Selfoss - 24.04.2013, Page 10

Selfoss - 24.04.2013, Page 10
10 24. apríl 2013 Kjósum það sem virkar Undanfarin misseri höf-um við gengið í gegnum miklar hremmingar sem við höfum flestöll staðið af okk- ur. Því miður hafa ekki allir verið þeirrar gæfu aðnjótandi að komast frá þessari baráttu okkar heilu og höldnu. Sumir hafa goldið fyrir baráttuna með húsnæðismissi, at- vinnumissi og jafnvel fjölskyldu- missi. Alvarlegustu dæmi kreppu 21. aldarinnar má finna hjá fólki sem ekki hefur séð aðra kosti en að taka eigið líf eftir að hafa upplifað andlegt sem fjárhagslegt gjaldþrot. Börnin okkar, sem allt til hausts- ins 2008 hafa lifað við „allsnægtir“ hafa nú upplifað nútímakreppu og skilja hvað liggur að baki orðinu kreppa. Einfaldar framkvæmanlegar lausnir Nú er tími uppbyggingar kominn og lausnir á skuldavanda heimil- anna hafa verið lagðar á borð. Hægri grænir hafa lýst afar einfaldri útfær- slu á leið sem kallast „magnbundin íhlutun“ sem felur í sér hagkvæma lausn fyrir heimilin í landinu. Þessi leið hefur verið farin í BNA og hún virkaði. Stefnur þeirra fjölmörgu framboða sem nú bjóða fram eru um margt keimlíkar. Öll erum við gott fólk sem viljum ekkert frekar en sjá aukna hagsæld í okkar ástkæra landi, geta búið við traust efnahagskerfi þar sem áfengis- og eldsneytisverð stjórn- ar ekki skuldafjárhæðum okkar. Öll viljum við bæta heilbrigðiskerfið og blása nýju lífi í fjölbreyttara og skil- virkara menntakerfi. En til þess að draumar okkar geti ræst þurfum við að forgangsraða og best er að byrja heima, heima hjá þér og mér. Verum skynsöm og veljum lausnir sem eru vel útfærðar, framkvæmanlegar og skila árangri strax. Einfaldara skattkerfi Hægri grænir hafa einnig á stefnu- skrá sinni að lækka skatta. Við viljum einfalda skattkerfið, lækka skatta í þrepum niður í 20% á fjór- um árum. Það hefur sýnt sig að lægri skattar ýta undir atvinnuþátttöku og aukinn hagvöxt. Með því að lækka tryggingargjaldið úr tæpum 8% nið- ur í 3% er minni fyrirtækjum um land allt gert kleyft að ráða til sín einn starfsmann fyrir mismuninn, það eru allt að 6500 störf, á lands- vísu. Fáum fólk af atvinnuleysisskrá og bjóðum því að lifa með reisn í einu ríkasta landi veraldar. Nú langar mig að biðla til ykk- ar, kjósendur góðir, að meta vel og vandlega hvar þið setjið ykkar X í kosningunum þann 27. apríl, því hvað sem verður fyrir valinu þá verð- ur það val að vera byggt á því að þið séuð að velja rétt fyrir ykkar fjárhag og ykkar framtíð. Kynntu þér okkar stefnu á www. xg.is og taktu upplýsta ákvörðun. Agla Þyri Kristjánsdóttir, 2. sæti Hægri grænna í Suðurkjördæmi Kjörfundur í Hveragerðisbæ Kjörfundur vegna alþingiskosninga laugardaginn 27. apríl 2013 hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00 þann dag. Kjörfundurinn verður í Grunnskólanum í Hveragerði, gengið er inn um aðalinngang við íþróttahúsið Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi: Kjósandi skal hafa persónuskilríki meðferðis og allur áróður á og við kjörstað er óheimill Hveragerði 22. apríl 2013 Kjörstjórnin í Hveragerðisbæ. Réttlátt samfélag Stefnuskrá Lýðræðisvaktarinn-ar stendur föstum fótum í stjórnarskrárfrumvarp- inu, sem 2/3 hlutar kjósenda lýstu stuðningi við í þjóðaratkvæða- greiðslunni 20. október 2012. Helztu einkunnarorð Lýð- ræðisvaktarinnar eru sótt í upp- hafsorð nýju stjórnarskrárinnar: „Við sem byggjum Ísland viljum skapa réttlátt samfélag þar sem allir sitja við sama borð.“ Hvers vegna þarf að hamra á þessu? Það stafar af því, að hingað til höfum við ekki öll fengið að sitja öll við sama borð. Við búum við ójafnan atkvæð- isrétt, þar sem sumir greiða tvö atkvæði í alþingiskosningum og aðrir aðeins eitt. Við búum við ójafnan aðgang að arðinum af sameiginlegum auð- lindum okkar. Við búum við ójafnan aðgang að upplýsingum, svo að við fáum ekki einu sinni að heyra hljóðrit af dýrasta símtali Íslandssögunnar og þannig áfram. Lýðræðisvaktin er ekki eins máls flokkur vegna þess, að stjórnar- skráin, sem þjóðin kaus og þingið klúðraði, spannar vítt svið. Fyrir liggur mikill stuðning- ur meðal þjóðarinnar við helztu ákvæði nýju stjórnarskrárinnar. Í þjóðaratkvæðagreiðslunni lýstu 83% kjósenda sig fylgjandi auð- lindum í þjóðareigu, og 67% lýstu sig fylgjandi jöfnum atkvæðisrétti. Þetta eru þverpólitísk mál. Okkur þótti því rétt að veita kjós- endum færi á að greiða atkvæði sitt lista, þar sem eru í forsvari átta fv. stjórnlagaráðsfulltrúar auk nýrra samherja úr ýmsum áttum. Við erum þverpólitískt framboð, nema réttara sé að kalla okkur ópólitískt framboð. Þeim, sem lesa stefnuskrá Lýð- ræðisvaktarinnar á xlvaktin.is, er ómögulegt að færa haldbær rök að því, að hún hallist til hægri eða vinstri. Stefnuskrá Lýðræðisvaktarinnar býr yfir sama galdri og frumvarp Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnar- skrá: hún hefur breiða skírskotun til kjósenda hvar í flokki sem þeir kunna áður að hafa staðið. Auðlindir í þjóðareigu snúast ekki um vinstri eða hægri stefnu. Jafnt vægi atkvæða snýst ekki um vinstri eða hægri stefnu og það ger- ir frjáls aðgangur að upplýsingum til að girða fyrir leynd og spillingu ekki heldur. En auðvitað eru ríkis hagsmun- ir við það bundnir, að þessi fram- faramál og önnur nái ekki fram að ganga. Þess vegna var stjórnarskrár- frumvarpinu siglt í strand í skjóli nætur fyrir þinglok, þótt fyrir lægi opinber stuðningur 32 þingmanna af 63 við samþykkt frumvarpsins, sem 2/3 hlutar kjósenda höfðu áður lagt blessun sína yfir. Lýðræðisvaktin vill með þeim þingstyrk, sem hún kann að fá, stuðla að því, að nýtt Alþingi staðfesti framgang þjóðarviljans í stjórnarskrármálinu. Lýðræðisvakt- in býðst einnig til að hjálpa til við að endursemja þau lög, sem þarfnast endurskoðunar, svo að þau standist nýja stjórnarskrá. Málið er brýnt. Stjórnarmeirihlutinn á Alþingi kom upp um sig á loka- dögum þingsins, þegar hann lagði fram fiskveiðistjórnarfrumvarp, sem gekk bersýnilega í berhögg við stjórnarskrárfrumvarp sama þingmeirihluta. Við þurfum nýja krafta inn á Alþingi til að tryggja, að lagasetn- ingin, sem þarfnast endurskoðunar, svo að hún standist nýja stjórnar- skrá, verði rétt samin og með henni sé ekki reynt að fara á svig við efni og anda nýrrar stjórnarskrár. Höfundur er formaður Lýðræðisvaktarinnar. Þorvaldur Gylfason. agla Þyri Kristjánsdóttir. Hreinsunarátak Árborgar 2013 Hreinsunarátakið stendur til mánudagsins 5. maí n.k. Sveitarfélagið Árborg skorar á alla íbúa Árborgar og fyrirtæki að taka virkan þátt í átakinu og hreinsa til á sínum lóðum. Jafnframt eru íbúar hvattir til að fara út með einn svartan ruslapoka á tímabilinu og fylla hann af rusli, sem er að finna í næsta nágrenni. Fyllum pokann og tökum til í bænum okkar! • Garðeigendur eru beðnir um að nota tækifærið að hreinsa og snyrta til í görðunum sínum og klippa þann gróður sem vex út fyrir lóðarmörk og hindrar umferð. • Ruslagámar verða staðsettir við Olís planið á Eyrarbakka, við áhaldahúsið á Stokks­ eyri og í dreifbýlinu verða gámar við Stekka, Tjarnabyggð og við afleggjarann að Lækja mótum á móts við Votmúla. • Sérstakur hreinsunardagur verður í Sandvíkurhreppi hinum forna, sunnudaginn 12. maí n.k. • Sumaropnun Gámasvæðisins við Víkurheiði á Selfossi verður frá kl 13:00–18:00, mánudaga–laugardaga, frá og með 20. apríl n.k. til 1. september n.k. Sveitarfélagið Árborg mun bjóða íbúum sveitarfélagsins, sem þess óska, að fjarlægja ruslapoka og létt dót ásamt trjágreinum af lóðarmörkum á meðan átakinu stendur. Tekið er á móti óskum um hirðingu í þjónustuveri Árborgar í síma 480­1900. Tökum á – tökum til Sveitarfélagið ÁRBORG

x

Selfoss

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.