Vesturland - 28.02.2013, Síða 12
28. febrúar 201312
Marineraðar ólívur og hummus ásamt pítu-brauði er ein af hinum
heilögu þrenningum. Gott mál er að
marinera ólívurnar og geyma þær í
ísskáp í lokuðu íláti í tvo til þrjá daga
áður en á að nota þær. Önnur mar-
ineringin sem kölluð er chermoula
á einnig mjög vel við fisk, rækjur og
kjúkling.
Þetta eru uppskriftir frá Mið-Aust-
urlöndum og Norður-Afríku, löndum
eins og Marokkó, Túnis og fleirum.
Hummusinn læt ég fylgja með
svona í gamni, því hummus er svo
góður með ólívum og pítubrauði.
Ólívur, hummus, pítubrauð skorið í
bita og ískaldur bjór.....og allir glaðir!
Chermoula marinering
1/2 „preserved lemon“
(fæst í betri búðum)
3 hvítlauksgeirar
5 msk. steinselja
5 msk. kóríander
1/4 tsk. saffran þræðir
1 tsk paprikuduft
1/4 tsk. cayenne pipar
1/4 tsk. chiliduft
1/2 tsk. cumin
2-3 msk. sítrónusafi
1 1/2 dl. ólívuolía
Byrjið á því að taka kjötið úr sítrón-
unni, við notum það ekki, skolið börkinn
og þerrið og setjið í matvinnsluvél eða
notið töfrasprota. Setjið síðan restina út
í, olíuna síðast.
Harissa marinering
3 msk. paprikur, eldaðar (fást tilbúnar
í krukku)
2 tsk. harissa mauk (fæst einnig tilbúið)
3 hvítlauksrif, röspuð
1 1/2 dl. ólívuolía
Setið paprikumaukið í skál ásamt
harissa og röspuðum hvítlauk og að
síðustu olíuna og hrærið vel.
Marineringarnar passa fyrir 500 gr.
af ólívum.
Hummus
2 dósir kjúklingabaunir (skola þær vel)
1 msk. ljóst Tahini
maldon salt
pipar
1 lime (safinn)
1/2 hnefi ferskt kóríander
7 hvítlauksrif (eða eftir smekk)
1 1/2 msk. cumin
2 tsk. cayenne pipar
olía
Allt sett í matvinnsluvél. Hellið olíunni
út í á meðan þetta er að hrærast og hættið
þegar orðið er passlega þykkt. Smakkið,
mér finnst stundum þurfa meira salt.
Góða skemmtun!
Andrea Guðmundsdóttir,
matgæðingur í Lista-
háskóla Íslands býður
lesendum blaðsins uppá
forvitnilegar uppskriftir
frá öllum heimshornum.
túnis
Hér er á ferðinni einhver besta
varmadæla sem komið hefur fyrir
allt venjulegt húsnæði.
Þessi verðlaunaða varmadæla hitar t.d.
ofnaker, gólfhita og neysluvatn.
Getur notað vatn, jörð og sjó til
orkuöunar.
Allur búnaður innandyra.
NIBE F1245 eyðir litlu og sparar mikið.
NIBE frá Svíþjóð.
Stærstir í Evrópu í 60 ár.
W
NIBE™
F1245 |
Jarðvarmadæla
Ný kynslóð af varmadælum
Nýtt
Með NIBE F1245 getur þú lækkað húshitunarkostnað um allt að 85%
Er rafmagnsreikningurinn of hár?
Er þá ekki kominn tími til að við tölum saman?
FFriorka www.friorka.is 571 4774
NIBE™ F1245 Jarðvarmadæla
Rau
ðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 106.900
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 125.765
Meira en bara
blandari!
Grundafjarðar-
og Stykkishólmsbær:
Sameiginleg-
ur skipulags-
og bygginga-
fulltrúi
Bæjarstjórn í Stykkishólmi hefur samþykkt að ganga til samn-inga við Grundarfjarðarbæ um
sameiginlegan skipulags og byggingar-
fulltrúa. Fyrir liggja samningsdrög
um samstarfið og var bæjarstjóra
Stykkishólmsbæjar falið að ganga frá
samningi á grundvelli þeirra samnings-
draga. Með þessu samstarfi næst viss
hagræðing í rekstrarkostanði sveitar-
félaganna tveggja.
Ólívur og hummus!
Akranes:
Leikskólarnir
lokaðir í júlí
Fjölskylduráð hefur lagt til sama fyrirkomulag á sumarlokun og var á síðasta sumri. Þrír leik-
skólar munu loka í 5 vikur frá 1. júlí –
2. ágúst og opna að nýju þriðjudaginn
6. ágúst eftir verslunarmannahelgi.
Sumarskóli leikskólabarna verður í
þrjár vikur 1. - 19. júlí ef 20 börn eða
fleiri þurfa dvöl í hverri þessara þriggja
vikna.
Sumarið 2013 verður Garðasel
opinn þessar þrjár vikur ef nægur
fjöldi barna er og verður lokaður í
tvær vikur 22. júlí – 2. ágúst. Starfs-
fólk leikskólanna fjögurra mannar
þennan tíma og tekur fjöldi þeirra
mið af fjölda barna og einnig úr hvaða
leikskóla þau koma.
Könnun verður gerð meðal for-
eldra um sumarfrí barna þeirra og
einnig hvort og þá hvaða vikur í sum-
arskólanum foreldrar þurfa að nota.