Reykjanes - 01.11.2012, Blaðsíða 9
91. nóvember 2012
Flottir krakkar
á tjarnarseli
Það voru sannarlega flottir fimm ára krakkar frá Tjarnarseli, sem Reykjanes hitti í góða veðrinu á dögunum. Krakkarnir voru fljótir að fara eftir tilmælum leikskólakennar-anna og stilltu sér upp við listaverkið.
velHeppnað sagna
og vísnakvöld
Það var vel heppnað sagna og vísnakvöldið sem haldið var í Lionshúsinu Efra Sandgerði
þann 20. nóvember s. l. Þar voru valin-
kunnir menn sem sögðu skemmtilegar
sögur um menn og málefni. Það var
mikið hlegið enda létt yfir fólki. Reyn-
ir Sveinsson stjórnaði samkomunni og
sagði frá lífi manna sem settu svip á bæj-
afélagið. Einar Arason sagði skemmti-
legar sögur af afa sínum Einari í Klöpp
og þeim prakkarastrikum sem í þá daga
voru algeng. Séra Sigurður Grétar sagði
skondnar sögur ásamt því að spila á gítar
og leiða fjöldasöng.
Silla E.
mikill kraFtur og uppgangur á ásBrú
Nýjasti bæjarkjarninn í Reykjanesbæ: Ásbrú sam-félag frumkvöðla, fræða og
atvinnulífs hefur vakið mikla athygli
fyrir góðan árangur í að byggja upp
nýtt samfélag frá grunni. Í byrjun
ársins 2007 var Ásbrú mannlaus
draugabær með óvissa framtíð. Í
dag horfir svo við að á Ásbrú búa
yfir 2.000 manns sem eru að stærstu
leyti ungt fjölskyldufólk sem kemur til
Ásbrúar til þess að búa til ný tækifæri
með því að auka við sig menntun.
Einnig hafa sú stórtíðindi gerst að
Keilir, miðstöð vísinda, fræða og at-
vinnulífs hefur útskrifað einn árgang
af tæknifræðingum. Keilir hefur átt
mikillar velgengni að fagna og eykst
stöðugt ásóknin í allar námsbrautir
þessa öfluga sprotafyrirtækis undir
forystu Hjálmars Árnasonar fram-
kvæmdastjóra.
Á sama tíma og Keilir byggir upp
þekkingu á Suðurnesjum þá eru
frumkvöðlar að hópa sig saman á í
þróunarsetrinu Eldey á Ásbrú þar
sem tækifærin virðast vera fjölmörg.
Að sögn Kjartans Þórs Eiríkssonar,
framkvæmdastjóra Kadeco, þá þjónar
Þróunarsetrið Eldey frumkvöðlum
og sprotafyrirtækjum, auk starfandi
fyrirtækja sem vilja efla sig með ný-
sköpun og vöruþróun: „Miklar endur-
bætur hafa staðið yfir í húsnæðinu í
Eldey til að tryggja að frumkvöðla-
setrið bjóði bestu mögulegu aðstöðu
fyrir frumkvöðla til að stíga sín fyrstu
skref, þróa viðskiptahugmyndir sín-
ar og koma sprotafyrirtækjum á
legg. Í byrjun þá horfðum við mest
til fyrirtækja í orkutengdum iðnaði
en í dag er Eldey orðið sannkallað
hönnunarhús þar sem hinar skapandi
greinar hafa flykkst hingað inn. Eldey
er í dag orðinn vinsæll áfangastaður
fyrir ferðamenn á Suðurnesjum þar
sem þeim gefst færi á að kynnast því
ferskasta í hönnun á Suðurnesjum.
Kjartan nefnir einnig fyrirtækja-
hótelið Eldvörp þar sem litlum og
meðalstórum fyrirtækjum býðst
flott sameiginleg aðstaða (fundaher-
bergi, ráðstefnuherbergi, kaffistofa,
salerni) og samvist með öðrum fyr-
irtækjum. Eldvörp eru frekar ætluð
fyrir þroskaðri fyrirtæki en Eldey og
jafnvel geta verið móttökustöð fyrir
fyrirtæki sem eru vaxin upp úr þró-
unarsetrinu.
Á Ásbrú eru ekki bara sprotafyr-
irtæki heldur eru yfir 100 fyrirtæki
og stofnanir af öllum stærðum og
gerðum með starfsemi innan Ás-
brúar. Þegar Kjartan er beðinn að
horfa til framtíðar þá nefnir hann að
Suðurnesjamenn hafi byggt upp mikla
þekkingu á tæknilausnum.
„Iðnfyrirtæki eru að koma til okkar
vegna styrkleika Suðurnesja í hagnýt-
ingu bæði sjávarfangs og jarðvarma.
Keilir er með rannsóknarmiðstöð og
tæknifræðinám sem snýr að þessum
kjarnasviðum. Fyrirtæki sækja því
bæði í að komast í rannsóknarsetr-
ið þeirra og einnig í að geta nýtt sér
nemendur við að rannsaka eða fram-
kvæma fýsileikakannanir á þáttum
sem liggja kannski fyrir utan daglegan
rekstur. Nýjasta iðnfyrirtækið sem
kemur hingað á Ásbrú er Málmey sem
sérhæfir sig í smíði á vélum og búnaði
fyrir fiskvinnslufyrirtæki. “
Kjartan er bjartsýnn á
framtíð Suðurnesja:
„Þegar við horfum fram í tímann
þá erum við hérna með samgöngu-
miðstöð Íslands í túnfætinum okkar
sem er Keflavíkurflugvöllur. Þegar við
horfum út í heim þá sjáum við að upp-
bygging í kringum flugvelli er miklu
meiri en í öðrum hverfum borga. Hér
á Reykjanesi eru gríðarleg tækifæri
tengd auknum flutningum með flugi.
Tökum sem dæmi nágranna okkar í
Grænlandi þar sem fjöldi náma- og
olíuvinnslufyrirtækja eru að undir-
búa mögulega vinnslu. Þessi fyrirtæki
gætu vel haft miðstöð á Ásbrú þar sem
þeir eru frábærlega tengdir bæði við
Evrópu og Bandaríkin þar sem flest
þessara fyrirtækja eru með höfuð-
stöðvar. Héðan eru svo regluleg flug
til Grænlands sem eiga bara eftir að
aukast í framtíðinni ef þessi tækifæri
verða að veruleika. “
þjóðlegir dagar á laut
Sú hefð hefur skapast á leik-skólanum Laut í Grindavík að krakkar sem eiga rætur að rekja
til annarra landa fá einn dag sér og
sínu landi til heiðurs. Á dögunum var
bandarískur dagur og svo nepalskur
dagur skömmu síðar.
„Sigurjón í Haga kynnti Nepal fyrir
Lautarkrökkum í máli og myndum
með aðstoð frá henni Stínu. Við feng-
um uppskrift að ljúffengum nepölsk-
um kjúklingarétti og meðlæti frá Eygló
mömmu Sigurjóns sem hún Begga
eldaði að sinni alkunnu snilld. Eygló
og Flóvent komu svo og borðuðu með
okkur –skemmtilegur dagur.
Fyrir um þrem vikum var amerískur
dagur hjá okkur en þá kynnti hún
Svanhildur í Hlíð okkur fyrir henni
Ameríku og fengum við hamborgara
og franskar í matinn þá, ” segir á
Heimasíðu Lautar.
(Heimasíða Grindavíkur)
Kjartan Þór eiríksson, fram-
kvæmdastjóri.
Ferða, safna og menningarnefnd Garði
göNguLeið frá Út-
skáLum að garðskaga
Verkefni nefndarinnar. Ferða- safna- og menn-ingarnefnd hefur víðtækt
svið til umfjöllunar. Byggðasafnið
á Garðskaga er ein mikilvæg-
asta stofnun bæjarins í ferðamál-
um. Bókasafn Garðs hefur vaxið
og dafnað eftir að það komst í
nýtt húsnæði. Á næstu fundum
nefndarinnar munu forstöðumenn
safnanna kallaðir til. Í sögu- og
menningartengdri ferðaþjónustu
og náttúrutengdri ferðaþjónustu
liggja margir vaxtasprotar. Árlegar
hátíðir s. s. Sólseturshátíð og Fersk-
ir vindar, hverskonar tónlistar- og
menningarhátíðir eru mikilvægar
fyrir íbúa og gesti. Vert er að minn-
ast hlutverks vitanna tveggja með
vetrarhátíð í vitunum. Aðstaða fyrir
ferðamenn á tjaldstæðinu á Garð-
skaga er ófullnægjandi og brýnt er
að leggja gönguleið frá Útskálum
að Garðskaga. Forgangsraða verður
verkefnum í tengslum við gerð fjár-
hagsáætlunar og ljúka verkefnum.