Reykjanes - 21.03.2013, Blaðsíða 12
21. mars 201312
Auglýsing
um skipulagsmál
í Grindavík
Viðbót við auglýsingu sem birtist 1. mars 2013, útgáfunúm-
er 2013004349, en þar er kynnt tillaga að breytingu á aðal-
skipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030 vegna fráveitu frá Svarts-
engi í Grindavík ásamt umhverfisskýrslu, í samræmi við 31. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Við yfirferð skipulagstillögunnar gerði Skipulagsstofnun
athugasemd. Bæjarstjórn hefur þegar brugðist við henni en með
þessari auglýsingu er vakin athygli á að athugasemd Skipulags-
stofnunar mun liggja frammi með tillögunni á bæjarskrifstofum
Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62 í Grindavík, á vef bæjarins
www.grindavik.is og hjá Skipulagsstofnun.
Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skrif-
lega til forstöðumanns tæknideildar Grindavíkurbæjar eigi síðar
en 12. apríl 2013.
Grindavík 14. mars 2013,
Ingvar Þ. Gunnlaugsson,
sviðsstjóri skipulags- og
umhverfissviðs.
alhliða bílaÞjón-
usta hjá laghentum
Í nóvember fyrir þremur árum hófu Laghentir við Iðjustíg 1 C í Reykjanesbæ starfsemi sína. Lag-
hentir annast allar viðgerðir á bílum.
Smurþjónusta, bílaviðgerðir, dekkja-
þjónusta eða allt frá a til ö sem snertir
bílinn.
Við hittum á dögunum eigandann
Guðmund Frey Valgeirsson. Hann
sagði viðskiptin dafna vel. Bíleigend-
ur kynnu vel að meta þeirra ágætu
þjónustu. Laghentir bjóða upp á mjög
hagstætt tímagjald. Hægt er að fá upp-
gefið fast verð í viðgerðir bílsins. Lag-
hentir eru með stóran lager hjá sér til
að geta sem best sinnt bílunum. Að
auki bjóða svo laghentir uppá bíla-
flutningakerru til leigu. Eins sjá þeir
um bílaflutninga hvert sem er, hvar
sem þú ert.
Hér á myndinni er Guðmundur með
starfsmönnum sínum þeim Haraldi
og Mariusz.
kísill sem fæðubót
Meðal þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref sem frumkvöðlar í Eldey
frumkvöðlasetri á Ásbrú eru Fida
Abu Libdeh og Burkni Pálsson en
þau stofnuðu á síðasta ári fyrirtækið
geoSilica í framhaldi af lokaverkefnum
beggja við tæknifræðinám hjá Keili.
Fyrirtækið, sem mun sérhæfa sig í
vinnslu á kísil sem næringarefnis,
fékk í haust styrk frá Tækniþróunar-
sjóði sem tryggir því rekstur næstu
þrjú árin.
Lokaverkefni Burkna fjallaði um
aðferðir við hreinsun kísils sem fell-
ur út úr heitum jarðsjó við kólnun,
en Fida rannsakaði áhrif kísils sem
næringarefnis og m. a. hvernig hann
virkar á bakteríur. Þar kom í ljós að
kísillinn hefur hemjandi áhrif á bakt-
eríur en áður hafði verið talið að saltið
í heitum sjó væri orsakavaldurinn. Þó
ekki sé enn vitað hvað það er í kísl-
inum sem veldur þessari virkni þá er
ljóst að hann býr yfir sömu eiginleik-
um og mörg sótthreinsandi efni. Þegar
Fida fór að ræða við Burkna um kísil
sem næringar- og fæðubótarefni og
hve mikil verðmæti væru í hreinum
kísil, komu þau fljótt auga á möguleik-
ana sem felast í vinnslu kísils úr af-
fallsvatni jarðhitavirkjana á svæðinu.
Vatnið frá þessum virkjunum rennur
nú óhindrað í sjó eða er dælt aftur
niður í jörðina án þess að nokkur sé
að nýta það. Álitlegasti kosturinn var
vatn frá Hellisheiði vegna efnasam-
setningar þess. Þau settu sig í samband
við Orkuveitu Reykjavíkur sem sýndu
verkefninu strax mikinn áhuga þar
sem um var að ræða nýtingu á vatni
sem þeir þurfa að hafa mikið fyrir
að losa sig við. Í kjölfarið fengu þau
viljayfirlýsingu frá OR um samstarf
og að þau fái að nýta affallsvatn frá
Hellisheiðarvirkjun að vild. Til við-
bótar fá þau að nýta afgangs varma
frá virkjuninni við að forvinna vatnið
áður en það er flutt á vinnslustað.
Algjör nýjung
„Þessi aðferð við kísilvinnslu er algjör
nýjung og skapar okkur hjá geoSilica
mikla sérstöðu, þar sem hvergi annars
staðar í heiminum er verið að hreinsa
kísil á náttúrulegan hátt. " segir Burkni.
Venjan hafi hingað til verið að nota
ýmis efnasambönd til að vinna kísil úr
jarðvegi og bergi. Fida segir að menn
séu fyrst núna að átta sig á þessum
undraverðu eiginleikum kísils sem
fæðubótaefnis á líkamann og ekki síður
til útlosunar óæskilegra efna sem hlað-
ast upp í líkamanum. Einnig er talið að
kísill geti komið í veg fyrir ýmis önnur
vandamál s. s. beinþynningu og mjög
sennilegt að fleiri kostir efnisins komi
í ljós fyrr en síðar.
Fyrsti
starfsmaðurinn ráðinn
Fyrirtækið hefur síðan í haust leigt
aðstöðu hjá Eldey frumkvöðlasetri
og þar er nú verið að leggja lokahönd
á standsetningu iðnaðarrýmis fyrir
starfsemina. Fyrsti starfsmaðurinn
hefur verið ráðinn en það er Hanna
Ragnheiður Ingadóttir sem mun sinna
verkefnastjórn í vöruþróun. Fyrsta
vörutegundin, fæðubótarefni úr kísil,
er nú á prófunarstigi og eru þau nú
þegar með aðra vöru á teikniborðinu
en það er steinefnaríkur næringar-
drykkur. Fida og Burkni segjast finna
fyrir miklum meðbyr hjá fyrirtækj-
um og einstaklingum á svæðinu og
eru mjög þakklát fyrir allan stuðning
sem þau hafa fengið við fyrstu skref-
in. Og þó svo að vatnið sé aðfengið
sé stefna geoSilica að hafa starfsem-
ina á Reykjanesi, leita ekki langt yfir
skammt og nýta alla þá þjónustu sem
svæðið hefur upp á að bjóða. Framund-
an er standsetning vinnslulínu sam-
hliða vöruþróun og markaðssetningu
á netinu þar sem sigtað er á stærstu
söluaðilana. Markmiðið er svo að vera
komin af stað með framleiðslu á árinu
og fyrstu vöruna í sölu á seinni hluta
þessa árs. (Heimasíða Kadeco)
Í Grindavíkurbæ eru 13 einbýlishús, 5 parhús og
atvinnuhúsnæði í byggingu og töluverð eftir-
spurn eftir lóðum.
Dæmi um lausar lóðir:
Einbýlishúsalóðir í Efrahópi og Austurhópi.
Raðhúsalóðir í Norðurhópi og Miðhópi.
Jafnframt eru lausar fjölbýlishúsalóðir, atvinnu-
húsnæðislóðir og verslunar- og þjónustulóðir.
Dæmi um einbýlishúsalóð í Grindavík,
Efrahóp 7: Stærð lóðar 890m2 og bygginga-
reitur 325m2. Gatnagerðargjöld og bygginga-
leyfis- og þjónustugjöld samtals 3,5 millj. kr.
Nánari upplýsingar
gefur byggingafulltrúi í
síma 420 1100.
www.grindavik.is
Grindavík er 2850 manna bær sem hefur vaxið hratt í seinni tíð og er aðeins í
50 km fjarlægð frá Reykjavík. Hér eru ýmis atvinnutækifæri í sjávarútvegi,
þjónustu og ferðaþjónustu. Hér er vel hlúð að leikskólum og grunnskóla.
Grindavík er vinsælasti ferðamannastaður landsins enda Bláa lónið í anddyri
bæjarins. Grindavík er fjölskylduvænn bær og státar af kraftmiklu íþróttastarfi
allt frá yngri iðkendum og upp í þá eldri. Hér er glæsilegur 18 holu golfvöllur.
Mannlíf í bænum er fjölskrúðugt og öflugt, bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti er
okkar stolt, hér líður okkur vel.
Sjá nánar á www.grindavik.is og www.visitgrindavik.is • grindavik@grindavik.is
Ertu að leita að lóð á
hagstæðu verði?
lodarauglysing:Layout 1 4.5.2012 11:20 Page 1
OPNUNARTÍMI
mánudaga - föstudaga 07:00-18:00
laugardaga 08:00-16:00
sunnudaga 09:00-16:00
Sigurjónsbakarí - Hólmgarði 2 - 230 - Reykjanesbæ
NÝ BÖKUÐ BRAUÐ
ALLA DAGA
VERIÐ VELKOMIN
Í SIGURJÓNSBAKARÍ
HÓLMGARÐI