Reykjanes - 11.04.2013, Síða 12
11. apríl 2013
Framundan Hjá Febs.
Léttur föstudagur 12. apríl kl. 14: 00 á Nesvöllum. Veruleiki draumanna. Framsagnahópur
Hæðagarði.
Léttur föstudagur 19. apríl kl 14: 00
á Nesvöllum. Eldeyjarkórinn.
Miðvikudagur 24. apríl kl 20: 00
(Síðasti vetrardagur) á Nesvöllum.
Harmonikkudansleikur. Miðaverð
kr.1000.
Sunnudagur 28. apríl kl.15: 00 í Eld-
borg. Vorhátíð eldri í Grindavík.
12
Laghentir ehf - Iðjustíg 1c - Reykjanesbæ
(í sama húsi og SS Bílaleigan, ekið inn frá Íslandsbanka)
Sími: 456-7600 - Gsm: 861-7600 - www.laghentir.is
Opið alla virka daga frá 8:00 til 18:00
Teiknistofan Rúm
Okkar sérsvið er m.a:
• Gerð aðaluppdrátta og tilheyrandi deiliuppdrátta
• Uppsetning og vinnsla með BIM
• Ráðgjöf og þarfagreining vegna framkvæmda
• Gerð kostnaðaráætlun
• Eftirlit og stjórnun framkvæmda
email: Teiknistofa@gmail.com / Álfholt 26 / 220 hafnarfjörður / Sími 662-8904
bætum Hag
eldri borgara
Sjálfstæðisflokkurinn fer fram með skýra stefnu um lækkun skatta á næsta kjörtímabili enda eru
skattalækkanir lykilatriði til þess að efla
atvinnulífið og bæta hag heimilanna.
Þessi stefna fer vel saman við skýran
vilja Sjálfstæðismanna að hlúa vel að
þeim sem eldri eru.
Tryggja ber eldri borgurum val um
búsetu eftir vilja og þörfum hvers og
eins. Gera verður eldri borgurum
mögulegt að eiga sjálfstætt líf á eigin
heimili sem lengst og tryggja þarf að-
gengi að þeirri þjónustu sem þörf er
á. Þau sem mótuðu samfélagið eiga að
fá að njóta þess þegar þau hafa hætt
störfum og byrja að njóta lífsins.
Bjóða verður upp á fjölbreytt rekstr-
arform, í rekstri heilsugæslunnar, í
heimaþjónustu og á dvalarheimilum/
hjúkrunarheimilum sem byggja á
þjónustusamningum við hið opinbera.
Saman geta þessir þættir myndað öfl-
uga heild í hverju héraði sem mun auka
atvinnutækifæri og þjónustu íbúum
landsbyggðarinnar til heilla
Afnema þarf þær tekjutengingar og
skerðingar sem núverandi ríkisstjórn
setti á 1. júlí 2009. Eldri borgarar
eiga að geta fengið greitt úr lífeyris-
sjóði án þess að greiðslur þeirra frá
Tryggingstofnun skerðist, hafa frelsi
til að ráðstafa eignum sínum og vinna
fyrir sér meðan þrek leyfir.
Rétt forgangsröðun er það sem þarf
sem samfara eflingu atvinnulífsins og
nýjum leiðum í rekstri ríkisins mun
auka lífsgæði okkar allra. Tillögur
okkar Sjálfstæðismanna ganga út á að
um leið og öllum verði tryggðar lág-
markstekjur til lífsviðurværis þess verði
gætt, að ekki sé dregið út hvatanum til
sjálfsbjargar og möguleikum aldraðra
og öryrkja til að bæta kjör sín. Það er
frumréttur einstaklingsins sem ekki
má ganga gegn.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
munu leggja sig fram við að bæta hag
aldraða og öryrkja ásamt því að efla
landsbyggðina.
Vilhjálmur Árnason.
Höfundur skipar 4. sæti
á framboðslista Sjálfstæðisflokksins
í Suðurkjördæmi.
ný íslensk mynt
–Stórir ávinningar fyrir land og þjóð
Vangaveltur hafa verið um hvað best er að gera í gjaldmiðils-málum. Með því að taka ein-
hliða upp gjaldmiðil annars ríkis þá
þurfum við að kaupa hann, gjaldeyri
með gjaldeyri, sem við eigum ekki
og svo misstum við stjórn á peninga-
málum okkar til þess ríkis, sem ætti
myntina. Ef við gengjum í ESB til þess
að taka upp evruna, þá glötuðum við
einnig stjórn á peningamálum okkar
auk margvíslegrar forsjár margra eigin
mála, en Ísland er ekki í neinni stöðu
að uppfylla skilyrði evruaðildar í bráð
þótt við vildum. Eigum við því að halda
í gömlu krónuna? Hún hefur bæði sína
kosti og galla. Í stórum dráttum eru
kostirnir sveigjanleiki en gallarnir
óstöðuleiki. En er til önnur lausn?
Staðreyndir
Það er staðreynd að Bandaríkjadalur
er í mjög sérsakri stöðu með því að
vera notaður í yfir 90% heimsviðskipt-
anna og vera varagjaldeyrisforði flestra
ríkja veraldar. Einnig er að mesti partur
skulda íslenska ríkisins og stórfyrirtæja
er í Bandaríkjadölum, að innflutt hrá-
vara s. s. bensín, olía og ál er í dölum
og að sala á raforku, áli o. fl. er einnig
í dölum.
Ríkisdalur
XG–Hægri grænir, flokkur fólksins,
vill taka hér upp nýja íslenskan lög-
eyri, sem hann kallar ríkisdal og tengja
hann við Bandaríkjadal, dal á móti dal.
Gengið gagnvart öðrum gjaldmiðlum
fylgdi þá gengi Bandaríkjadals, en
með þessu öðluðumst við æskilegan
gengisstöðugleika og héldum á sama
tíma eigin stjórn peningamála. Með
slíkri nýrri íslenskri mynt gæfist sveigj-
anleiki til ýmissa hagfelldra aðgerða
eins og afnáms verðbólgumarkmiða
Seðlabankans, afnáms almennrar
verðtryggingar neyslu, húsnæðis og
námslána, gjaldeyrishafta og minnk-
un lánsgjaldeyrisvaraforða Seðlabank-
ans, sem kostar sórfé í vexti. Stjórn á
stýrivöxtum væri ennþá hjá okkur, en
hefði nú virkileg áhrif með því að koma
samhliða á stóraukinni bindiskyldu og
útlánaþaki á viðskiptabankana og ná þá
sjórn á peningamagni í umferð. Þannig
hefði Seðlabanki Íslands í fyrsta sinn
í sögunni þau tæki og tól, sem hann
þarf til þess að hafa fulla stjórn á pen-
ingamálum þ. m. til að takast á við
verðbólguna með árangri.
Snjóhengjur og
vogunarsjóðir
Með hinum nýja lögeyri þyrftu eigend-
ur þ. m. t. íslenskir eigendur íslenskra
króna erlendis að koma með þær heim
til að skipta yfir í ríkisdalinn ellegar
týna þeim. Þrotabúum föllnu bank-
anna, eigendum aflandskrónanna og
erlendu hrægammasjóðunum væri
hægt að bjóða tvær leiðir til að losna úr
viðjum gjaldeyrishaftanna: a) að skipta
yfir í ríkisdal með 95% afföllum, eða
b) skipta á aflandskrónugengi í 30 ára
afborganalaust skuldabréf, útgefnu í
bandaríkjadölum á 1,5% vöxtum.
Annars yrðu erlendu hrægamma-
sjóðirnir rukkaðir um 6% vexti á
innistæðum sínum fyrir allt umstangið
við gömlu krónuna. Þetta sparar tugi
milljarða krróna á ári í vaxtakostn-
að. Peningana, sem koma í ríkissjóð
með þessum aðgerðum, á að nota
til þess að borga upp það sem hægt
er og skuldbreyta svo því, sem út af
sendur af skuldum ríkissjóðs og fara í
nauðsynlegar fjárfestingar og vaxta og
skattalækkanir hér á landi. Líta verð-
ur á aflandskrónurnar og niðurstöðu
Icesave dómsins sem sérstakt tæki-
færi, snúa verður taflinu við og veita
erlendum hrægammasjóðum makleg
málagjöld.
Mikilvægar og
arðbærar aðgerðir
Leiðin er einföld, það yrði auðvelt
að koma henni á á stuttum tíma og er
auðvitað afar þjóðhagslega hagkvæm
svo vægt sé til orða tekið. Þetta verður
að gera áður en það er orðið of seint og
kröfuhafar hafa náð að selja bankana
til nýrra fjárfesta, sem verður auðvitað
að stoppa ef við ætlum ekki að missa
ábatann frá þjóðinni. Ef að X er ekki
sett við G í vor, þá mun þó ekkert svona
gerast. Vill einhver bera ábyrgð á því?
Kjartan Örn Kjartansson
Höfundur er varaformaður Hægri
grænna, flokks fólksins
og í 1. sæti listans í Reykjavík norður
Veffang: www. xg.is