðanakönnun sem unnin var af Gallup gerði meira en fjórði hver kjósenda upp hug sinn um hvað þeir ætluðu að kjósa á kjördeginum sjálfum. 14 sinnum hefur verið kosið til Alþingis á þessu tímabili frá 1963 og nú í 15. sinn. Meðalfylgi Sjálf- stæðisflokks og Framsóknar þessa hálfa öld í 14 kosningum hefur verið 51,6%. Það er á svipuðu róli og skoðanakannanir hafa sýnt að fylgi þeirra sé að undanförnu í að- draganda kosninganna 2013. Taflan hér að neðan sýnir fylgi flokkanna tveggja í 14 Alþingiskosningum frá árinu 1963. (Byggt á heimildum frá Hagstofu Íslands, Wikipediu o.fl.) ÞHH Fulltrúar allra 11 framboða til Alþingis úr Suðurkjördæmi mættu á fund sem Ríkisút-varpið stóð fyrir í fyrri viku. Framboðsfund- urinn var haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurlands að viðstöddu nokkru fjölmenni í sal, en útvarpað var og þá var hægt að fylgjast með fundinum á neti. Í upphafi var frambjóðendum gefinn kostur á að fjalla í eina og hálfa mínútu um áhersluatriði, en síðan voru spurningar lagðar fyrir þátttakendur úr sal og af neti. Meðal þess sem spurt var um var hvort virkja eigi í neðri hluta Þjórsár, um nettengingar á lands- byggðinni, göng í gegnum Reynisfjall, atvinnumál á Suðurnesjum og um skatta - einkum um hækk- un skattleysismarka. Stjórnendur fundarins völdu spurningar til þess að koma sem flestum að. Þannig féll niður spurning um hugsanlega virkjun í Hólmsá í Skaftártungu, en einn fundarmanna hafði lagt hana fram. Hér verður stiklað á nokkru sem kom fram hjá þátttakendum: ÞHH Oddný, Sigursveinn og Sigurður Ingi Vilhjálmur, ragnheiður Elín og andrea Oddný G. Harðardóttir, Sam- fylkingu: Þjóðin var á barmi gjaldþrots en það tókst að rétta hana við. Langar að vinna áfram í anda jafnaðarmanna. Stjórnin hefur hækkað skattleysismörk um 45% og barnabætur um 30%. Ef það er mögulegt viljum við hækka skattleysismörkin enn frekar. Fylgjum rammaáætlun- inni. Það varð að fara yfir þær athugasemdir sem komu fram og því eðlilegt að flytja hugsanlegar virkjanir í neðri hluta Þjórsár úr nýtingarflokki í biðflokk. Þegar rannsóknum lýkur getum við metið stöðuna á ný. Lagarfljótið hlýtur að vekja okkur til um- hugsunar. Sigursveinn Þórðarson, Hægri grænum (HG): Fylgjandi virkjun í neðri hluta Þjórsár en það yrði að vera í sátt við landeigendur. Innkalla ber öll verðtryggð lán heimila fyrir 17. júní 2013. Nýta beri það sem fæst úr hrægamma- sjóðum m.a. til að lækka skuldir ríkissjóðs. Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokki: 2009 gerði flokkurinn upp við fortíðina. Viljum hækka skattleysismörk. Stærsta verkefnið er skulda- vandi heimilanna. Afnema verð- tryggingu á neytendalánum. Við þurfum fjölbreyttan iðnað. Virkja ber í tveimur af þremur mögulegum stöðum í Þjórsá (ekki Urriðafoss). Vilhjálmur Bjarnason, Flokki heimilanna: Á móti því að virkja í neðri hluta Þjórsár. Eigum að gefa ylræktinni meiri gaum. Aðgerð- ir hafa verið ólöglegar og komið niður á heimilunum. Fátækt er ríkjandi í okkar samfélagi. Laun eiga að nægja til framfærslu. Það þarf að ákveða hvað sé lágmarks- framfærslukostnaður og hækka skattleysismörk í samræmi við það. Til skammar hvernig kom- ið er fyrir fjölskyldum. Auka þarf heilbrigðisþjónustu í heima- byggð. Ragnheiður Elín Árnadóttir, Sjálfstæðisflokki: Flokkurinn er hlynntur virkjun í neðri hluta Þjórsár. Léleg skilyrði nettenginga leiddi það af sér á vissum stöðum á landsbyggðinni að nemendur kæmu ekki heim þar sem þau gætu m.a. ekki stundað heima- nám. Það ætti að vera hægt að losna undan verðtryggingu ef fólk kysi það. Hækka beri skattleys- ismörk, lækka skatta og afnema þrepaskiptingu tekjuskatts. Andrea Ólafsdóttir, Dögun: Þjóðin er í dauðafæri. Heimil- in eiga að vera í fyrsta sæti. Nýja stjórnarskrá og tryggja þjóðinni arð af auðlindum. Á móti virkj- un í neðri hluta Þjórsár. Tók sem dæmi að 1 megawatt skapaði 17 störf í ylrækt. Aflslátt ætti að gefa af námslánum ef fólk skapaði störf á landsbyggðinni þegar það kæmi úr námi. Þau stjórnuðu fundi: ragnhildur Thorlacius og Ágúst Ólafsson. X2013 Auglýsingasíminn er 578 1190 - Netfang: auglysingar@fotspor.isSELFOSS-SUÐURLAND

x

Selfoss

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.