Reykjanes - 01.11.2012, Page 14
14 1. nóvember 2012
aFlatölur Frá Fyrri tíð
Það fór eins og ég hafði skrifað seinast að Pálína Ágústdótt-ir GK varð fyrst til að koma
suður aftur og hefur báturinn land-
að í Sandgerði og er búinn að landa
um 40 tonnum í 11 róðrum. Um
helmingur aflans hefur verið landað
í Sandgerði. Daðey GK kom rétt á eftir
Pálínu og hefur Daðey GK gengið ansi
vel. Komist í um 8 tonn í róðri og er
kominn yfir 100 tonnin, auk þeirra
er Dúddi Gísla GK að róa og Örninn
GK er byrjaður og landaði 6 tonnum
í Sandgerði í fyrsta róðri sínum. .
Af stóru línubátnum þá má nefna
að Jóhanna Gísladóttir ÍS er kominn
með 373 tonn, Kristín ÞH 368 tonn,
Sturla GK 321 tonn allir eftir fjór-
ar landanir. Hafa bátarnir landað á
Þingeyri, Húsavík og í heimahöfn
Grindavík. Sighvatur GK er kominn
með 294 tn í 3 og landaði báturinn
120 tonnum í einni löndun og er þetta
mesti afli sem báturinn hefur komið með að landi í einni sjóferð. Tómas
Þorvaldsson GK er með 279 tonn í
4, Ágúst GK 272 tn í 4.
Gulltoppur GK sem er á Djúpavogi
og á balalínu er kominn með 144 ton
í 19 róðrum, Grímsnes BA sem er á
Bíldudal er með 44 tn í 13.
Mikil veðurblíða er búinn að vera
á miðunum og hafa dragnótabátarn-
ir nýtt sér það og sótt nokkuð stíft
á miðin, aflinn hefur verið ágætur.
Sigurfari GK er með um 72 tonn í
12, Örn KE 71 tn í 13. Eru þessir tveir
bátar með afgerandi meiri afla enn
aðrir bátar héðan af svæðinu. Njáll RE
sem er í bugtinni er með um 40 tonn
í 9 róðrum og kom mest með tæp 11
tonn í einni löndun. Farsæll GK frá
Grindavík er með um 36 tonn í 10,
Benni Sæm GK 29 tn í 7.
Þegar þessi orð eru skrifuð þá ligg-
ur vefur Fiskistofu niðri og því eru
nýjustu aflatölur ekki aðgengilegar
þannig að ég ætla að fara nokkur ár
aftur í tímann og skoða ýmislegar
aflatölur frá Suðurnesjunum og
miðast það við Október árið 1980. Þá
voru mjög margir bátar að róa á þessu
svæði og var mestur fjöldi bátanna á
línuveiðum. Ætla ég að skoða bát-
anna sem voru yfir 15 tonn að stærð,
langmestur fjöldi bátanna var að róa
frá Sandgerði og þar var mikið um
11 tonna bátalónsbátanna eins og t.
d Sóley KE, Fram KE og Sæljóma GK.
Í Grindavík þá var Már GK 55 fékk
51 tonn í 14 róðrum um 3,6 tonn í
róðri. Máni GK sem var í eigu sömu
útgerðar og Már GK fékk 54 tonn í
15 róðrum, Sigrún GK 380 fékk 67
tonn í 21 róðri. Vörðunes GK var með
68 tonn í 17 róðrum allt eru þetta
línubátar.
Í Sandgerði var Miðnesbáturinn
Elliði GK á trolli og fékk 75 tonn í
6 löndunum sem gerir um 13 tonn í
róðri. Þar var líka nýr bátur sem hét
Magnús Kristinn GK 99 sem hafði
verið keyptur til Sandgerðis um
sumarið, sá bátur var á línuveiðum
og landaði 58 tonnum í 16 róðrum.
Víðir II GK sem er ennþá til í dag og
heitir Portland VE var á línuveiðum
og var með 19 tn í 5 róðrum. Keil-
ir GK var með 42 tn í 14 róðrum,
Þorsteinn KE 10 var með 12 tn í 10
og Brimnes RE 204 var með 48 tn í
10 allir á línu. Einar Magnússon eða
Einar á Óskinni KE, faðir hans var
mikill aflamaður og var skipstjóri á
báti sínum Bergþóri KE. Iðulega þá
var Bergþór KE að róa frá Sandgerði
og þarna var hann með 66 tonn í 8
róðrum á línu,8,3 tonn í róðri. Hólm-
steinn GK sem núna er geymdur við
Garðskagavita var á netum og landaði
37 tonnum í 15 róðrum. Arnarborg
KE var á línu og með 63 tonn í 15
róðrum. Sigurjón GK var með 47
tonn í 19 á línu. Albert Ólafsson KE
39 var á netum og var með 17 tonn
í 2 róðrum. Jón Gunnlaugs GK sem
var í eigu Miðnes HF var á trolli og
fékk 48 tn í 6 róðrum, þriðji Miðnes
báturinn var svo Reynir GK 177 sem
var á trolli og fékk 44 tonn í 4 róðrum
Í Keflavík var Vatnsnes KE 30 á línu
og landað i 31 tonn í 18 róðrum, Binni
í Gröf KE var á línu og með 55 tonn í
16 róðrum. Happasæll KE er nú báts-
nafn sem margir Keflvíkingar þekkja
því bátar með þessu nafni hafa verið
gerðir út frá Keflavík í hátt í hálfa öld,
þarna var gamli Happsæll KE sem
var á undan bátnum sem í dag heitir
Grímsnes BA, Eins og alltaf þá var
Happasæll KE á netum og fékk 65
tn í 15 róðrum. Annar mjög þekktur
bátur var líka þar enn það var Gunnar
Hámundarsson GK sem var á netum
og landaði 27 tonnum í 14 róðrum.
Sigurbjörg KE var á línu og fékk 53
tonn í 16 róðrum. Sæborg KE 177 var
á línu og með 57 tonn í 15 róðrum.
Jóhannes Jónsson KE 79 var með 32
tonní 15 á netum. Svanur KE 90 sem
var brotin niður í Helguvík í febrúar
2010 var á línu og var með 73 tonn
í 20 róðrum
Í dag er enginn útgerð í Vogum enn
þennan tiltekna mánuð þá var nú smá
útgerð frá Vogum og þar var Ágúst
Guðmundsson GK sem Valdimar í
Vogum gerði út, var báturinn á netum
og landaði 28 tonnum í 12 róðrum
Gísli R.
2 f
yri
r 1
Aflafréttir
Ferða, safna og menningarnefnd Garði
fugLaskoðuN og NorðurLjós
• Norðurljósaferðir á Garðskaga eru
afar vinsælar. Brýnt er að minnka
ljósmagn á svæðinu sem truflar þá
upplifun að njóta norðurljósanna.
• Þörf er á upplýsingaskilti sem vísar
veginn að sjóhúsinu á Lambastöð-
um.
• Fuglaskoðunarhús var teiknað
fyrir nokkrum árum og ráðgjöf
fengin hjá sérfræðingi varðandi
staðsetningu. Mikill vaxtabrodd-
ur er í fuglaskoðun á landinu og
er Garðurinn mikilvægur fugla-
skoðunarstaður. Þörf er á að fara
aftur af stað með þetta verkefni.
Rýnihópur um málefni aldraðra og fatlaðra í Garði.
staðið verði við samkomulag
Tillaga nefndarinnar varðandi framtíð Garðvangs:
Nefndin leggur til að staðið verði við samkomulag sem sveitarfé-
lögin gerðu með sér 2004 um upp-
byggingu Garðvangs.
Nefndin leggur til að farið verði
eftir Framtíðarsýn 1 sem kynnt var á
aðalfundi DS 29. maí 2012 af Sigurði
Garðarssyni.
Sérbýli fyrir fatlaða.
Málefni fatlaðra
Nefndin leggur til að kannaðir
verði möguleikar á að koma upp
sérbýli fyrir fatlað fólk í Garðinum
og kannaður verði rekstrargrund-
völlur þess.
Nefndin fór yfir ýmis gögn varð-
andi þennan málaflokk og ákveðið
var að fá Friðrik Sigurðsson fram-
kvæmdarstjóra Landssambands
Þroskahjálpar til að kom á næsta
fund.