Reykjanes - 21.03.2013, Page 4
4 21. mars 2013
Ragnheiður Elín Árnadóttir 1. sæti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
Það Þarf aðgerðir núna
Að undanförnu hefur verið mjög hart sótt að Sjálfstæð-isflokknum og rætt um að
boðaðar skattalækkanir væru ekki
raunhæfar. Sjálfstæðisflokkurinn gæti
ekki staðið við þær. Flokkurinn væri
orðinn öfgaflokkur til hægri og því
eðlilegt að miðjumenn í stjórnmálum
leituðu til annarra flokka t. d. Fram-
sóknarflokksins.
Reykjanes leitaði til Ragnheiðar El-
ínar Árnadóttur oddvita Sjálfstæðis-
flokksins í kjördæminu. Hverju svarar
þú þessum áróðri.
Það er ekki nýtt að pólitískir and-
stæðingar Sjálfstæðisflokksins reyni
að setja ranga merkimiða á flokkinn
og reyni að staðsetja hann og skilgreina
með öðrum hætti en rétt er. Sjálfstæðis-
flokkurinn leggur sem fyrr hina sígildu
sjálfstæðisstefnu til grundvallar þar
sem leiðarljósið er frelsi einstaklingsins
til orða og athafna. Sjálfsstæðisstefnan
á ekkert skylt við öfga, er umburðar-
lynd og víðsýn og því vísa ég slíkum
málflutningi beint til föðurhúsanna.
Hægt að hrinda strax í
framkvæmd
Í þágu heimilanna var yfirskrift Lands-
fundar. Margir hafa reynt að gera lítið
úr þessu og segja ekki vera bent á nein-
ar raunhæfar leiðir. Er þetta bara allt í
plati hjá ykkur?
Nei svo sannarlega ekki – þvert á
móti og ég hvet þá sem þessu halda
fram til að kynna sér tillögurnar bet-
ur. Okkar úrlausnir að skuldavanda
heimilanna eru ekki bara raunhæfar
heldur hafa þær þann kost að þeim er
flestum hægt að hrinda strax í fram-
kvæmd. Heimilin hafa ekki tíma til
þess að bíða eftir niðurstöðum nefnda
sem engin veit hverju skila. Það þarf
aðgerðir núna.
Það vill stundum gleymast að vandi
fjölmargra íslenskra heimila er ekki
eingöngu skuldavandi, heldur einnig
greiðsluvandi, og taka okkar úrlausn-
ir mið af þeim veruleika. Þær munu
lækka skuldir og auka ráðstöfunartekj-
ur, og það sem skiptir ekki minnstu
máli, að styrkja stöðu skuldsettra heim-
ila gagnvart lánastofnum.
Okkar aðgerðir munu gera heimilum
kleift að lækka höfuðstól meðalhús-
næðisláns um 15 til 20% með raun-
hæfum leiðum. Með lækkun skatta
og einföldun skattkerfisins munu
ráðstöfunartekjur heimilanna aukast
jafnframt því sem lækkun tryggingar-
gjalds á fyrirtæki mun gera þeim kleift
að ráða til sín fólk og greiða hærri laun.
Þannig munu aukin umsvif í efnahags-
lífinu leiða til aukinna skatttekna rík-
issjóðs.
Með því að gera fólki með yfirskuld-
sett húsnæði tækifæri á því að skila
lyklunum fær það ekki aðeins tækifæri
til þess að byrja uppá nýtt án gjaldþrots,
heldur styrkir það samningsstöðu
þessa fólks gagnvart fjármálastofn-
unum. Afnám stimpilgjalds mun að
sama skapi styrkja stöðu heimilanna
gagnvart fjámálastofnunum og auka
samkeppni á lánamarkaði. Auk þess
muna það auðvelda fólki að skipta yfir
í óverðtryggð lán óski það þess, en við
munum stefna að því að verðtryggð
lán verði í framtíðinni undantekning
frekar en regla eins og nú er.
Lykillinn að öllum aðgerðum í þágu
heimilanna er aukin verðmætasköpun
í þjóðfélaginu og rétt forgangsröðun
verkefna og fjármuna ríkisins. Sjálf-
stæðismenn hafa skilning á því að verð-
mætasköpunin á sér ekki stað í vösum
landsmanna eins og margir vinstri-
menn halda heldur úti í þjóðfélaginu.
Þar eru tækifærin–þar er verk að vinna
og þá vinnu eiga stjórnvöld ekki að gera
erfiðari, eins og núverandi stjórnvöld
hafa gert, heldur að auðvelda. Það mun
Sjálfstæðisflokkurinn gera.
Þjóðarinnar að ákveða
Var samþykkt Landsfundar gegn ESB
að hætta ætti viðræðum of hörð? Er
Sjálfstæðisflokkurinn að segja við ESB-
sinna innan flokksins: “Farið þið bara
í annan flokk . “
Evrópumálin eru aðeins eitt af fjöl-
mörgum viðfangsefnum stjórnmál-
anna og að mínu mati fjarri því að vera
þau mikilvægustu um þessar mundir.
Fjármál heimilanna og uppbygging
atvinnulífsins á að vera í forgangi.
Engin grundvallarbreyting varð á af-
stöðu flokksins til aðildar að Evrópu-
sambandinu á landsfundinum–Sjálf-
stæðisflokkurinn telur að hagsmunum
Íslands sé betur borgið með því að
standa fyrir utan Evrópusambandið.
Á landsfundinum var sú afstaða áréttuð
og ítrekað að það væri þjóðarinnar að
ákveða í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort
viðræðum skyldi haldið áfram. Við
treystum þjóðinni til að taka afstöðu
til þess á grundvelli þeirra upplýsingar
sem liggja fyrir nú þegar eftir margra
ára aðildarviðræður. Verði niðurstaða
þeirra kosninga að aðildarviðræðum
skuli haldið áfram verður það að sjálf-
sögðu gert og þjóðinni á endanum leyft
að kjósa um hinn eiginlega samning.
Það skortir nefnilega ekki upplýs-
ingar – það sem stendur ESB málinu
helst fyrir þrifum er skortur á um-
boði. Við vöruðum við því á sínum
tíma að hafnar yrðu aðildarviðræður
við ESB án þess að ákvörðun um að
óska eftir aðild væri tekin á grundvelli
breiðrar samstöðu í samfélaginu og án
þess að skýr samningsmarkmið lægju
fyrir. Viðræðurnar eru því í ógöng-
um á ábyrgð klofinnar ríkisstjórnar til
málsins.
Það er að sjálfsögðu pláss fyrir fólk
með ólíka afstöðu til þessa máls í Sjálf-
stæðisflokknum og ég tel landsfundar-
ályktun okkar ekki breyta neinu hvað
það varðar. Menn hafa gagnrýnt það að
Sjálfstæðisflokkurinn sé að álykta um
að loka beri sendiskrifstofu ESB hér á
landi og ég get tekið undir þá gagnrýni.
Sjálfstæðisflokkurinn fái
góða kosningu
-Hefur þú trú á að Sjálfstæðisflokkurinn
nái til kjósenda með sín stefnumál?
Já tvímælalaust. Það er einfald-
lega verkefni okkar næstu 40 daga að
tryggja að svo verði því hér fara í hönd
einhverjar þær mikilvægustu kosningar
okkar tíma. Það þarf að skipta um vakt
í stjórnarráðinu og breyta forgangs-
röðinni. Sjálfstæðisflokkurinn leggur
áherslu á að forgangsröðunin verði
í þágu heimilanna og atvinnulífsins.
Eina tryggingin fyrir því að ekki verði
hér áframhaldandi vinstri stjórn er að
Sjálfstæðisflokkurinn fái góða kosn-
inginu og verði leiddur til öndvegis.
Stefna Sjálfstæðisflokksins er skyn-
söm og skýr. Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur, eins og ég hef rakið hér að ofan, lagt
fram raunhæfar tillögur um hvernig
hægt er að styrkja stöðu heimilanna,
bæði í gegnum skattkerfið og með því
að auka samkeppni á íbúðalánamark-
aði. Tillögurnar eru með þeim hætti
að staða heimilanna í landinu eflist til
muna.
Eitt mikilvægasta viðfangsefni
stjórnmálamanna á næsta kjörtímabili
verður einnig að hlúa þannig að at-
vinnulífinu að það nái að blómstra og
dafna. Í því felst meðal annars að koma
í framkvæmd raunhæfri áætlun um
afnám gjaldeyrishafta og nýta tækifæri
í orkuauðlindum með ábyrgum hætti
til hagsbóta fyrir alla. Sífelldar skatta-
breytingar ganga ekki upp og ljóst að
ofan af þeim verður að vinda. Það er
afar mikilvægt að gefa atvinnulífinu
frið til að skapa fleiri en ekki síður
fjölbreyttari störf.
Bæta hag og
kjör eldri borgara
Ég hef heyrt í mörgum eldri borgurum,
sem eru mjög undrandi á hvernig hin
norræna velferðarstjórn hefur hagað
sér gagnvart þeim. Við hverju mega
eldri borgarar búast, komist Sjálfstæð-
isflokkurinn í forystu ríkisstjórnar?
Málefni eldri borgara voru í sérstök-
um forgrunni á landsfundi Sjálfstæð-
isflokksins og liggja ítarlegar ályktanir
fyrir um aðgerðir í þeirra þágu. Brýn-
asta verkefnið er að draga nú þegar til
baka þær skerðingar sem ríkisstjórn
Jóhönnu Sigurðardóttir lögfesti strax
vorið 2009 og áttu einungis að vera til
eins árs. Við höfum þegar lagt fram
frumvarp á Alþingi þess efnis og er
Ólöf Nordal flutningsmaður að því.
Um er að ræða fyrsta skrefið í því að
rétta hlut ellilífeyrisþega.
Við leggjum áherslu á rétt aldraðra,
sem allra landsmanna, til þess að
njóta bestu fáanlegu heilbrigðisþjón-
ustu, óháð efnahag. Landsfundurinn
tók undir kröfu kjaramálanefndar
Landssambands eldri borgara um að
svokallað vasapeningafyrirkomulag
verði afnumið og að tafarlaust verði að
hækka þær greiðslur sem einstaklingar
á dvalar- og hjúkrunarheimilum hafa
til ráðstöfunar.
Nauðsynlegt er að endurskoða bætur
almannatrygginga í heild sinni út frá
þeirri grunnforsendu, að um leið og
öllum séu tryggðar lágmarkstekjur til
lífsviðurværis verði að gæta þess, að
ekki sé dregið úr hvatanum til sjálfs-
bjargar og möguleikum aldraðra og
öryrkja til að bæta kjör sín. Það er
frumréttur einstaklingsins sem ekki
má ganga gegn.
Allt eru þetta breytingar sem vinna
að því að bæta kjör og hag eldri borg-
ara.
Við munum vinna með
atvinnulífinu
Hverju mun það breyta fyrir íbúa
Suðurnesja ef Sjálfstæðisflokkurinn
kemst í forystu ríkisstjórnar eftir kosn-
ingarnar 27. apríl n. k.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu
á þrjú atriði í komandi kosningabar-
áttu – aðgerðir í þágu heimilanna,
einföldun og lækkun skatta og upp-
byggingu atvinnulífsins. Þetta eru for-
gangsmál okkar og þetta eru þau mál
sem ég veit og finn að brenna mest
á Suðurnesjamönnum. Við munum
vinna með atvinnulífinu en ekki gegn
því, við tökum fagnandi á móti fjár-
festingu og erum einsett í því að nýta
öll þau fjölmörgu tækifæri sem hér
eru til atvinnusköpunar. Við sættum
okkur ekki lengur við stöðnun og frost
í atvinnumálum, besta dæmið blasir
við okkur hér–álverið í Helguvík hefur
staðið hálfklárað of lengi og ég vil sjá
það fara í gang sem fyrst.
Á nýrri vakt á að forgangsraða rétt,
bæði verkefnum og fjármunum. Byrj-
um á brýnu, áríðandi og aðkallandi
verkefnunum í þágu heimilana og fyr-
irtækjanna í landinu – og látum annað
bíða betri tíma.
Það kemur Suðurnesjamönnum og
landsmönnum öllum best.
Þessa flottu mynd tók Guðmundur magnússon við Gufuskála í Leirunni