Reykjanes - 11.04.2013, Side 14
14 11. apríl 2013
Ókeypis Blóðsykurmælar og strimlar fyrir sykursjúka
Þú nærð tökum á sykursýkinni
með því að mæla blóðskykurgildið þitt reglulega
Bjóðum Medismart Zapphiro blóðsykurmæla og
strimla frá Swissneska fyritækinu Lobeck Medical Ltd.
* Mjög einfaldur í notkun, stór skjár, léttur og
handhægur
* "No Coding" - þarf aldrei að núllstilla
(calibrera)
* Þarf mjög lítið magn til mælinga * 0,6 µl
* Mælir blóðsykur á bilinu 1,1-35 mmol/L
* Mæling tekur aðeins 5 sek.
* Geymir 480 mælingar í minni
* Hægt að tengja við tölvu
blóðsykursmælir
Félagar í FEB
fá 12% afslátt
af öllum vörum
Apótek Suðurnesja
er opið
Mánud. - föstud. 9:00-19:00
Laugardaga 14:00-18:00
Velkomin í lágt lyfjaverð
í Apóteki Suðurnesja
ársHátíð Heiðarskóla
Nýlega hélt Heiðarskóli upp á árshátíð sína. Nemendur fluttu þar ýmis atriði sem gestir kunnu vel að meta. Reykjanes smellti af nokkrum myndum.
Garður.
sýnum umHverFi
kirkjunnar sóma
Biskup Íslands frú Agnes M. Sigurðardóttir átti stund með heimamönnum í Útskála-
kirkju nýlega. Biskupi voru kynntar
hugmyndir swem uppi hafa verið
um uppbyggingu Útskálahússins.
Því miður fór það allt í strand vegna
hrunsins eins og svo margt annað.
Það gengur samt ekki að láta þetta
fallega hús standa svona. Bæjaryf-
irvöld verða að taka málið upp og
halda áfram. Einnig var rætt um að
bæta þurfi aðkomuna að kirkjustaðn-
um. Í Garðinum hafa á síðustu árum
verið miklar framkvæmdir þannig
að seitarfélagið er mjög vel í stakk
búið til að veita góða þjónustu. Nú er
komið að því að bæjaryfirvöld sýni
Útkálakirkuju þann sóma að ráðist
verði í að gera aðkomuna snyrtilega
og flotta.
S. J.
virkni allra er mikilvæg
Þegar kemur að hverskonar sam-félagslegri aðstoð, við barn, full-orðinn, aldraðan eða fatlaðan
á enginn að lenda utangarðs. Ekki á
að skipta máli hvort vandinn heitir
krabbamein, lömun eða atvinnuleysi.
Virkni er mikilvæg fyrir alla. Þátttaka í
uppbyggingu Íslands er á ábyrgð okkar
allra. Þar er engin undanskilin, fatlaður
eða ófatlaður. Vannýttur auður er ekki
síst falinn í fólki sem í dag fær ekki
tækifæri til að vera virkt í daglegum
störfum. Veitum fólki aðstoð til að vera
virkir þátttakendur og þannig tryggjum
við lífsgæði þeirra og það mikilvægasta
í lífinu, mannréttindi. Skiptir þá engu
hvort viðkomandi er fatlaður, ófatlað-
ur eða atvinnulaus. Þá er mikilvægt
að stórauka endurhæfingu fólks eftir
sjúkdóma og slys til að tryggja virkni.
Finnum lausnir á búsetu fólks eftir
hæfni og aðstoðum fólk til að búa heima
eins lengi og hægt er. Þeir sem af eigin
raun geta nýtt sér aðstoðarmannakerfi
eins og notendastýrðri persónulegri að-
stoð (NPA) fái tækifæri til þess. Vernd-
aðir vinnustaðir eru barn síns tíma og til
þess fallnir að aðgreina hópa. Þeir sem
í dag eru á vernduðum vinnustað eiga
eins og kostur er að vera á meðal starfs-
manna á hefðbundnum vinnustöðum
og veitt aðstoð þar eftir þörfum.
Sama á að gilda um atvinnuleit-
endur, þeim verði fundinn farvegur
til náms eða starfa og reglan verði að
enginn fái greitt fyrir að sitja heima. At-
vinnuleysi er böl sem veður að útrýma.
Næg verkefnin eru fyrir höndum, t.d.
hjá bæjarfélögum, ríki og velferðar-
stofnunum sem hægt er að vinna að.
Mannleg reisn felst í því að hver
og einn geti með stolti unnið sér og
fjölskyldu sinni farborða með því að
stunda ærlegt starf. Söndum saman um
virkni allra þegna samfélagsins. Með
því má koma í veg fyrir margskonar
félagsleg vandamál, svarta atvinnu-
starfsemi og önnur óæskileg vanda-
mál sem fylgja því að lenda utangarð
í þjóðfélaginu. Tökum heiðarlega um-
ræðu um þessi mál og finnum á þeim
farsæla lausn. Ég vil vinna að virkni
allra á mannlegum nótum.
Ásmundur Friðriksson skipar 3ja
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í
Suðurkjördæmi.
Hart barist um atkvæðin
Það fer ekki framhjá nokkrum að stutt er í Alþingiskosn-ingar. Nú reyna forystumenn
framboðanna að ná eyrum kjósenda
í þeirri von að fá atkvæði. Hér má
sjá Bjarna Benediktsson formann
Sjálfstæðisflokksins og Hönnu Birnu
kristjánsdóttir, varaformann, tala við
kjósendur á fjölmennum fundi á Nes-
völlum.
Ásmundur Friðriksson .