Vesturland - 19.12.2013, Qupperneq 1
einstakt
eitthvað alveg
einstakar gjafir fyrir
einstök tækifæri
handa einstöku fólki
www.gallerilist.isSkipholt 50A • sími: 581 4020
www.gallerilist.is
19. desember 2013
12. tölublað 2. árgangur UMHVERFISVOTTUÐ PRENTUN
Nemendur Grunnskóla Snæfellsbæjar
með bókaveislu á aðventunni
Nemendur Grunnskóla Snæfells-bæjar voru með bókaveislu á aðventunni og fór hún fram í
félagsheimilinu Klifi. Bókaveislan er eitt
af átthagafræði verkefnum 10. bekkjar.
Lista- og menningarnefnd og Snæfells-
bær styrktu verkefnið og blómabúðin
Blómaverk gaf rósir handa höfundunum.
Á bókaveislunni lásu höfundar upp úr ný-
útkomnum bókum sínum, en 10. bekk-
ingar kynntu höfunda og seldu veitingar
í hléi, til fjáröflunar fyrir útskriftarferð
sína að vori. Þau Hlöðver Smári, Nína
Marín og Lilja Sæbjörg, nemendur í 10.
bekk spiluðu og sungu fyrir gesti í hléinu.
Rithöfundarnir sem komu voru Guðni
Ágústsson, Sif Sigmarsdóttir, Stefán Máni
Sigþórsson og Vigdís Grímsdóttir.
Í Grunnskóla Snæfellsbæjar eru um 250
nemendur, í 5 – 10. bekk í Ólafsvík, í 1. – 4.
bekk á Hellissandi og svo eru á annan tug
nemenda á Lýsuhóli sem einnig tilheyrir
Grunnskóla Snæfellsbæjar.
Nemendur í 5. bekk ásamt kennara með póstkassa sem þau útbúa sjálf. Kassinn stendur svo framan við stofunna þeirra þannig
að þeir sem vilja senda með jólakort setja þau í kassann. Þessi skemmtilegi siður hefur lengi verið við lýði.
Gleðileg jól til þeirra sem
um þessa dyr fara.