Reykjanes - 01.11.2012, Side 10
1. nóvember 201210
4 400 400
Njarðvíkurskóli.
skilvirkari árangur í
lestri og lesskilningi
Njarðvíkurskóli hefur unnið markvisst eftir Lestrar-stefnu sem unnin var af
deildarstjórum skólans frá hausti
2011. Niðurstöður lestrarprófa sýna
að þessi vinna hefur skilað betri og
skilvirkari árangri í lestri og lesskiln-
ingi á milli ára hjá allflestum nem-
endum. Samkvæmt stefnunni fá
nemendur sem ná ekki markmiðum
í lestri einstaklingsáætlun og hefur
þeim fækkað verulega á milli ára sem
þurfa slíka áætlun. Þessu má þakka
markvissri lestrarkennslu, jákvæðum
nemendum, samstíga kennarahópi og
áhugasömum og hvetjandi foreldrum.
Þá hefur nákvæm skráning á árangri
og eftirfylgni haft sitt að segja. Nem-
endur, kennarar og foreldrar eru afar
ánægðir með þann árangur sem hefur
áunnist og stefna á að gera enn betur
á komandi skólaári.
Menningarráð Reykjanesbæjar:
ramminn–nýting Húsnæðis
Formaður kynnti niðurstöðu vinnuhóps sem í sátu fulltrú-ar Umhverfis- og skipulags-
sviðs; Guðlaugur H. Sigurjónsson og
Björn Samúelsson og fulltrúar Menn-
ingarsviðs; Björk Þorsteinsdóttir, Val-
gerður Guðmundsdóttir og Sigrún
Ásta Jónsdóttir. Ráðið tekur undir
tillögu vinnuhópsins og mælir með
eftirfarandi skiptingu: Menningarsvið
hafi áfram umsjón yfir litla húsinu,
bátageymslunni, norðurhlutanum
(1200 m2) og miðhlutanum (1150
m2). Einnig verði Menningarsviði
falin umsjón á 650m2 af suðurhlutan-
um. Í norðurhluta og miðhluta MEN
yrðu áfram opnar safngeymslur safn-
anna í bænum og skrifstofuhúsnæði
Byggðasafns og Skjalasafns samkvæmt
Framtíðarsýn til 2015 en í suðurhluta
MEN væri hægt að koma upp sýning-
arplássi sem gæti þá nýst undir ýmsar
sýningar en þó ávallt í samstarfi og
með samningi við Menningarsvið/
Byggðasafn. Umhverfis- og skipulags-
sviði verði falin umsjón með með 400
m2 af suðurhlutanum undir geymslur.
Ráðið vekur athygli á að mikið
viðhald á Ramma er framundan á
næstu árum og hvetur til að hugað
verði að aðkomu annarra en bara
Reykjanesbæjar.
reynir í FramBoð
Reynir Þorsteinsson, skipasali í Garði hefur opinberað fram-boð sitt í 2-4. sæti. Reynir hef-
ur starfað að sveitarstjórnarmálum
var m. a. sveitarstjóri á Raufarhöfn
og kosningastjóri N-lista Oddnýjar
í Garði í kosningunum 2006. Reynir
gegndi stöðu formanns skólanefndar
Garðs eftir síðustu kosningar allt til
að meirihlutinn sprakk. Rétt er að
geta þess að það er í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins, sem Reyni sækist
eftir stuðningi flokksmanna.
skólaþing gerðaskóla
Formaður skólanefndar lagði til að haldið yrði skólaþing Gerða-skóla fyrripartinn í janúar sem
byggt yrði upp á svipuðum nótum og
„þjóðfundur“ þar sem að um er að
ræða daglangt þing sem krefst nokkurs
undirbúnings og er stýrt af einum verk-
stjóra. Þátttakendur eru hluti nemenda
og kennara í Gerðaskóla ásamt þver-
skurði af íbúum í Garði.
Markmiðið með þinginu er að
fá Garðbúa til þess að vera virkari
þátttakendur í skólastarfinu og nýta
krafta þeirra og hugmyndir til þess
að byggja upp betri skóla, að hugsa
Gerðaskóla til framtíðar og ná þannig
í lok fundar að leggja fram afurð sem
yrði drög að skólastefnu fyrir Gerða-
skóla.
Samfylkingin.
ólaFur þór ólaFsson geFur kost á sér
Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í 2.-3. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Suður-
kjördæmi, en ég hef verið hvattur til
þess af fólki í kjördæminu. Það er
mikilvægt að á Íslandi sé sterkur og
breiður jafnaðarmannaflokkur sem
leggur grundvöll að velferð og jöfn-
uði og ég vil leggja mitt af mörkum
til tryggja að Samfylkingin sé það
afl. Það hefur verið kallað eftir því
að nýtt og kröftugt fólk gefi kost á
sér til að takast á við þau fjölbreyttu
og krefjandi verkefni sem íslenska
þjóðin stendur frammi fyrir og ég tel
að þar geti ég orðið að liði.
Ég hef víðtæka reynslu af sveitar-
stjórnarmálum, hef setið í bæjarstórn
Sandgerðisbæjar frá 2002, leiddi
lista Samfylkingar og óháðra borg-
ara sem náði hreinum meirihluta í
sveitarstjórnarkosningum 2010 og á
sæti í stjórn Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum. Ég starfa sem forstöðu-
maður Fjölsmiðjunnar á Suðurnesj-
um auk þess að vera tónlistarmaður
í hjáverkum. Ég er með BA-próf í
stjórnmálafræði, hef kennsluréttindi
og er með MPA-gráðu í opinberri
stjórnsýslu. Eiginkona mín er Katrín
Júlía Júlíusdóttir og við eigum saman
þrjú börn.
Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki:
Fjölskyldurnar eru
Hornsteinn samFélagsins
-Hvers vegna hefur þú áhuga á þing-
mennsku?
Ég hef alltaf haft miklar og sterkar
skoðanir. Þær vil ég nota til að láta gott
af mér leiða og leggja mitt af mörkum
við uppbyggingu samfélagsins.
-Hver er helstu hagsmunamál
Suðurnesja í þínum huga?
Fjölskyldurnar eru hornsteinn sam-
félagsins. Þeim verður að skapa að-
stæður til að byggja sig upp. Það gerist
með sanngjörnum lausnum í skulda-
vanda heimilanna, hleypa þeim fjöl-
mörgu atvinnutækifærum sem hér eru
af stað og síðast en ekki síst að tryggja
að heilbrigðis- og löggæsluþjónusta sé
öflug á svæðinu.
-Fáum við álver í Helguvík?
Það er verkefni okkar allra að
tryggja að svo verði. Já við fáum álver
í Helguvík.
Hver er afstaða þín til ESB umsóknar?
Ég er andvígur aðild að ESB. Þjóð-
in átti að fá að kjósa um hvort sækja
átti um aðild. Það virðist vera mun
meira eftir af ferlinu en gefið er upp
og því ættum við að kjósa um það
strax hvort halda eigi ferlinu áfram
eða ekki. Öðruvísi næst ekki sátt í
samfélaginu.
suðurnesjaFólk sækist eFtir þingmennsku