Selfoss - 24.04.2013, Page 12
24. apríl 2013
Á miðvikudaginn er seinasti dagur vetrar og á fimmtu-daginn er sumardagurinn
fyrsti.
Sumardagurinn fyrsti, einnig
kallaður Yngismeyjardagur, er
fyrsti dagur Hörpu, sem er fyrstur
af sex sumarmánuðum í gamla nor-
ræna tímatalinu. Þorri er mánuður
bóndans, Góa mánuður konunnar
og Harpa því mánuður yngismeyja
en vorið kemur með gleði og galsa.
Í gömlum húsgangi segir:
Þorri og Góa grálynd hjú
Gátu son og dóttur eina:
Einmánuður sem bætti ei bú
og blíða Hörpu að sjá og reyna
Sumardagurinn fyrsti var hátíð-
isdagur og gamall siður er að gefa
sumargjafir. Sá siður er eldri hér á
landi en að gefa jólagjafir.
Ég á ljúfa minningu um sumar-
daginn fyrsta með afa mínum og
ömmu en í þeirra huga var þetta
hátíðisdagur. Að morgni sumar-
dagsins fyrsta angaði allt húsið af
hangikjötslykt og pönnukökum sem
amma bakaði með morgunkaffinu.
Á meðan hún bakaði pönnukökurn-
ar sat afi við eldhúsborðið með
heitt vatn í emeleruðu hvítu fati,
rakbursta, raksápu og spegil. Fyrsti
rakstur sumarsins. Amma hellti á
baunakaffi af nýbrenndum og möl-
uðum kaffibaunum. Sólin skein
inn um gluggann og áður en kaffið
og pönnukökurnar voru komnar
á borðið var raksturinn búinn og
kvenþjóðin fékk skeggkossinn. Mik-
ið var þetta ljúft og skemmtilegt.
Sumardaginn fyrsta ber alltaf upp
á fimmtudag á tímabilinu frá 19 -25.
apríl (þ.e. fyrsta fimmtudag eftir 18.
apríl).
Íslensk þjóðtrú segir að ef sumar
og vetur frjósi saman boði það gott
sumar, en með því er átt við að hiti
fari niður fyrir frostmark aðfararnótt
sumardagsins fyrsta. Í Sögu daganna
- hátíðir og merkisdagar (bls. 50, 2.
útg., 1977) eftir Árna Björnsson,
þjóðháttafræðing, segir um sumar-
daginn fyrsta:
Hvarvetna var fylgst með því,
hvort frost væri aðfararnótt sumar-
dagsins fyrsta, þ.e. hvort saman frysti
sumar og vetur. Yfirleitt var það talið
góðs viti og jafnvel álitið að rjóminn
ofan á mjólkurtrogunum yrði jafn
þykkur og ísskánin á vatninu þessa
nótt. Í því skyni settu menn skál
eða skel með vatni út um kvöldið
og vitjuðu svo eldsnemma morguns.
Hvað átt er við með góðu sumri
í þjóðtrúnni er nokkuð á reiki, en
hugsanlega er einkum átt við að nyt
búpenings verði góð, sem verður
þegar taðan er kjarnmikil. Ef engj-
ar og tún eru seinsprottin verða hey
oft kjarngóð og því ætti nytin einnig
að verða góð. Slíkt gerist þegar svalt
er og vott framan af sumri, en síðan
hlýrra og þurrt og kann þjóðtrúin að
vísa til þess að þegar vorið er kalt þá
er oftast frost á sumardaginn fyrsta
sem leiðir líkum að því að sumarið
verði seinna á ferðinni. Þá er allur
gróður einnig seinni að taka við
sér, en það gerir grösin kjarnbetri
og bætir nyt búpenings.
Matinn sem ég ætla að fjalla um í
dag hugsa ég sem síðasta mat vetrar
áður en vorið og sumarið kemur
með grilli og salötum.
Ég sá þessa uppskrift fyrir mörg-
um árum í dönsku blaði og hef oft
haft hana síðan. Blaðið er löngu týnt
en uppskriftin er í huganum. Í blað-
inu hét hún Kótilettur frá Serbíu.
Svínakótilettur eru barðar aðeins.
Ein matskeið af sinnepi og 1 egg
er þeytt saman og kótilettunum velt
upp úr og síðan í blöndu af hveiti
með salti og pipar. Þær eru síðan
steiktar á pönnu í olíu, síðan settar
í eldfast mót og í ofn sem er u.þ.b.
200 gráðu heitur.
Á meðan er sneitt niður beikon,
laukur, hvítlaukur (má sleppa), papr-
íkur í öllum litum og sett á pönnu í
feitina af kótilettunum. Í þetta má
bæta brokkolí, spínati , sveppum
, tómötum eða hverju sem er til í
ísskápnum hverju sinni - einnig
er gott að hafa grænar baunir út í..
Kryddað með salti og pipar. Mér
finnst líka gott að setja óríganó eða
blóðberg með.
Þegar kótiletturnar eru búnar að
malla aðeins í ofninum og græn-
metið á pönnunni orðið mjúkt, er
grænmetið sett ofan á kótiletturnar
í forminu og borið fram. Auðvitað
má hafa hrísgrjón eða kartöflur með
en mér finnst það óþarfa kolvetni
í viðbót.
Verði ykkur að góðu og gleðilegt
sumar.
12
Að hætti hússins
SUMARKOMA
Kristjana Sigmundsdóttir
kristjanasig@simnet.is
Óskum öllum launþegum
á Íslandi til hamingju
með baráttudag verkalýðsins
1. maí
Sýslumaðurinn á Selfossi
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosninga til
Alþingis sem fram fara þann
27. apríl n.k. fer fram á skrifstofu sýslu- mannsins á
Selfossi, Hörðuvöllum 1 sem
hér að neðan greinir:
Alla virka daga fram til föstudagsins 12. apríl
á venjulegum opnunartíma frá kl. 09:15 – 14:15
Alla virka daga frá mánudeginum 15. apríl til
fimmtudagsins 25. apríl frá kl. 09:15 – 18:00
Á föstudaginn 26. apríl kl. 09:15 - 20:00
Laugardagana 13. og 20. apríl 10:00 – 12:00
Sumardagurinn fyrsti 25. apríl kl. 10:00 – 13:00
Á kjördag 27. apríl kl. 10:00 – 12:00
Auk þessa verður kosið á sjúkrahúsum,
dvalarheimilum aldraða og fangelsum í samráði við
viðkomandi forstöðumenn
Athygli er vakin á því að framvísa þarf
persónuskilríkjum á kjörstað
Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms,
fötlunar eða barnsburðar, þarf
að hafa borist embættinu eigi síðar en kl. 16:00 fjórum
dögum fyrir kjördag á viðeigandi
umsóknareyðublaði sem finna má á vefnum:
http://www.kosning.is/media/frettir/Atkv_heimahusi_20
09.pdf
Sýslumaðurinn á Selfossi
8. apríl 2013
Fjórlitur
76c + 8m
100c + 65m + 30k
Letur svart
Fjórlitur
76c + 8m
100c + 65m + 30k
Sveitarfélagið Ölfus