Selfoss - 24.04.2013, Síða 14

Selfoss - 24.04.2013, Síða 14
14 24. apríl 2013 Hoppa eftir bárunum Enn fögnum við sumri eins gert hefur þjóðin um aldir, beðið fyrsta vorblómsins, horft á sólar- geislana glíma við fannir í hnjúk og giljum og vinna sigur. Páll Ólafsson gaf þjóð sinni mörg vorljóð og einn vinsæl- asti vorsöngur enn í dag er um lóuna sem segir okkur að vaka og vinna, eftir að hún hefur kveðið burt leiðindin og snjóinn. Annað ljóð hans sem ofarlega er á vinsældalistanum er sólaróður Páls: Ó, blessuð vertu sumarsól og það góða ljóð minnir okkur á hálfgleymda orðið hadd þegar hann líkir geislaflóði sólarinnar við flæðandi kvenhár. Páll var 8 árum eldri en Matthías Jochumsson sem var fæddur vest- ur í Breiðafirði 1835 en Páll var Austfirðingur að ætterni og undi þar um ævidaga sína. Umboðs- maður þjóðjarða, þingmennska og búskapur voru viðfangsefni Páls en skáldskapur og lofnarmál var orkugjafi þessa vísnaskálds Íslendinga. Það eru aðeins fimm ár síðan norðlenskur trúbador gaf út vandaða ljóðabók með ástar- ljóðum Páls. Þau yrkir hann til Ragnhildar konu sinnar. Hann yrkir um sólaruppkomu: Stigin er sól á efstu öldu ástarfríð í tárunum. Heitir geislar á hafi köldu hoppa nú eftir bárunum. Hafið sýnist allt í eldi allt á flugi til og frá. Morgunroðans fagra feldi fjöllin steypir sólin á. Trúbadorinn og sagnfræðingur- inn, Þórarinn Hjartarson, hefur auk Ástljóða Páls, samið um hann útvarpsþætti og sungið vísur hans. Bókin er ekki aðeins safn af vel gerðum og fögrum vísum heldur einnig vitnisburður hvern- ig fægja má ættarsilfrið og fræða þannig og hrífa samtíðina. Um fyrsta sumardag 1891 orti Matthías: Kom heitur til míns hjarta blær- inn blíði! Kom blessaður í ásemd þinnar prýði! Kom lífsins engill nýr og náðar- fagur í nafni Drottins fyrsti sumardag- ur. Kom til að lífga, fjörga, gleðja, fæða og frelsa, leysa, hugga, sefa, græða. Í brosi þínu brotnar dauðans vigur í blíðu þinni kyssir trúna sigur! Við minnumst á þessu vori leikkonunnar góðu, Herdísar Þorvaldsdóttur, sem hefur um langt árabil lesið okkur þetta ljóð á fyrsta sumarmorgni – allar tíu vísurnar. Þær hljómuðu í útvarpi allra landsmanna. Herdís lést seint í vetur – og átti þá enn hlut- verki að sinna á fjölunum. Gleðilegt sumar! Hér aðs skjala safn Ár nes-inga hef ur á und an förn-um ár um feng ið fjölda merkra ljós mynda safna. Hér aðs- skjala safn ið fékk ásamt Hér aðs- skjala safni Aust firð inga og Hér- aðs skjala safni Skag firð inga styrk frá Mennta og Menn ing ar mála ráðu- neyti til at vinnu skap andi verk efn is tengd inns könn un og skrán ingu á ljós mynd um á söfn un um þrem ur. Sveit ar fé lag ið Ár borg og Menn- ing ar ráð Suð ur lands styrktu svo sér stak lega verk efn ið hér í sýsl unni. Á hér aðs skjala safn inu eru nú um 125.000 ljós mynd ir. Í tengsl um við verk efn ið er bú ið að skanna inn tæp lega 30.000 ljós mynd ir og skrá um helm ing þeirra. Mik ið vinna ligg ur að baki skrán ingu á ljós mynd um og oft á tíð um er ekki hægt að greina ná kvæm lega frá við burð um eða þekkja þá ein stak linga sem eru á mynd un um. Mik il vægt er að geta leit að til al menn ing og fá að stoð við skrán ingu á ljós mynd um. Birt- ing ljós mynda með þess um hætti er því í raun sam vinnu verk efni íbúa hér aðs ins og skjala safns ins. Smiðjuvegi 66 • 200 Kópavogi Sími 580 5800 • www.landvelar.is Litlu risarnir í rafsuðunni Léttar, sterkar og fjölhæfar (150-200 Amper) Kemppi Minarc EVO Þekk ir Þú fólk ið? úr Harð Haus (8) Ingi Heiðmar Jónsson Við birtum þessa mynd og kölluðum eftir nöfnum Nöfnin á fólkinu frá vinstri; Gunnar Halldórsson, Kristín Gunnarsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Ósk Gunnars- dóttir, Vilborg Þorfinnsdóttir, agnar Gunnarsson, Hjördís Þorfinnsdóttir, Þorfinnur Tómasson og Kristín Þor- finnsdóttir Skoðanakönnun samhliða Alþingiskosningum Í Flóahreppi fer fram ráðgefandi skoðanakönnun samhliða Alþing- iskosningunum 27. apríl. Kosið verður í Félagslundi og stendur val milli tveggja kosta um framtíðarstað fyrir leikskólann. Í skoðanakönnuninni verður hægt að haka við annað af neðangreindu:  Vilt þú að framtíðarstaðsetning leikskólans Krakkaborgar verði í Þingborg?  Vilt þú að framtíðarstaðsetning leikskólans Krakkaborgar verði í Flóaskóla?

x

Selfoss

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.