Vesturland - 24.04.2013, Blaðsíða 10
10 24. apríl 2013
Belladonna á Facebook
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Við eigum allt
frá undirkjólum
til yfirhafna
Stærðir 40-58
Vertu þú sjálf- vertu
BELLA DONNA
M
á
lv
e
rk
:
K
a
ró
lí
n
a
L
á
ru
sd
ó
tt
ir
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n | S k i p h o l t 5 0 S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s
GJAFABRÉF - GJAFALISTAR
einstakt
eitthvað alveg
STOFNAÐ 1987
VA
XTALAUS
Meiri stöðugleiki – Bjartari Framtíð
Ég er í 7. sæti framboðslista Bjartrar framtíðar í norðvest-urkjödæmi. Ég ákvað að taka
sæti á listanum vegna þess að mig
langar að taka þátt í að breyta vinnu-
brögðum í stjórnmálum og íslensku
þjóðfélagi. Ég er gift, tveggja barna
móðir, grunnskólakennari að mennt
og er búsett í Borgarbyggð. Ég og
maðurinn minn erum bæði í vinnu.
Ég á ekki hús, ég á ekki nýjan bíl, ég
hef aldrei tekið mér lán fyrir nýjum
húsgögnum og ég fer ekki utanlands-
ferðir. Ég á tvo gamla bíla, gamalt hest-
hús og nokkra hesta. Ég skulda náms-
lánin mín og lítið lán fyrir hesthúsi.
Hvernig stendur á því að um hver
mánaðarmót duga tekjur okkar
tveggja varla til að reka heimilið. Af
hverju þarf það að vera svona dýrt að
lifa hér á landi. Eiga ekki tvær full-
orðnar manneskjur í fullri vinnu að
hafa það bara ágætt. Nú virðist sem
framundan sé allt óskaplega bjart því
nú er er kominn tími kosningaloforð-
anna. Allir tala um hvernig hægt er
að bjarga íslensku þjóðinni og það á
mjög auðveldan hátt. Ábyrgð þessara
frambjóðenda er mjög mikil. En hvað
þurfum við sem hér búum? Hvað er
það sem kæmi okkur best? Það sem
við þurfum er stöðugleiki. Við þurfum
að klára viðræðurnar við Evrópusam-
bandið því það verður aldrei sátt um
það að hætta ferlinu. Treystum borg-
urum þessa lands til að taka lýðræðis-
lega ákvörðun. Ef við náum góðum
samningi mun þjóðin samþykkja
hann í þjóðaratkvæðagreiðslu nú ef
ekki þá verður hann felldur. Að hafa
þetta mál hangandi yfir okkur skapar
aðeins sundrung og óstöðugleika. Til
að skapa stöðugleika þurfum við líka
að vinna saman, tala saman, en ekki
vera alltaf á móti hugmyndum sem
eru ekki komnar frá okkur sjálfum eða
okkar flokki. Það þarf samráð milli
ríkisstjórnar, Alþingis, sveitarfélag,
atvinnulífsins, launþega, fjármála-
geirans og svo má lengi telja. Fulltrúar
þessara aðila þurfa að setjast niður og
setja sér langtímamarkmið og ákveða
hvar umbóta er helst þörf. Þeir þurfa
að viða að sér öllu því besta sem lagt
er fram og framfylgja því ekki bara í
eitt kjörtímabil heldur til framtíðar.
Það minnkar óvissu okkar allra. Við
þurfum að nýta okkur alla þá krafta
sem býr i þjóðinni. Ég treysti Bjartri
framtíð mjög vel til þess að hlusta á
Íslendinga og vinna að framgangi
allra sem á Íslandi búa ekki síst lands-
byggðarfólksins. Björt framtíð vill
meiri stöðugleika, meiri sátt, minna
vesen og minni sóun. Settu X við A í
komandi kosningum þá verður fram-
tíð okkar allra bjartari.
Eva Símonardóttir
7. sæti á lista Bjartrar framtíðar
í Norðvesturkjördæmi
Karlakórinn Svanir á
Akranesi endurvakinn
Menningarlífinu á Akranesi hefur bæst verulegur liðss-styrkur þar sem karlakór-
inn Svanir, sem starfaði til fjölda ára
fyrr á árum hefur verið endurvakinn.
Bæjarráði Akraness barst nýlega styrk-
beiðni frá kórnum þar sem óskað er
eftir fjárstuðningi til starfsemi kórsins.
Bæjarráð samþykkti stofnstyrk að fjár-
hæð 200 þúsund krónur.
Á sama fundi bar styrkbeiðni frá Or-
lofsnefndar Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu þar sem óskað er fjárstuðnings
við orlof húsmæðra lögum samkvæmt.
Bæjarráð samþykkti að afgreiða erindið
með vísan til laga þar að lútandi.
Guðbjartur er góð fyrirmynd
Máltækið segir að maður komi í manns stað. Það getur oft verið gott, en líka verið
til mikils tjóns. Þar skiptir öllu hvert
mannvalið er. Allar horfur eru á að í
komandi kosningum verði miklar svipt-
ingar og margir nýir þingmenn taki sæti
á Alþingi. Öll viljum við góða fulltrúa
á þingi, en vissulega hafa þingmenn
unnið sér inn mismikla virðingu lands-
manna með framferði sínu. Kjósendur
hér í Norðvesturkjördæmi eiga margra
kosta völ, en ég held að á engan sé
hallað þó ég nefni Guðbjart Hannesson
fremstan þingmanna sem er bæði ötull
og vinnusamur með afbrigðum. Hann
gengur að hverju verkefni af áhuga og
yfirvegun, kynnir sér vel málavexti og
er tilbúinn til að hlusta á og taka tillit
til ólíkra sjónarmiða. Slíkir mannkostir
eru afar mikilvægir í átökum stjórnmál-
anna, þar sem oft verða upphlaup af litlu
tilefni. Þá er gott að búa yfir reynslu, viti
og þroska til að greina aðalatriðin frá
upphrópunum og áróðri.
Ég hef átt því láni að fagna að vinna
með Guðbjarti, bæði sem skólamaður
og einnig í sveitarstjórn. Það var mér
mikilvæg reynsla sem ég hef búið að í
mínum störfum.
Allir sem þekkja Guðbjart vita að
hann er traustur og góður maður,
hrapar ekki að ályktunum eða niður-
stöðum, en íhugar málavexti. Hann
sækist ekki eftir innihaldslausum
átökum, en er manna fúsastur til að
rökræða málin til niðurstöðu, en er
þó fastur fyrir. Hann er ekki fyrir
skyndilausnir, en leggur sig fram um
að koma málum heilum í höfn. Sterk-
asti þátturinn í skapgerð hans er þó
réttlætiskenndin. Óréttlæti þolir hann
ekki og sættir sig aldrei við.
Sendum rétt skilaboð
Kjósendur vilja væntanlega nýta ko-
sningarétt sinn til að auka virðingu
Alþingis sem mest. Þeir hljóta því að
standa þétt að baki þeim frambjóðanda
sem ávallt hefur sýnt í störfum sínum
ábyrgð, traust og heiðarleika. Allir
sem kjósa Samfylkinguna í Norðves-
turkjördæmi með Guðbjart Hannesson
þar í forystu senda ótvíræð og sterk
skilaboð inn á Alþingi um að þeir kun-
ni að meta þessa mannkosti hans og að
það geti orðið öðrum til eftirbreytni.
Sveinn Kristinsson
Sveinn Kristinsson.
páll Helgason hefur tekið við stjórn
karlakórsins Svana, en hann stjórnaði
m.a. karlakór Kjalnesinga við góðan
orðstí.
Eva Símonardóttir.
Auglýsingasíminn er 578 1190
Netfang: auglysingar@fotspor.is
www.fotspor.is