Reykjanes - 11.04.2013, Side 8
8 11. apríl 2013
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæ
já, eF við veljum Flokka
til alþingis sem eru
einHuga um verkeFnið!
Staðreyndir um fylgi við verkefnið: Aðeins Sjálfstæðismenn og Fram-
sóknarmenn hafa verið einhuga um
þetta á fráfarandi Alþingi. Ekki hef-
ur skort á vilja og áhuga flestra Sam-
fylkingarmanna innan héraðs en þeir
mega sín lítils innan Samfylkingar og
hafa reyndar sumir sjálfir misstig-
ið sig í ákvörðunum um hækkun á
flutningskostnaði raforku sem hefur
enn frekar tafið samninga Hs orku
og Norðuráls. Samfylking hefur ekki
verið einhuga á þingi um þetta mál.
Björt framtíð og Vinstri græn hafa lýst
sig andvíg álverum!
Kaldar staðreyndir um helstu tafir:
• Efnahagshrun og þörf á endur-
skoðun samninga við orkufyrirtæki,
ágreiningur þessara aðila í kjölfar
þess sem endaði í gerðardómi.
• Tafir á virkjanaleyfum en menn
muna stjórnsýslutafir eins ráðherr-
ans á mjög viðkvæmum tíma fyrir
orkufyrirtækin,
• Tafir á lagningu raflínu um
Suðurnes, en það mál situr nú fast
í höndum enn eins ráðherrans.
• 20% hækkun á flutningskostnaði
sem álverið þarf að borgara fyrir
frá virkjunum, undirrituð af enn
öðrum ráðherranum,
• Tafir á afgreiðslu styrkja til hafnar-
gerðar og ekkert frumvarp undirbú-
ið frá ríkisstjórn hvað þá lagt fram
um Helguvík þrátt fyrir að slíkt sé
gert um Bakka.
• Að lokum viðhorf Landsvirkjunar
um að nota eigi orku til að selja
beint til útlanda eins og gámafisk
fremur nota hér heima í framleiðslu.
Við þurfum að velja stjórn sem
er hlynnt þessu. Nú er tækifærið að
koma!
Kristinn Þór Jakobsson, bæjarfulltrúi Framsóknar í Reykjanesbæ .
bjartari tími Framundan
Að Helguvíkurverkefnin skuli ekki vera komin í gang fyrir lögnu
er stórslys. En ég tel bjartari tíma
framundan, með nýrri ríkisstjórn
undir forystu Framsóknar mun hagur
Helguvíkur vænkast. Þau verða að vera
meðal fyrstu mála sem tekin eru fyrir
til atvinnusköpunar. Þegar mörg þús-
und vinnufúsar hendur sitja iðjulausar
og draga fram lífið á bótum, verður að
grípa öll tækifæri á til atvinnusköpun-
ar. Vinnan skapar vöxtinn sem tryggir
velferðina.
Silja Dögg, fulltrúi Framsóknar í
Reykjanesbæ í Atvinnu og hafnarráði,
er í er í öðru sæti Framsóknar í Suður-
kjördæmi. Ég veit að Silja Dögg mun
vinna að því koma Helguvíkurverkefn-
unum í gang hún er vel inní málunum.
Til þess þarf hún stuðning það gerist
ekki öðruvísi en að að setja X við B lista
Framsóknarflokksins þann 27. apríl.
Ólafur Þór Ólafsson, bæjarfulltrúi í Sandgeðri og frambjóð-
andi Samfylkingar í Suðurkjördæmi
stuðningur
Hjá samFylkingunni
Ég síðustu tvö ár eða svo hef ég alltaf svarað því játandi þegar ég
hef verið spurður um það hvort að
ég telji að álverið í Helguvík komist
af stað. Það hefur hins vegar dregist
lengur en ég vonaðist til og hefur mátt
áætla út frá yfirlýsingum þeirra sem að
málinu koma. Ég hef enn þá trú að upp-
byggingin verði kláruð og framleiðsla
muni hefjast í álverinu á næstu árum.
Sem fyrr er stuðningur við verkefnið
hjá Samfylkingunni en þó rétt að taka
fram það eru ekki stjórnmálamenn sem
tefja það að orkusölusamningar verði
kláraðir.
HeFst Framleiðsla í
álverinu í Helguvík á
næsta kjörtímabili?
U ppbygging álversins í Helguvík gengur hægt. Flestir Suðurnesjamenn vona að meiri kraft-ur komist í framkvæmdirnar og starfsemi
hefjist sem fyrst.
Það myndi verða mikil lyftistöng fyrir samfélagið
hér og reyndar landið allt.
Reykjanes leitaði til nokkurra frambjóðenda í Al-
þingiskosningunum og bæjarfulltrúa og bað þau að
svara eftirfarandi spurningu.
Hefst framleiðsla í álverinu í Helguvík á næsta
kjörtímabili?
Ragnheiður Elín Árnadóttir 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins
vilji er til staðar Hjá
okkur sjálFstæðismönnum
Ég ætla að leyfa mér að vera bjart-sýn og fullyrða að svo verði, í það
minnsta ef Sjálfstæðisflokkurinn á
aðild að nýrri ríkisstjórn eftir kosn-
ingar. Fyrir síðustu kosningar slóg-
um við sjálfstæðismenn táknræna
skjaldborg um álverið í Helguvík þar
sem nokkur hundruð manns komu
saman á byggingarstaðnum til sam-
stöðufundar. Það sorglega er að við
getum nánast endurtekið leikinn
nú fyrir þessar kosningar þar sem
þessi fjögur ár hafa algerlega farið
forgörðum eins og allir vita. Ástæð-
urnar eru margar, en ekki síst þær að
ekki hefur ríkt einhugur um þessa
framkvæmd innan ríkisstjórnarinnar
og hefur umhverfisráðherrann m. a.
lýst sig andvíga þessari framkvæmd.
Ég trúi því að ef allir leggjast á eitt,
fyrirtækin sem um ræðir, ríkisvaldið,
sveitarfélögin og íbúarnir á svæðinu
þá munum við sjá þessa framvæmd
rísa fyrr en síðar. Til þess þarf raun-
verulegan vilja og raunverulegan
stuðning, ekki sýndargjörninga. Ég
lofa því að sá vilji er til staðar hjá
okkur sjálfstæðismönnum og alger
einhugur í okkar röðum um þessa
mikilvægu framkvæmd.
Friðjón Einarsson, oddviti Samfylkingar í Reykjanesbæ
það vona ég
En það er ekki í höndum okkar sveitastjórnar- eða alþingismanna
að ganga frá þessu máli. Hér er um að
ræða samning á milli 2 aðila, HS Orku
og Norðurál og fyrirtækin þurfa að ná
saman. Þar liggur vandinn.
Að halda því fram að ríkistjórn eða
sveitastjórn hafi hér áhrif er eintóm
sýndarmennska sem því miður margir
á Suðurnesjum halda fram. Við gátum
klárað málið þegar við áttum „alla
Hitaveituna“ en eins og allir vita að þá
seldu sveitarfélögin gullpottinn og því
hafa þau engin áhrif í dag. Það er of
auðvelt að kenna öðrum um vandann.
Svar N-listans í Garði
aðeins stend-
ur á orku-
samningum
Ef samkomulag næst um orkuöflun og orkuverð á milli Norðuráls og
HS
orku, OR og Landsvirkjunar fer upp-
byggingin á fulla ferð.
Nánast allt sem þarf til þess að ál-
verið í Helguvík geti farið af stað er til
staðar, s. s. umhverfismat, skipulag og
fjárfestingarsamningar og línulagnir
eru í farvegi. Aðeins stendur á orku-
samningum en um leið og samningar
nást um orkuöflun og orkuverð á milli
Norðuráls og HS orku, OR og Lands-
virkjunar fer uppbyggingin á fulla ferð.
Jónína Hólm.