Vesturland - 28.02.2013, Blaðsíða 9
928. febrúar 2013
Hundurinn Píla vinnur fyrir matnum sínum:
Þefar upp meindýr
og gefur merki um
dvalarstað þeirra
Hundurinn Píla er enginn venjulegur hundur. Milli þess sem hún leikur sér og
hvílir lúin bein að hundasið þá fer hún
í vinnuna. Vinnan hennar snýst um að
finna meindýr, mýs og rottur í húsum
og hefur Píla einstakt nef fyrir þeim
hvimleiðu gestum.
Píla er tveggja ára blendingstík
af labrador og schäferkyni. Eigandi
hennar, Sigurður Ingi Sveinbjörnsson,
meindýraeyðir, ætlaði að þjálfa hana til
að finna geitungabú. Fljótlega kom í ljós
að Pílu var afar illa við geitungana og
þeim enn verra við hana svo það starf
var fljótlega gefið uppá bátinn.
Hæfileikar Pílu komu í ljós eitt sinn
þegar hún fékk að fylgja eiganda sínum
á vettvang þar sem talið er að mýs hefðu
hreiðrað um sig milli þilja en óvíst ná-
kvæmlega hvar. Hún þefaði bæli mús-
anna uppi með mikilli nákvæmni svo
ekki þurfti að rífa niður nema afar tak-
markaðan hluta af vegg til að ná mein-
dýrunum. Íbúar í viðkomandi húsi urðu
afar ánægðir með að sleppa svo billega
en oft þarf að rífa niður heilu veggina
til að útrýma vágestinum.
Píla finna mús
Í framhaldinu var Píla þjálfuð til að
bregðast við þeirri skipun að „finna
mús“. Þegar Píla kemur í hús og fer að
leita gengur hún afar skipulega til verks
og leitar kerfisbundið að músinni. Þegar
hún hefur fundið staðinn gefur hún
merki með því að klóra á staðinn með
ákafa og þá er hægt að hefjast handa.
Eigandi Pílu segir hana hafa alltaf
rétt fyrir sér. Margir séu tortryggnir í
upphafi en það rjátlist fljótt af mönnum
þegar árangurinn kemur í ljós. Hann
segir að mjög mikið sé af mús þennan
veturinn. Sjálfsagt hafi það eitthvað að
segja að síðasta sumar hafi verið afar
gott og hagstætt fyrir mýs sem skýri það
að stofninn fá því í sumar hafi verið
óvenju stór og mildur vetur sé kjörað-
stæður fyrir þær.
Píla fær alltaf harðfisk í verðlaun að
loknu góðu dagsverki sem er það allra
besta sem hún fær. Gildran var sett fyrir framan skápinn þar sem Píla krafstaði sem mest og gekk í gildruna innan skamms.
Píla leitar að mús í skúffum og skápum.