Vesturland - 28.02.2013, Page 6
6 28. febrúar 2013
Akraborg á Akranesi stækkar lagarhúsnæði sitt
Niðursuðuverksmiðjan Akra-borg var stofnuð á Akra-nesi árið 1989, er í dag einn
stærsti framleiðandi á niðursoðinni
þorskalifur í heiminum. Í dag eru
starfsmenn Akraborgar tæplega 40
manns og framleiðsla fyrirtækisins er
um 11 milljónir dósa á ári.
Á dögunum tók fyrirtækið nýtt
húsnæði í notkun. Um er að ræða
700m2 lagerhús. Bygging hússins hófst
sumarið 2012 en þörf var fyrir nýtt
húnsæði sökum aukins umfangs og
skorts á lagerplássi. Húsinu er ætlað að
sameina stóran hluta geymslu- og lag-
erpláss fyrirtækisins undir einu þaki og
að byggingu þess komu margir helstu
verktakar á Akranesi.
Meðfylgjandi myndir voru teknar
við vígslu nýja hússins.
Ungnautakjöt – Kílóverð 1.850 kr.
sími 8687204 / www.myranaut.is / myranaut@simnet.is
Lágmarkspöntun ¼ af skrokk. Inniheldur steikur, hakk og gúllas.
Gott í vetur
Dreifingaraðili: YD Design Heildverslun • Fossháls 5-9 • 110 Reykjavík • Sími: 587 9393 • Yd.is
Söluaðilar:
Reykjvík:
Hárgreiðslustofan Touch
Hárgreiðslustofan Zoo.is
Blómahönnun
OXXO butik
Femin
Urðarapótek
Landsbyggðin:
Verslunin Bjarg Akranesi
Póley Vestmannaeyjum
Blómsturvellir Hellissandi
GS Akureyri
Hárgreiðslustofan Mensí Selfossi
Sveitabúðin Sóley
Hárgreiðslustofan Flikk Höfn í Hornafirði
Auglýsingasíminn er 578-1190
www.fotspor. is
Sjaldséð merki
í Borgarnesi
Sennilegt er að Framsóknarmenn á öllum aldri fái sæluhroll og minnist gamalla tíma þegar
rennt er í hlað hjá Kaupfélagi Borg-
firðinga í Borgarnesi.
Merkið sem stendur við gafl hússins
er sjaldséð á þessum tímum og senni-
lega eitt af fáum slíkrar tegundar sem
enn hangir uppi.
Margmenni var við opnun hússins, rolf arnarson framkvæmdastjóri og einar Víglundsson verksmiðjustjóri klippa á borðann.