Reykjanes - 13.06.2013, Blaðsíða 12
Ný kynslóð
sólarkrema
Lækjargötu 34 • Hafnarfirði • Opið þriðjudaga kl 14 - 18
Sími 565 0500 • 897-1923
Swiss Nature fást á vefsíðunni www.scincare.is eða í
www.snarverk.is • Snarverk ehf
Steypusögun og kjarnaborun • Alhliða gröfuþjónusta
Gröfum fyrir sólpöllum, drenlögnum og skolpi.
Öll almenn jarðvegsskipti,
fjarlægjum jarðveg og komum með nýjan.
Snarverk ehf • sími 863-1291
13. júní 201312
Eldri borgarar sýna dans
Tónlistarnám fyrir unga sem aldna
Viðburðarríku skólaári Tónlist-arskóla Sandgerðis er lokið og ótal sigrar hafa unnist
hjá nemendum og kennurum. Okkar
einstöku nemendur hafa lagt á sig
mikla vinnu við þrotlausar æfingar
undanfarna mánuði og uppskorið eftir
því GLÆSILEGAN ÁRANGUR!
Nemendur tóku þátt í fjölda við-
burða við hin ýmsu tækifæri og eiga
sannarlega skilið hrós fyrir dugnað,
vandvirkni, metnað og fyrirmyndar
framkomu. Nemendur eru okkar stolt
og hafa ætíð verið skólanum til mikils
sóma.
Fyrir skömmu síðan barst yfirlit frá
prófanefnd tónlistarskóla, samantekt á
árangri nemenda Tónlistarskóla Sand-
gerðis á grunnprófum í hljóðfæraleik
og einsöng frá vori 2004 til vors 2012,
þ. e. samanburður við landsmeðaltöl
á þessu tímabili. Tónlistarskóli Sand-
gerðis er í kringum meðallag öll árin.
Skólastjóri, Lilja Hafsteinsdóttir, er
ánægð með útkomuna og telur nám
og kennslu vera á réttri braut.
Svo góður árangur næst með sam-
viskusömum nemendum, metnað-
arfullum kennurum og stuðningi og
eftirfylgni foreldra/forráðamanna.
Lilja hvetur alla nemendur til
áframhaldandi tónlistarnáms næsta
haust, það er sífellt hægt að bæta við
kunnáttuna og öðlast með því aukna
færni í hljóðfæraleik.
Tónlistarnám er ekki bara fyrir út-
valda, heldur fyrir alla þá sem hafa
áhuga, jafnt unga sem aldna. Lilja
hvetur áhugasama Sandgerðinga
endilega til að hafa samband hafi
þeir hug á tónlistarnámi. Hægt að
leggja inn umsóknir fyrir skólaárið
2013-2014, enn eru nokkur laus pláss
á hin ýmsu hljóðfæri. Hikið ekki við
að spyrjast fyrir, því gamlir draumar
jafnt sem nýir geta auðveldlega orðið
að veruleika.
Í tónlistarskólanum starfa fjölhæfir
og metnaðarfullir kennarar sem eru
tilbúnir að deila með ykkur kunnáttu
sinni.
Þekking sprettur af áhuga og æf-
ingin skapar meistarann.
(Heimasíða Sandgerðis)
Það er mikið starf sem fram fer hjá Félagi eldri borgara á Suðurnesjum. Einn hópur æfir stíft dans og keppir m. a.
á Landsmóti 50 plús. Ápur en haldið var í keppnisferðalagi sýndi danshópurinn á nesvöllum hveru flott þau eru.
Reykjanesbær:
Ljósanótt 2013
Menningarráð Reykjanes-bæjar ræddi ræddi á síð-asrta fundi sínum um
vinnulag í tengslum við Ljósanótt og
umræður sköpuðust um ákveðin atriði.
Framkvæmdastjóri upplýsti að þegar
væru mörg verkefni komin í gang og
nýttust þjónustusamningar menning-
arhópa vel þegar Ljósanótt er annars
vegar. Ráðið hvetur til þess að leitað
verði til Unglingaráðs körfuknattleiks-
deilda Keflavíkur og Njarðvíkur um
umsjón með sölutjöldum og til Félags
myndlistarmanna um umsjón á hand-
verkstjöldum.
Vonast er til að fyrirtæki á svæð-
inu hafi tök á að koma að fjármögnun
eins og verið hefur og félagasamtök í
bænum gætu komið að sem sjálfboða-
liðar. Ráðið hvetur alla aðila sem áhuga
hafa á að koma að Ljósanótt með ein-
hverjum hætti til að hafa samband á
netfangið ljosanott@ljosanott.is.