Selfoss - 24.04.2013, Side 9

Selfoss - 24.04.2013, Side 9
924. apríl 2013 Vilhjálmur, ragnheiður Elín og andrea páll Valur, Smári og Jón Gunnar Bjarni og arndís ismörk, lækka skatta og afnema þrepaskiptingu tekjuskatts. Andrea Ólafsdóttir, Dögun: Þjóðin er í dauðafæri. Heimil- in eiga að vera í fyrsta sæti. Nýja stjórnarskrá og tryggja þjóðinni arð af auðlindum. Á móti virkj- un í neðri hluta Þjórsár. Tók sem dæmi að 1 megawatt skapaði 17 störf í ylrækt. Aflslátt ætti að gefa af námslánum ef fólk skapaði störf á landsbyggðinni þegar það kæmi úr námi. Páll Valur Björnsson, Bjartri framtíð: Við þurfum ný grunn- gildi í samfélaginu – nýja menn- ingu. Fólkið á að ráða. Við þurf- um að vera laus við efnahagslegar kollsteypur. Það er til skammar hvernig komið er fyrir fólki. Þekki til fiskverkafólks sem hefur ekki efni á að taka sér sumarfrí, ekki eina viku. Það er gríðarleg gróska í atvinnulífi á Suðurnesjum. Smári McCarthy, Pírati: Koma ætti valdinu til fólksins. Ekki kasta perlum fyrir ál. Lang stærsti hluti hagkerfisins væri í smáum og meðalstórum fyrirtækjum. Og langmest gróska væri í netheim- um. Það ætti að auðvelda mönn- um að stofna lítil fyrirtæki. Þrepa- skipting tekjuskatts væri góð. Í umræðu um hækkun skattleys- ismarka ætti líka að hugleiða hvort taka bæri upp neikvæðan tekjuskatt. Jón Gunnar Björgvinsson, Lýð- ræðisvaktinni: Allir eiga að sitja við sama borð í þjóðfélaginu. Svo væri ekki í dag. Ný stjórn- arskrá jafnaði aðstöðumun. Efla á grunnþjónustu í samfélaginu. Hækka skattleysismörk en arður- inn af auðlindaskatti myndi jafna aðstöðumun og jafna lífskjör. Ekki fórna náttúruperlum fyrir álver. Bjarni Harðarson, Regnbogan- um: Þingmenn væru ekki full- trúar þjóðar þar sem þeir væru starfsmenn stjórnmálaflokka. Okkur ber að líta til Evrópu varð- andi atvinnumál á Suðurnesjum. Þar úti hefðu menn reynslu af því þegar mikilvægur þáttur atvinnu- lífs er lagður niður. Brotthvarf hersins var álíka. Skoða ber göng um Reynisfjall með hliðsjón af náttúruvernd. Á móti virkjun í neðri hluta Þjórsár. Arndís S. Sigurðardóttir, Vinstri grænum (VG): Á móti því að virkja í neðri hluta Þjórsár. VG vill leggja 50-60 milljarða í aukna velferð. Og fylgjandi því að skatt- leysismörk verði hækkuð. Eki rétt að leggja öll egg í sömu körfu – stórfyrirtæki eru þar af leiðandi ekki á óskalista. Minnisstæðar kosningar: Það var mögnuð stund Ef ég á að rifja upp minnis-stæðar kosningar koma þá í hugann bæjarstjórnarkosn- ingarnar í Árborg vorið 2002. Þá bauð Samfylkingin fram í fyrsta sinni og fékk fjóra fulltrúa af níu kosna og 41% greiddra atkvæða. Ásmund Sverri Pálsson, Torfa Ás- kelsson, Ragnheiði Hergeirsdóttur og Gylfa Þorkelsson. Það var mögn- uð stund þegar þessi úrslit lágu fyrir. Þau leiddu síðan starfið í Árborg næstu árin. Ég minnist líka hversu skemmtilegt var að vinna með Mar- gréti Frímannsdóttur þegar hún var í forystu í Alþingiskosningum og ekki síður hversu gott hefur verið að starfa með Björgvini G. Sigurðssyni eftir að hann kom til sögu, ásamt því góða fólki sem með þeim hefur verið í þessu stjórnmálastarfi. Mér finnst að sú ríkisstjórn sem nú er að ljúka starfi hafi ekki notið sannmælis. Hún fékk í hendur erfið- asta verkefni sem nokkur r íkisst jórn hefur feng- ið í fangið á lýðveldistím- anum. Það er eftirtektar- vert að erlend matsfyrirtæki sem meta hag þjóða hafa verið sam- mála um að engri þjóð hafi gengið eins vel og Íslendingum að ná ár- angri eftir hrunið. Því verki er þó hvergi nærri lokið. Nú sýnist mér að þjóðin ætli að steypa sér aftur í fangið á gömlu hrun- og helm- ingaskiptaflokkunum. Við þekkjum vinnubrögð þeirra frá fyrri tíð. Nú rignir yfir gylliboðum og lýðskrumi. Hætt er við að einhverjum geti orðið bumbult eftirá eftir inntökur af þeim krásum. Sigurjón Erlingsson Virkjanaframkvæmdir í neðri hluta Þjórsár bar mjög á góma á fundinum. Myndin er af Urriðafossi. Myndir: ÞHH Sigurjón Erlingsson. Nú fer í hönd tími uppskeru. Það er hreint ótrúlegt hve árshátíðir nemenda eru skemmtilegar og vitna um sköpun og gleði. Þessar myndir voru teknar í Vallaskóla og það eru nemendur í 3. bekk sem sýndu listir sínar. allir eru með. Það er af sem áður var.

x

Selfoss

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.