Reykjanes - 01.11.2012, Qupperneq 12
12 1. nóvember 2012
Eyjólfur Eysteinsson formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum skrifar.
Flutningur á máleFnum
aldraðra til sveitarFélag
Velferðaráðherra skipaði nefnd árið 2011 um flutn-ing á málefnum aldraðar til
sveitarfélaga. Nefndina skipa full-
trúar ráðaneyta sem málið varðar,
Sambandi Íslenskra Sveitarfélaga,og
annara hagsmuaaðila svo sem fulltrú-
um eldri borgara, samtaka fyrirtækja
í heilbrigðisþjónustu og stéttarfélaga
starfsmanna í þjónustu heilbrigðis-
stofnanna.
Með þessu er stefnt að því að efla
sveitatstjónarstígið hefur það lengi
verið stefna sveirarfélaganna og færa
þjónustuna nær eldri borgurum.
Nefndin hefur fundað reglulega en
áætlað að hún skila tillögum um
flutning á málaflokknum á árinu 2014.
Samvinna sveitarfélaga
á Suðurnesjum.
Unnið er nú að tillögum að skipulagi á
þjónustu við eldri borgara á Suðurnesj-
um til framtíðar. Sveitarfélögin - sem
hafa samstarf um rekstur Dvalarheim-
ilis aldraðra Suðurnesjum - hafa frum-
kvæði að þeirri vinnu í samvinnu við
Samband Sveitarfélaganna á Suðurnesj-
um og eldri borgara fylgjumst vel með.
Samstarfið verði áfram
um rekstur DS.
Hugsanlegar breytingar á DS sem reka
hjúkrunarheimilin í Reykjanesbæ og
Garði eða skipulagi þjónustunnar
við eldri borgara á Suðurnesjum eru
ekki tímabærar. Eðlilegt er og sjálfsagt
verður að telja að höfð verði hliðsjón
af tillögum nefndar velferðarráðherra
um flutning á málefnum aldraðra til
sveitarfélaga en áætlað er að hún ljúki
störfum árið 2014.
Á myndinni er hluti stjórnar
FEBS við undirritun samnings milli
Reykjanesbæjar og ríkisins 11.11.2011.
Eyjólfur Eysteinsson,Jón Ísleifs-
son,Elsa Eyjólfsdóttir og Jórunn
A.Guðmundsdóttir.
duusHÚs gestatöLur 2012
Framkvæmdastjóri upplýsti að yfir sumarmánuðina júní, júlí og ágúst í ár hefði íslenskum gest-
um í Duushúsin fjölgað um 14 % frá
því í fyrra og erlendum gestum um 17
%. Gestir alls þessa þrjá mánuði voru
4.122 og þar af erlendir gestir 1186.
Ráðið fagnar þessari aukningu.
góður áraNgur í gerðaskóLa
Niðurstöður úr samræmdum könnunarprófum 10. bekkjar
bárust fyrir fáeinum dögum.
Einkunnir nemenda í Gerðaskóla
voru í tveimur tilvikum af þremur, þ.
e. í íslensku og stærðfræði, þær hæstu
sem sést hafa í Gerðaskóla a. m. k. sl.
sex ár sem voru athuguð. Hvað ensk-
una varðar þá erum við nú að sjá næst-
hæstu einkunn á umræddu tímabili. Í
mörgum tilvikum er virðisaukinn milli
7. bekk. og 10. bekk. verulegur, sem er
einkar ánægjulegt og það segir okkur
að við erum á réttri leið. Það er ekki
bara niðurstöðutalan sem skiptir máli
heldur ekki síður sá virðisauki sem til
verður á hverju ári. Hann segir hvernig
okkur miðar áfram.
Við, starfsfólk og nemendur Gerða-
skóla, erum vitanlega ánægð með út-
komuna og gleðjumst um stund, hins
vegar viljum við líka ná viðlíka árangri
í samræmdum prófum 4. og 7. bekkjar,
hvort sá árangur næst núna eða síðar
verður að koma í ljós. Hins vegar er
ljóst að nemendur og starfsfólk Gerða-
skóla hefur alla burði til að ná ásætt-
anlegum námsárangri í framtíðinni.
sérFræðingar í
skólamálum á þing?
Þeim fjölgar Gareðmönnum sem ætla sér stóra hluti í næstu þing-
kosningum. Oddný situr á þingi og
stefnir á forystusæti hjá Samfylk-
ingunni. Ásmundur Friðriksson,fv.
bæjarstjóri stefnir á 3.sæti hjá Sjálf-
stæðisflokknum. Reybir Þorsteinsson
fv.formaður skólanefndar Garðs stefnir
á 2.til 4.sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í
kjördæminu. Allt hefur þetta fólk mikla
þekkingu og reynslu í skólamálum.
Ásmundur og Reynir beittu sér t.d. af
mikilli hörku í skólamálunumí Garði,
þótt deilt sé um árangurinn.Flestir
telja víst að Sjálfstæðisflokkurinn sitji
í næstu ríkisstjórn. Það verður því
mikið fagnaðarefni fyrir Suðurnesja-
menn og reyndar landsmenn alla verði
Ásmundur menntamálaráðherra og
Reynir Þorsteinsson formaður mennta-
málanefndar Alþingis.
Einelti.
jákvæðar
Niðurstöður
Niðurstöður úr ein-
eltiskönnun Gerðaskóla
Nafnlaus könnun var lögð fyrir
nemendur í 4. sept. sl. í 4-10 bekk
og niðurstöður úr könnuninni
eru jákvæðar um vinnuna sem er í
gangi í eineltismálum í skólanum.
viNsæLa
þorrabLótið
í jaNÚar
Eitt allra vinsælasta þorrablæót síðustu ára hefur verið haldið
í Íþróttamiðstöðinni í Garði. Frá-
bær matur og flott skemmtiatriði
hafa einkennt þorrablótin. Enn á ný
er blásið til þorrablóts. Það verður
haldið 19. janúar 2013. Á morgun
2. nóvember hefst miðasala og eins
gott að vera tímanlega á ferðinni til
að tryggja sér miða.
laugardaginn 19. janúar 2013 í íþróttahúsinu í Garði
Það má því búast við
stórkostlegri skemmtun í
Garðinum þann 19.
janúar 2013 og til að
bóka miða fyrir hópa má
hringja annað hvort í
Þorstein Jóhannsson hjá
Björgunarsveitinni Ægi í
síma 896 7706 eða í
Guðlaugu Sigurðardóttur
hjá Knattspyrnufélaginu
Víði í síma 663 7940.
Á Þorrablótinu verður glæsilegt hlaðborð
þjóðlegra rétta í bland við glæsilega
skemmtidagskrá. Þannig munu Fjallabræður
og hljómsveitin Buffið halda uppi fjörinu allt
kvöldið. Víðisfilm kemur með óvænt atriði.
Fjölmörg önnur skemmtiatriði eru í pípunum.
Veislustjóri kvöldsins verður leikkonan Anna
Svava Knútsdóttir sem nú fer á kostum í
auglýsingum VÍS.
Forsala aðgöngumiða er í Víðishúsinu
2. nóvember kl. 19-21. Miðaverð kr. 7500,-
Snjó kall inn skrif ar:
aðalfundur Hvalsnessóknar
Fimmtudaginn 8. nóvember kl. 20.00 í Safnaðarheimilinu í
Sandgerði. Kaffiveitingar á staðnum.
Dagskrá:
1. venjuleg aðalfundarstörf.
2. Umræða um tónlistarmál safnaðarins.
3. Önnur mál.
Sóknarnefnd
ERNA
Skipholti 3 - Sími: 552 0775
www.erna. is
Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA
Fyrir orrustuna um Milvian brú yfir Tíberfljót, 28. október
312 fyrir réttum 1700 árum, sá
Konstantín mikli teikn krossins
á himni og orðin “in hoc signo
vinces” “Undir þessu tákni muntu
sigra”. Árið 313 er Konstantín var
orðinn keisari veitti hann kristnum
mönnum trúfrelsi eftir langvarandi
ofsóknir.
Menin eru smíðuð á Íslandi eftir hugmynd
Dr Gunnars Jónssonar og fást silfurhúðuð á 3.500,-
úr silfri: 5.900,- (með demanti: 11.500,-) og
úr 14k gulli á 49.500,- (með demanti: 55.000,-).
IN HOC SIGNO VINCES
(Undir þessu tákni muntu sigra)