Vesturland - 28.11.2013, Qupperneq 14
14 28. nóvember 2013
www.bbkeflavik.com
Aðeins 8.500 kr. fyrir tveggja manna herbergi!
Gistihús Keflavíkur · Keflavíkurflugvelli · Valhallarbraut 761 · 235 Reykjanesbæ
Sími 426 5000 · gistihus@internet.is
Láttu fara vel um þig nóttina fyrir eða eftir flug og gistu hjá okkur.
Þú geymir bílinn þinn hjá okkur, við keyrum þig upp á á flugvöll
og sækjum þig aftur þér að kostnaðarlausu..
Ertu á leiðinni til eða frá landinu?
Morgunverður er innifalinn
Þráðlaus nettenging
Rúmgóð herbergi með gervihnatta-
sjónvarpi og baði
Því ekki að byrja eða enda fríið í Bláa
Lóninu, aðeins um 15 mín. akstur frá
okkur, eða skoða Víkingasafnið, gamla
hervöllinn og Reykjanesið?
Við erum vel staðsett til að njóta alls
þess sem Reykjanesið hefur upp á að
bjóða. Tilvalið fyrir hvataferðir, fundi eða
rómantískar stundir.
Gott verð! Gildir til 1. maí 2014.
Dominosdeild kvenna:
Snæfell vann öruggan
sigur á Hamri
Snæfell tók á móti Hamri í Hvera-gerði í Dominosdeild kvenna sl. sunnudag í Stykkishólmi og
vann öruggan sigur,88: 58. Stigahæst
í liði Snæfells var Chynna Unique
Brown með 24 stig, tók 7 fráköst og
stal boltanum 8 sinnum frá leikmanni
Hamars. Eva Margrét Kristjánsdóttir
skoraði 16 stig og tók 5 fráköst, Guð-
rún Gróa Þorsteinsdóttir skoraði 14
stig og tók 5 fráköst, og fyrirliðinn
Hildur Sigurðardóttir skoraði 10 stig,
tók 8 fráköst og átti hvorki meira né
minna en 12 stoðsendingar. Stiga-
hæst í liði Hamars var Fanney Lind
Guðmundsdóttir með 18 stig og 12
fráköst.
Næsti leikur Snæfellskvenna er
gegn Njarðvík næsta sunnudag og
er leikið í Njarðvík. Síðan kemur
hörkuleikur í Hólminum miðviku-
daginn 27. nóvember nk. gegn KR.
Snæfell tók ÍR-inga létt
Snæfell fór í Breiðholtið fyrir viku síðan og spilaði við ÍR í Hertz-hellinum í Dominosdeild karla.
Snæfell vann öruggan sigur,110: 77 en
í hálfleik hafði liðið skorað 65 stig sem
er með því mesta sem þekkist. Sigurinn
var aldrei í hættu eins og stigaskorunin
gefur til kynna, en varnarleikur ÍR var
í algjörum molum.
Stigahæstir Hólmara var Vance
Cooksey 30 með 30 stig og átti 7
stoðsendingar og Jón Ólafur Jónsson
sem einnig skoraði 30 stig og tók 9
fráköst. Stigaskorun Snæfells skiptist á
9 leikmenn, sem lofar vissulega góðu
með framhaldið. Stigahæstur ÍR-inga
var fyrirliðinn Sveinbjörn Claessen með
21 stig, tók 4 fráköst og varði 3 skot.
Næsti leikur Snæfells er gegn Val
í kvöld,21. nóvember, og er í Stykk-
ishólmi, en heimavöllurinn gengur
stundum undir nafninu Fjárhúsið,
hvaðan sem það nafn er komið. Síðan
er aftur heimaleikur 28. nóvember,
gegn Stjörnunni.
Skallagrímur lá fyrir
Kefalvík
Skallagrímur lék sama dag gegn
Keflavík á heimavelli, og tapaði 67:
96 gegn sterku liði Keflavíkur. Stiga-
hæstur í liði Skallagríms var Grétar
Ingi Erlendsson með 19 stig og 12
fráköst, Egill Egilsson var með 18 stig
og 4 fráköst og Orri Jónsson skoraði
12 stig, átti 9 stoðsendingar og stal
boltanum 6 sinnum af andstæðingi. Í
liði Keflavíkur var Darrel Keith Lewis
stigahæstur með 20 stig.
Næsti leikur Skallagríms er
heimaleikur í Fjósinu gegn Þór Þor-
lákshöfn 25. nóvember og síðan leikur
gegn Val í Vodafonehöllinni á Hlíðar-
enda 28. nóvember nk.
ÍA vann Hött
Í 1. deild karla lék ÍA við Hött frá Eg-
ilsstöðum og vann sigur,11: 109, eftir
framlengdan leik að loknum venju-
legum leiktíma var staðan 97: 97 og
allt á suðupunkti á Skaganum. Zachary
Jamarco Warren skoraði 40% stiga
Skagamanna í leiknum, eða 44 stig, tók
6 fráköst og áttu 7 stoðsendingar, Áskell
Jónsson skoraði 26 stig, tók 5 fráköst og
stal 7 boltum frá andstæðingi.
Næsti leikur ÍA er gegn Tinda-
stóli í íþróttahúsinu á Sauðárkróki á
morgun,22. nóvember og síðan gegn
Breiðabliki á heimavelli á Akranesi 6.
desember nk.
Hvalfjörðurinn var ákjós-
anlegt lægi fyrir herskip
Hernám Íslands eða her-námsárin var það tímabil í sögu Íslands þegar landið
var hernumið í síðari heimsstyrjöld,
fyrst af Bretum árið 1940 og síðan
tóku Bandaríkjamenn við. Ekki kom
til átaka vegna hernámsins enda voru
Íslendingar hliðhollir bandamönnum
í stríðinu. Eftir stríðið gerði ríkisstjórn
Íslands varnarsamning við Bandaríkja-
menn og gekk í NATO árið 1949. Ís-
land var hernumið vegna þess að landið
var talið hafa hernaðarlegt mikilvægi.
Á Norður-Atlantshafi geysaði ótak-
markaður kafbátahernaður og miklar
orrustur voru háðar á sjó kringum
landið, úti eins og til dæmis Orrustan
við Grænlandssund þann 24. maí 1941.
Þegar Bretar hernámu Ísland aðfara-
nótt 10. maí 1940 voru átta mánuðir frá
því að heimsstyrjöldin síðari hófst og á
þeim tíma höfðu Þjóðverjar hernumið
hluta Póllands og síðan Danmörku og
Noreg. Ljóst var að innrás vofði yfir
Frakklandi, Belgíu og Hollandi og
raunar réðust Þjóðverjar inn í Belgíu,
Holland og Lúxemborg sama dag og
Ísland var hernumið. Hernám Breta
var til að koma í veg fyrir að Ísland
félli undir þýsk yfirráð en Þjóðverjar
höfðu sýnt landinu töluverðan áhuga á
árunum fyrir styrjöldina vegna hernað-
arlegs mikilvægis þess í tengslum við
siglingar um Norður-Atlantshaf. Ísland
hafði lýst yfir hlutleysi og ríkisstjórnin
mótmælti hernáminu og neitaði að
ganga formlega til liðs við Bandamenn.
Þann 28. maí 1941 ákvað Roosevelt,
forseti Bandaríkjanna, að Bandaríkin
skyldu taka við hervörslu Íslands.
Stundum er vitnað til þessa tímabils
sem „blessað stríðið“ því hernám Breta
og svo yfirtaka Bandaríkjanna var það
sem kom Íslandi upp úr kreppunni og
atvinnuleysinu sem ríkt hafði á Íslandi
frá því heimskreppan skall á.
Helga Hjördís björgvinsdóttir skoraði 5 stig gegn Hamri og tók 6 fráköst.
Hermannabraggarnir í Hvalfirði gegna nú öðru hlutverki en á stríðsárunum,
en er haldið vel við, a.m.k. að utan.
Frá leik Snæfells og Ír í Hertz-höllinni í Seljaskóla. Skot sem rataði rétta leið.
Sveinn Arnar Davíðsson gætir andstæðingsins vel.
vance Cooksey átti fínan lék og lék
vörn Ír oft grátt.