Vesturland - 28.11.2013, Blaðsíða 6
6 28. nóvember 2013
,,Þakklátur fyrir þetta tækifæri sem
mér hefur gefist í spennandi samfélagi“
- segir Páll Ágúst Ólafsson, verðandi sóknarprestur í Staðastaðaprestakalli
Páll Ágúst Ólafsson, guð-fræðingur, var 2. nóvember sl. kosinn sóknarprestur í
Staðastaðarprestkalli. Hann fékk
62 atkvæði af 203 sem voru greidd í
kjörinu en 286 voru á kjörskrá. Davíð
Þór Jónsson fékk 57 atkvæði, Arna-
ldur Máni Finnsson fékk 22 atkvæði,
Bára Friðriksdóttir fékk 18 atkvæði,
Ólöf Margrét Snorradóttir fékk 13
atkvæði, Ursula Árnadóttir fékk 12
atkvæði, Jóhanna Magnúsdóttir fékk
12 atkvæði, Elín Salóme Guðmunds-
dóttir fékk 4 atkvæði. Biskup Íslands
skipar í embættið til fimm ára, frá 1.
desember 2013. Páll Ágúst mun búa í
Reykjavík til vors þar sem fráfarandi
prestur, sr. Guðjón Skarphéðinsson býr
á Staðastað til vors. Vígsla Páls Ágústs
fer fram í Dómkirkjunni 8. desember
nk. kl. 14. Þrátt fyrir það mun hann
sinna öllum prestverkum sem til falla
í gleði og sorg, hefja fermingarfræðslu
og sinna sex sóknum og átta kirkjum
en auk þess sinnir hann héraðsprests-
skyldum í allt að 50% starfshlutfalli í
samráði við prófastinn, sr. Þorbjörn
Hlyn Árnason á Borg.
Páll Ágúst segir að það hafi verið
verulega skemmtilegt og lærdómsríkt
að taka þátt í þessari kosningabaráttu.
Það sem helst standi upp úr eru allar
heimsóknir á heimili í prestakallinu
sem hann fór í ásamt eiginkonunni,
Karen Lind Ólafsdóttur, og fengið tæki-
færi til þess að kynnast sóknarbörnum
og spjalla um það sem þeim lá á hjarta,
hvort sem það var samfélagið, vinnan,
félagslífið, kirkjan, tækifærin, gleðin,
vonbrigðin eða jafnvel allt þetta. Því
meira sem Páll Ágúst hefur dvalið í
prestakallinu og því oftar sem þau
hjónin leggja leið sína um Snæfells-
nesið finna þau hversu mikið þau vilja
og eru tilbúin til þess að setjast að á
Staðastað með börnum sínum og verða
hluti af samfélaginu sem þar er sem og
einnig í prestakallinu öllu.
Þakklátur fyrir
þetta tækifæri
Páll Ágúst segist vera ákaflega lánsamur
að hafa fengið þetta embætti, þakklátur
fyrir þetta tækifæri sem honum hafi
gefist í spennandi samfélagi. Prests-
embættum innan þjóðkirkjunnar hafi
fækkað á síðustu árum og margir sæki
um hvert brauð sem losnar. Hann telur
það afar jákvætt að fólk fái að velja prest
í beinni kosningu.
Páll Ágúst er fæddur 26. febrúar
1983 í Reykjavík og ólst þar upp,
syðst við Bergstaðastrætið, á heimili
foreldra sinna, dr. Ólafs Ísleifssonar,
hagfræðings, og Daggar Pálsdóttur,
lögfræðings. Páll Ágúst gekk í Ísaks-
skóla, Miðbæjarskólann, Hlíðaskóla
og Hagaskóla, stundaði nám við MR en
lauk stúdentsprófi frá MH 2002 og lauk
vorið 2003 enskunámi fyrir erlenda
stúdenta í Georgetown University í
Washington DC í Bandaríkjunum
og síðan BA-prófi í lögfræði 2006 og
meistaraprófi 2008. Páll Ágúst segist
fljótlega hafa áttað sig á því að áhugi
hans lá ekki þar og fór í guðfræði-
nám, lauk BA-prófi í guðfræði 2011
og meistaraprófi 2013. Eiginkona Páls
Ágústs er Karen Lind Ólafsdóttir, sem
áformar að ljúka meistaraprófi í guð-
fræði vorið 2014. Hún stundaði nám
í hjúkrun í Bretlandi 2003-2005 og
lauk BA-prófi í guðfræði 2012. Dætur
Páls Ágústs og Karenar Lindar eru
Þórhildur Katrín fædd 2007 og Dögg
fædd 2012 en þriðja barnið fæðist í
apríl 2014, ef Guð lofar.
Lærði á píanó
,,Ástæða þess að ég ákvað að ljúka
embættisprófi í guðfræði eftir að hafa
lokið embættisprófi í lögfræði er ein-
lægur áhugi minn á að gera störf á
vettvangi þjóðkirkjunnar að lífsstarfi
mínu og þjóna með því Jesú Kristi í
lífi og starfi. Það er bjargföst sann-
færing mín að innri köllun mín sé að
þjóna sem prestur Guði og mönnum.
Kirkjustarf var mér ekki fjarlægt, ég
tók um árabil þátt barna- og unglinga-
starfi í Hallgrímskirkju, sá sjálfur um
slíkt í nokkur ár frá 15 ára aldri og
starfaði við sumarbúðirnar í Vatna-
skógi. Sennilega hefur þetta blundað
í mér alla tíð. Í dag starfa ég sem fram-
kvæmdastjóri Háteigskirkju og í því
starfi hef ég séð um að skipuleggja og
annast umfangsmikið og fjölbreytt
safnaðarstarf fyrir börn og unglinga,
fræðslu fyrir fullorðna og samverur
fyrir eldri borgara ásamt helgihaldi
fyrir unga sem aldna.
Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á
tónlist. Ég lærði á píanó í einkatímum í
9 ár, fyrst hjá Önnu Þorgrímsdóttur og
síðan hjá Ingu Ástu Hafstein en ég lauk
6. stigi í píanónámi. Einnig kenndi ég
sjálfum mér á gítar. Auk þess er ég mik-
ill söngmaður og er þaulvanur undir-
leik á bæði píanó og gítar við hvers
kyns tilefni. Ungur var ég í barnakór
Hallgrímskirkju en einnig var ég í kór
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Mér þykir ánægjulegt og fróðlegt
að langalangafi minn, sr. Oddgeir
Þórðarson Guðmundsen, þjónaði
Miklaholtsprestakalli á árunum 1882
til 1886 áður en hann fór með viðkomu
um þriggja ára skeið í Kálfholti til
Vestmannaeyja þar sem hann þjónaði
með sæmdarbrag í aldarþriðjung. Við
embætti hans í Miklaholti tók sr. Árni
Þórarinsson, sá landsfrægi prestur sem
Þórbergur Þórðarson ritaði sögu af í
sex bindum, og síðar hafa verið hér
merkisprestar,” segir Páll Ágúst sem
segir að með nýjum presti komi ekki
miklar breytingar á safnaðarstarfinu,
og einnig sé hefð um helgihaldið. ,,Ég
vil hins vegar að fólk viti að Guði sé
annt um það og ég vil eftir megni efla
samveru sóknarbarnanna, ekki bara
í kirkjunni og ég vil efla fjölskyldu-
samveru. Við hjónin berum ábyrgð í
okkar starfi og leitumst við að fræða
eftir bestu getu. Við viljum verða virkir
þátttakendur í samfélaginu. Í sveitinni
er fólk líka meira tilbúið til að hjálpa
ef á bjátar, kannski meira en í þétt-
býlinu, bóndinn á næsta bæ kemur
ótilkvaddur til að mjólka ef veikindi
steðja að eða ef þarf að létta undir með
öðrum hætti, þetta er samfélagslegur
þroski og falleg hugsun,”! segir Páll
Ágúst Ólafsson.
Rjómabúið Erpsstaðir framleiðir ýmiskonar ljúfmeti
sem hentar í eftirrétti eða bara sem ábætir milli mála
Ljúffengur rjómaís margar bragðtegundir • Skyrkonfekt og gómsætir ostar
Einnig hið rómaða gamaldags skyr sem hentar vel í ostakökur og deserta
Njótið jólanna
Gleðileg Jól
Gerum okkur
glaðan dag um jólin
Rjómabúið Erpsstöðum • erpsstaðir.is • rjomabu@simnet.is • 868 0357
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Páll Ágúst ólafsson.
Prestsetrið á Staðastað.
Auglýsingasíminn er 578 1190
Netfang: auglysingar@fotspor.is
Fjölbrautaskóli Vesturlands
Frestur til að sækja um nám í dagskóla á vorönn 2014 hefur
verið framlengdur til 6. desember.
Einnig er opið fyrir umsóknir um helgarnám í húsasmíði.
Enn eru nokkur pláss laus á heimavist skólans.
Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans og á skrifstofu.
Fjölbrautaskóli Vesturlands Sími: 433-2500
Vogabraut 5 Heimasíða: http: www.fva.is
300 Akranesi Tölvupóstur: skrifstofa@fva.is