Reykjanes - 01.11.2012, Síða 2
2 1. nóvember 2012
Gömlu stjórnmálaflokkarnir eru núna að setja sig í stellingar í undir-búningi á framboðslistum fyrir Alþingiskosningarnar í apríl n. k. Svolítið misjafnt virðist það vera hvaða aðferð flokkarnir ætla að nota,
einhvers konar prófkjör verður þó hjá öllum, hvort sem það heitir prófkjör,
flokksval eða tvöfalt kjördæmisráð. Enn hefur lítið heyrst um það hvaða aðferð
nýju framboðin ætla að viðhafa við val frambjóðenda.
Nú þegar liggur fyrir að þó nokkrir Suðurnesjamenn ætla að gefa kost á sér og
reyna að ná sem bestum árangri. Þrátt fyrir að Alþingi njóti ansi lítils trausts
meðal almennings er sem betur fer til fólk sem hefur áhuga á að setjast á
þing. Það skiptir miklu máli hvaða fólk velst í efstu sæti framboðslistanna.
Reykjanes telur nauðsynlegt að frambjóðendur geti kynnt sínar áherslur og
skoðanir hér í blaðinu. Í síðasta blaði svöruðu nokkrir frambjóðendur spurn-
ingum Reykjaness og fleir gera það í blaðinu í dag. Fyrir Suðurnesin skiptir
það miklu máli að traust og sterkt fólk veljist á framboðslistana til að berjast
fyrir okkar hagsmunamálum.
Tveir núverandi þingmenn hér á Suðurnesjum sækjast eftir að skipa forystusæti
síns lista. Það eru þær Oddný G. Harðardóttir, Samfylkingu og Ragnheiður Elín
Árnadóttir, Sjálfstæðisflokki. Ekki er það sjálfgefið að þær nái þessu takmarki
sínu. Stuðningsfólk þessara flokka hér á Suðurnesjum getur haft úrslitaáhrif
í þeim efnum. Fyrir íbúa á Suðurnesjum hlýtur það að skipta máli að eiga
forystumenn í þessum tveimur flokkum. Það er nánast öruggt að annar hvor
þessara flokka verður í næstu ríkisstjórn eða ef til vill báðir.
Lítið sem ekkert hefur heyrst um hugsanlega frambjóðendur Suðurnesjafólks
fyrir nýju framboðin. Þau hljóta að leita eftir fólki héðan af svæðinu til að fara
í framboð. Það mun örugglega skýrast á nætunni.
Íbúar á Suðurnesjum þurfa að fá sterka einstaklinga til setu á Alþingi. Við
verðum að treysta því að næsta kjörtímabil verði okkur hér hagstæðara heldur
en það sem nú er að klárast.
Kosningaþátttaka minnst í Suðurkjördæmi.
Laugardaginn 20. október s. l. var efnt til skoðanakönnunar, sem kölluð
var þjóðaratkvæðagreiðsa um tillögur stjórnlagaráðs. Kosningaþátttaka á
landsvísu var aðeins um 50%. Athygli vekur að kosningaþátttaka var minnst
í Suðurkjördæmi eða 43,2%.
Á sínum tíma talaði Samfylkingi og Hreyfingin um að það væri krafa al-
mennings í landinu númer eitt, tvö og þrjú að fá nýja stjórnarskrá. Með nýrri
stjórnarskrá á allt að lagast. Miðað við þessar forsendur hlýtur það að teljast
furðulegt að innan við helmingur kjósenda mæti á kjörstað. Það er furðulegt
að heyra suma stjórnmálamenn tala nú um að kosningaþátttaka hafi verið
einstaklega góð. Hvernig er hægt að tala um slíkt þegar helmingur kjósenda
mætir ekki á kjörstað.
Samkomulag er til um framtíð Garðvangs.
Suðurnesjamenn fögnuðun því þegar ákvörðun var tekin um uppbyggingu
Nesvalla. Ríkið lagði áherslu á að samstaða ríkti meðal sveitarfélagnna. Bæj-
arstjórn Garðs lagði áherslu á sínum tíma að framtíð Garðvangs yrði tryggð.
Það var gert með undirskrift árið 2004. Því verður ekki trúað að óreyndu að
bæjaryfirvöld í Reykjanesbæjar ætli einhliða að rifta þessu samkomulagi.
leiðari
Suðurnesjafólk
vill komast á þing
Frí blað ið Reykja nes vill gjarn an kom ast í sam band við íbúa Suð ur nesja.
Seg ið ykk ar skoð un með því að senda inn pist il. Send ið inn fyr ir spurn.
Vin sam leg ast send ið okk ur tölvu póst á net fangið asta. ar@sim net.is eða
hring ið í síma 847 2779.
Reykjanes 21. Tbl. 2. áRganguR 2012
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is.
framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is.
auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykja vík. Auglýsingasími: 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is.
Ritstjóri: Sigurður Jónsson, netfang: asta. ar@simnet.is, sími: 847 2779. Myndir: Ýmsir. Umbrot: Prentsnið
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Upplag: 8.000 eintök. dreifing: Vefútgáfa Pdf: www. reykjanesblad.is
reykjanes er dreift í 8.000 eintökum ókeypis í allar íbúðir á reykjanesi.
Viltu segja skoðun þína?
Léttur
föstudagur
á NesvöLLum
Á morgun, föstudaginn 2. nóv-ember verður Léttur föstu-
dagur á Nesvöllum Friðarliljurnar
koma í heimsókn og spila og syngja.
Léttur föstudagur hefst kl.14: 00. Í
hléi er selt kaffi og meðlæti. Allir
velkomnir.
viLja brettapaLL
Nemendur í Njarðvíkurskóla sendu Bæjarráði Reykjanes-
bæjar nýlega erindi með ósk um að
fá brettapall við skólann. Bæjarráð
tók jákvætt í erindið og felur Um-
hverfis-og skipulagssviði afgreiðslu
málsins.
aðaLfuNdur
í saNdgerði
Hvalsnessókn boðar til aðal-fundar í Safnaðarheimilinu 8.
nóvember kl.20: 00
LaNdamerki
HrauNs og
krísuvíkur
staNda
óHreyfð
Endurrit dóms Hæstaréttar vegna landamerkja jarða á Vatnsleysu-
strönd annarsvegar og Hrauns og
Krýsuvíkur í Grindavík hinsvegar
var lagt fram í bæjarráði. Þar kemur
fram að hæstiréttur staðfesti dóm
héraðsdóms. Landamerki Hrauns
og Krísuvíkur standa því óhreyfð.
Hæstiréttur felldi niður
málskostnað bæði í héraði og fyrir
Hæstarétti, en Grindavíkurbær hefur
borið ábyrgð á kostnaði vegna lands
Krýsuvíkur sem er í eigu Héraðs-
nefndar Suðurnesja.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara
fram á endurgreiðslu þess kostnaðar
frá Héraðsnefndinni.
öfLugt starf í auðarstofu
Reykjanes leit við einn daginn í Auðarstofu í Garði. Þar fer fram öflugt félagsstarf aldraðra og er vel mætt. Hér koma myndir frá Auðarstofu.
Reykjanesbær.
ánægjuleg þróun
Ný könnun Ferðamálastofu meðal erlendra ferðamanna sem dvöldu á Íslandi á vetr-
artíma frá september 2011 til maí 2012
sýnir að af 35 stöðum sem spurt var
sérstaklega um varðandi heimsóknir
lenti Reykjanesbær í 6. sæti yfir flestar
heimsóknir. Tæplega 22% svarenda
sögðust hafa heimsótt Reykjanesbæ.
Langflestir sögðu Bláa Lónið minn-
isstæðast við heimsókn til Íslands.
Af stöðum á landinu sögðust flest-
ir hafa heimsótt Þingvelli, Geysi eða
Gullfoss (61,0%), Vík (32,6%), Skóga
(27,3%), Skaftafell (22,8%), Reykjanes-
bæ (21,9%), Snæfellsnes þjóðgarð
(20,7%), Reykjanesvita/Gunnuhver/
Brú milli heimsálfa (15,1%), Akureyri
(13,7%), Hornafjörð (13,0%) Borg-
arfjörð (12,6%), Mývatn (11,8%) og
Eyrarbakka (10,9%).
„Þetta er ánægjuleg þróun fyrir
okkur í Reykjanesbæ. Bærinn hefur
smám saman verið að laða til sín fleiri
ferðamenn þótt mun lægra hlutfall
velji enn að gista hér en heimsækja
bæinn. Við sjáum umtalsverða aukn-
ingu á heimsóknum ferðamanna í
Víkingaheima og út á Reykjanesið“.
Í könnuninni kemur fram að 95%
svarenda sögðust hafa gist í Reykjavík
og nágrenni og var meðaldvalarlengd-
in fimm nætur.6,6% svarenda sögðust
hafa gist á Reykjanesi.
Ferðamálastofa segir könnunina
byggða á að netföngum var safnað
með skipulögðum hætti á komu- og
brottfararsvæði flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar á tímabilinu 1. september
2011 til 31. maí 2012. Úrtakið var
4.512 manns og var svarhlutfallið
52,6%
döguN fagNar Niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðsLuNNar
Dögun lýsir yfir ánægju með niður-stöður þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar þann 20. október síðast liðinn.
Fyrir liggur að aukinn meirihluti lands-
manna vill að tillögur stjórnlagaráðs
verði lagðar til grundvallar að nýrri
stjórnarskrá.
Niðurstöðuna ber Alþingi í hvívetna
að virða. Nú ríður á að þingmenn fari
ekki út af sporinu. Fórnarkostnaðurinn
við breiða sátt um lokaútgáfu Alþingis
að nýrri stjórnarkskrá má aldrei verða
útþynning frumvarps stjórnlagaráðs,
líkt og fyrirhugað er að gera með frum-
varp að breytingum á fiskveiðistjórn-
unarkerfinu.
Dögun leggur sérstaka áherslu á
að 10% viðmiðinu sem stjórnlaga-
ráð lagði upp með í tengslum við rétt
kosningabærra manna til að krefjast
þjóðaratkvæðagreiðslna verði ekki
hnikað. Ákveði þingmenn að hækka
þá tölu er hætt við því að ákvæðið verði
óvirkt þar sem of erfitt verði að safna
nauðsynlegum fjölda undirskrifta. Ekki
er heldur neitt sem segir að þjóðar-
atkvæðagreiðsla fari á þann veg sem
hvatamönnum að henni hugnast.