Reykjanes - 01.11.2012, Page 6

Reykjanes - 01.11.2012, Page 6
6 1. nóvember 2012 volundarhus.is · Sími 864-2400 VERÐTILBOÐ - GESTAHÚS 25 m² kr. 1.500.000,- án fylgihluta kr. 1.800.000,- með fylgihlutum og byggingarnefndar teiknisetti. www.volundarhus.is Vel valið fyrir húsið þitt RÝMINGARSALA Á GESTAHÚSUM OG GARÐHÚSUM ALLT Á AÐ SELJAST! V H /1 2- 03 34 mm bjálki / Tvöföld nótun TILBOÐ - GARÐHÚS 4,7m² kr. 242.100,- án fylgihluta kr. 265.410,- m/fylgihlutum 70 mm bjálki / Tvöföld nótun 34 mm bjálki / Tvöföld nótun TILBOÐ - GARÐHÚS 9,7m² kr. 323.910,- án fylgihluta kr. 359.910,- m/fylgihlutum TILBOÐ - BARNAHÚS 2,1m² kr. 119.900,- án fylgihluta kr. 135.900,- m/fylgihlutum 28 mm bjálki 34 mm bjálki / Tvöföld nótun GESTAHÚS og GARÐHÚS sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður Sjá fleiri GESTAHÚS og GARÐHÚS á tilboði á heimasíðunni volundarhus.is suðurnesjaFólk sækist eFtir þingmennsku Birgi Þórarinsson, Framsóknarflokki: Brýnustu verkeFnin eru atvinnumálin -Hvers vegna hefur þú áhuga á þing- mennsku? Ég hef verið þátttakandi í stjórn- málum sl.11 ár. Áhuginn á þessu sviði nær þó lengra aftur í tímann og má segja að það hafi gerst fyrir tilviljun, þegar ég skrifaði ritgerð við Háskóla Íslands í guðfræði. Ég las bók eftir Tryggva Þórhallsson guðfræðing og fyrrv. forsætisráðherra. Tryggvi heill- aði mig strax í upphafi. Hann var einn af stofnendum Framsóknarflokksins 1916. Hann setti fram listavel tengsl guðfræði og stjórnmála. Þetta heillaði mig. Ég kynnti mér stefnu flokksins og sögu og á endanum gekk ég í flokk- inn. Mér líkar vel miðjustefna, hvorki öfgvar til hægri né vinstri. Að sameina kosti beggja. Frá 2009 hef ég verið fyrsti varaþingmaður Framsóknar í Suður- kjördæmi. Það er því eðlilegt skref að sækjast nú eftir þingmennsku og fá að verða þátttakandi í því að byggja hér betra samfélag. -Hver eru helstu hagsmunamál Suðurnesja í þínum huga? Brýnustu verkefnin á Suðurnesjum í dag eru atvinnumálin. Að framkvæmdir við álverið í Helgu- vík fari á fullt. Sjávarútvegurinn er okk- ur mjög mikilvægur hann skapar auk þess fjölmörg afleidd störf eins og fyrir iðnaðarmenn, vélsmiðjur, netagerð, fraktflutninga ofl. Brýnt er að eyða allri óvissu um framtíð fiskveiðistjórnunar og veiðigjalda. Hér bera stjórnvöld ein ábyrgð. Nú þegar hefur dregið úr fjár- festingum, viðhaldi ofl í sjávarútvegi vegna stefnu ríkisstjórnarinnar. Of há veiðigjöld koma á endanum niður á almenningi. Fyrirtækin halda að sér höndum, ráða færra fólk til vinnu, draga úr fjárfestingum, viðhaldi og endurnýjun. Skapa þarf sátt um greinina til framtíðar og starfsskilyrði sem skila sér í öflugum sjávarútvegi sem færir okkur fjölmörg mikilvæg störf og gjaldeyristekjur. Ferðaþjónusta er mjög vaxandi grein á Suðurnesjum. Hér hefur gistinóttum fjölgað hlutfallslega mest á landinu, sem sýnir að tækifærin eru svo sannar- lega til staðar. Mikilvægt verkefni er að fá ferðamanninn til að staldra hér leng- ur við m. a. með því að fjölga möguleik- um til afþreyingar, bæta aðstöðu til náttúruskoðunar ofl. Ríkisstjórn Samfylkingar og VG ætlar nú einnig að vega að starfskil- yrðum ferðaþjónustunnar með rúm- lega 17% hækkun á virðisaukaskatti. Brýnt er að þessi áform nái ekki fram að ganga. Þau eru vanhugsuð og munu aldrei skila þeim tekjum í ríkissjóð sem að er stefnt. Ferðamenn munu leita á ódýrari mið. Hér er ekki verið að finna upp hjólið. Fjölmörg dæmi eru til sem sýna fækkun ferðamanna með aukinni skattheimtu. Ekki má gleyma skuldavanda heim- ilanna. Hér er ástandi verra en víðast hvar. Við framsóknarmenn leggj- um áherslu á að grynnka á skuldum heimilanna og nota til þess skattkerf- ið. Rammaáætlun vegna orkunýtingar skiptir okkur einnig miklu. -Fáum við álver í Helguvík? Álver í Helguvík er mikil lyftistöng fyrir atvinnuuppbyggingu á Suðurnesj- um það er því brýnt að það verði að veruleika og ég hef fulla trú á að svo verði. Saga þessa verkefnis hefur verið þyrnum stráð eins og kunnugt er. Þar vegur þyngst deilur vegna orkusölu, þó vissulega hafi hrunið sett strik í reikn- inginn. Helsta áhyggjuefnið í dag hvað framkvæmdina varðar er lækkun á ál- verði í heiminum. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að ef Hitaveita Suðurnesja hefði ekki verið seld til einkaaðila þá væri álver í Helguvík komið í fullan rekstur, með þeim fjölmörgu störfum sem við Suðurnesjamenn þurfum svo sannarlega á að halda. Þá hefði samfé- lagslegi áhrifaþátturinn verið hafður inn í myndinni í orkusölusamningn- um. Ríkisstjórn Samfylkingar og VG hef- ur tafið fyrir verkefninu, ber þar hæst afgreiðsla virkjunarleyfis til HS orku. Stjórnvöld eiga að greiða götu þessa verkefnis. Það var samþykkt á sínum tíma. Ekki er hægt að hringla með svo stórt verkefni í stjórnkerfinu, þegar það er farið af stað. Það skapar mikil- væg störf og styrkir rekstrargrundvöll sveitarfélaganna á Suðurnesjum. -Hver er afstaða þín til ESB umsóknar? Ég er andvígur inngöngu Íslands í ESB. Ástandið í Evrópu er með þeim hætti að gera á strax hlé á viðræðum og nýta þá fjármuni í brýnni verk- efni. Ísland hefur fjölmörg tækifæri þegar kemur að alþjóðasamskiptum. Vegurinn til Evrópu er ekki sá eini. Fyrir réttum tveimur árum átti ég fund með öldungadeildarþingmanni Norður-Karolínuríkis þar kom fram mikill áhugi á auknum samskiptum Bandaríkjanna við Ísland. Flutti ég síðan þingsályktunartillögu á Alþingi um fríverslun við Bandaríkin. Tillagan náði því miður ekki fram að ganga þar sem ríkisstjórnin sá hana sem ógnun við ESB umsóknina. Við njótum einnig mikillar velvildar í Kanada og eigum að auka samskipti okkar þangað. Sjá einnig á bls 10. Ásmundur Friðriksson, Sjálfstæðisflokki: atvinnumálin eru stærsta mál suðurnesja -Hvers vegna hefur þú áhuga á þing- mennsku. Ég tel að reynsla mín úr atvinnulífinu, opinberri stjórnsýslu og félagsmálum ýmiskonar sl.40 ár sé sá góði bakgrunn- ur sem hver þingmaður þarf að hafa. Sérstaklega er þátttaka í atvinnulífinu, sjómennska, störf við framkvæmdir, fisk- vinnsla og síðan rekstur fiskverkunar í 18 ár skóli sem er hverjum manni hollur. Það hefur auðvitað gengið á ýmsu en reynslan er mikilvægur skóli. Reynsla mín sem bæjarstjóri er líka gott veganesti fyrir þingmann. Ég veit að sú reynsla, samstarf mitt við íbúa í Garðinum og víðar ásamt þátttöku í lífi fólksins í gleði og sorg. Og sú staðreynd að hafa skapað mér starf sem náði langt út fyrir þægindarammann muni gagnast mér vel. Menn þekkja þau verk sem ég stend fyrir og hef staðið fyrir. Ég mun nú sem fyrr vinna á mannlegum nótum með fólkinu í kjördæminu og í landinu. -Hver eru helstu hagsmunir Suðurnesja í þínum huga. Atvinnumálin eru stærsta mál Suðurnesja og allrar þjóðarinnar. Hér eru stærstu og bestu tækifæri þjóðarinnar til að koma stórum atvinnutækifærum í gang með skömmum fyrirvara. Hér býður álverið eftir að þar fari 500 manna vinnustaður í gang sem skapa mun 1000 afleidd störf. Virkjanaframkvæmdir og línulagnir sem á fáum mánuðum taka til sín gríðarlegan mannafla, hér er verið að tala um 10,000 ársstörf. Hvaða þjóð í vanda hefur efni á því að halda slíkum tækifærum frá fólkinu í landinu. Það þarf að skapa störfin svo atvinnuleytendur geti með reisn tekið þátt í atvinnulífinu og séð fyrir sér og fjölskyldum sínum. Ég mun vinna að því að friður skapist um sjávarútveginn, ferðaþjónustuna og kirkjuna. Á síðustu árum hefur ríkis- stjórnin brugðið fæti fyrir þessar stoðir þjóðfélagsins. Sjávarútvegsmálin eru en í óvissu eftir tæplega fjögurra ára þrotlausa vinnu ríkisstjórnarinnar að koma útveg- inum á koll. Ferðaþjónustan, einn helsti sprotinn í íslensku atvinnulífi er kallaður ómagi af ráðherra í ríkisstjórninni og kirkjan sem er undirstaða andlegar vel- megunnar hefur verið þyrnir í augum þessara sömu aðila. Ég mun vinna að því að friður verði um þessar styrku stoðir þjóðfélgsins. Tækifærin sem alþjóðlegur flugvöllur skapar á væðinu og verkefni Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, Ás- brú-norður ásamt samstarfi sveitarfélag- anna um sameiginleg atvinnusvæði eru verkefni sem ég vil áfram vinna að. Tekj- ur af sölu eigna á fv. varnarsvæði ættu að renna til styrktar atvinnuuppbyggingu á sameiginlegum atvinnusvæðum. Með því móti gæti ríkisvaldið staðið við bakið á atvinnuuppbyggingu í öllum sveitar- félögunum á Suðurnesjum. Ég tel að það misræmi og ójafnvægi í framlögum ríkisins til Suðurnesja miðað við aðra landshluta sé eitt brýnasta málið sem nýtt þing og fjárveitingavaldið í landinu þarf að takast á við á næstu árum. Það á við í mennta og heilbrigðismálum, mál- efnum eldri borgara, fatlaðra og í fleiri mál. Röng reiknislíkön ráðherranna eru ekki gild afsökun í þeim efnum. Þessi mismunun er óþolandi. Hún er ekki ný af nálinni og því afar mikilvægt að leiðréta slagsíðuna í fjárveitingum sem við hér Suðurnesjum höfum þurft að þola allt of lengi. Ég mun vinna að því að Suðurnes sitji við sama borð og aðrir landhlutar þegar kemur að útdeilingu fjármagns til sameignlegra verkefna samfélagsins. -Fáum við álver í Helguvík. Álver í Helguvík mun rísa, en ég óttast að það gerist ekki á meðan núverandi ríkisstjórn er við völd. Því miður hafa ráðherrar og ríkisstjórnin í heild sinni gert allt til að álverið komist ekki í gang. Ég fullyrði að stöðvun framkvæmda við virkjanir í neðrihluta Þjórsár var hluti af því samkomulagi að koma í veg fyrir opnun álvers í Helguvík í tíð núverandi ríkisstjórnar. 4. -Hver er afstaða þín til ESB umsóknar. Ég er á móti inngöngu Íslands í ESB. Með framboði mínu mun ég vinna að endurreisn atvinnu- og mannlífs í Suðurkjördæmi á mannlegum nótum. Ásmundur Friðriksson sækist eftir 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suður- kjördæmi. Nokkrir Suðurnesjamenn hafa nú þegar gefið kost á sér í prófkjörum flokkanna vegna framboðsmála. Reykjanes gefur frambjóðendum kost á að kynna sín sjónarmið fyrir lesendum blaðsins. Hér koma svör nokkurra fram- bjóðenda. Hvetjum væntanlega frambjóðendur að hafa samband við Reykjanes hafi þeir áhuga á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. w w w . r e y k j a n e s b l a d . i s w w w. r e y k j a n e s b l a d. i s Fleiri frambjóðendur svara spurningum í næsta blaði

x

Reykjanes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.