Reykjanes - 27.06.2013, Side 4
4 27. júní 2013
Álver eða ekki
álver í Helguvík ?
Orkumál og virkjunarmál hafa mikið verið til umræðu að undanförnu. Ríkisstjórn
Framsóknar og Sjálfstæðisflokks boða
endurskoðun á rammaáætlun. Það
mun t. d. þýða að opnað verður fyrir
að virjað verði í neðri hluta Þjórsár. Í
umræðunni er mikið fjallað um fram-
kvæmdir við álver í Helguvík. Dregin
hefur verið upp sú mynd að ekki sé
til nægjanleg orka til að starfsmemi
þar geti farið af stað. Margir hér á
Suðurnesjum spyrja er það virkilega
svo að ekkert verði úrt framkvæmdum
eða rekstri álvers í Helguvík næstun
árin. Reykjanes leitaði svara um stöðu
mála og framtíðarhorfur hjá Árna
Sigfússyni, bæjarstjóra, Ragnheiðar
Elínar Árnadóttur, iðnaðarráðherra,
Oddnýjar G. Harðardóttur, alþingis-
manns og Ragnars Guðmundssonar,
forstjóra Norðuráls.
Staða framkvæmda í Helguvík
Framkvæmdastjóri Atvinnu-og hafnaráð skýrði frá stöðu mála
vegna álversins og kísilversins í Helgu-
vík og öðrum framkvæmdum sem eru
tengd stóriðjuframkvæmdunum. En
öll þessi verkefni eru háð orkuöflun
til Helguvíkur, sem eru í fullri vinnslu.
Ragnars Guðmundssonar, forstjóra Norðuráls.
Þúsundir ársverka í húfi
Norðurál er fyrir sitt leyti til-búið að ljúka byggingu og hefja rekstur álvers í Helguvík.
Það sem vantar er staðfesting á orkuaf-
hendingu. Ef menn einhenda sér í að
leysa það sem útaf stendur þá getur allt
verið komið á fulla ferð síðar á árinu.
Öll leyfi og samþykktir fyrir 250 þúsund
tonna álveri liggja fyrir.
Fyrstu áfangarnir í Helguvík eru
um 180 þúsund tonn samtals og nota
rúmlega 300 MW. Samkvæmt ný-
legum fréttum gæti verið til ónýtt orka
í landinu sem nemur 100 til 200 MW
eða um helmingur þess sem þarf. Þetta
er orka sem hægt er að selja strax án
nokkurrar fjárfestingar. Það þarf því
ekki mikið til að komast á beinu braut-
ina, af nógu er að taka fyrir þetta verk-
efni og ýmis önnur verkefni samkvæmt
nýsamþykktri rammaáætlun.
Enginn vafi er á því að Helguvík
hentar vel fyrir álver. Hafnaraðstaða þar
er góð og öflug þjónustu, byggingar- og
þekkingarfyrirtæki í nágrenninu. Þarna
er stórt atvinnusvæði með ríflega 21
þúsund íbúa og aðgangur að vel mennt-
uðu og hæfu vinnuafli.
Ef ráðist er í uppbyggingu 180 þús-
und tonna álvers, þá má ætla að um
5.000 ársverk skapist á um það bil
fjórum árum, þ.e. 1.000 til 1.500 störf
á hverjum tíma í um 4 ár. Af þessum
framkvæmdum skapast síðan 1.000 var-
anleg störf, bæði bein og óbein. Hér er
því mikið í húfi.
Árni Sigfússon,bæjarstjóri
Spurning um verð
fyrir orkuna – ekki magnið!
Eins og án efa kemur ítrekað fram hjá öðrum sem hér er rætt við er til næg orka í
landinu- rammaáætlunin staðfestir
það, hvort sem stuðst er við þá áætlun
sem fyrrverandi ríkisstjórn lét sam-
þykkja hvað þá með þeim viðaukum
sem nú verða gerðir af nýju þingi.
Það er frábært að finna þann ein-
arða stuðning sem þetta verkefni fær
nú hjá báðum ríkisstjórnarflokk-
unum. Ragnheiður Elín, iðnaðarráð-
herra, talar mjög skýrt í þessu máli
og ég veit að hún hefur hitt forsvars-
menn verkefnisins ítrekað og kallað
eftir framgangi. Það þýðir a.m.k.
að ríkisstjórnin mun ekki íþyngja
væntanlegum samningum með
skattahækkunum eða hækkunum á
flutningskostnaði. Hún vill liðka til
fyrir að þetta verði.
Ekki efa ég að allir þingmenn kjör-
dæmisins munu leggjast fast á árar til
stuðnings þessu máli.
Eftir stendur að semja um orkuverð.
Þar þarf tvo til, þann sem vill kaupa
og þann sem vill selja. Sá sem vill selja
orkuna þarf að tryggja að hann fái
ásættanlegt verð fyrir orkuna. Hann
þarf jú að virkja með tilheyrandi
kostnaði. Sá sem vill kaupa þarf að
tryggja að það verð sem hann kaupir
orkuna á sé þolanlegur hluti af rekstr-
arkostnaði til framtíðar og í samræmi
við söluverðmæti vörunnar. Nú þurfa
þessi aðilar þ.e. Norðurál annars vegar
og hins vegar HS Orka, landsvirkjun
og Orkuveitan að ná saman um verðið.
Oddný G. Harðardóttir, alþingismaður:
Brýnt að niðurstaða fáist sem allra fyrst
Ekki þarf að fara yfir það með okkur Suðurnesjamönnum hvaða áhrif álver í Helguvík
hefði á samfélögin. Því myndi fylgja
fjöldi starfa bæði við álverið og einnig
margvísleg störf vegna þjónustu við
álverið. Biðin eftir því er orðin löng og
afar brýnt fyrir okkur Suðurnesjamenn
að niðurstaða fáist sem allra fyrst um
hvort það tekur til starfa eða ekki.
Samningar á
viðskiptalegum grunni
Ef HS Orka og Norðurál ná ekki saman
um orkuverð þá mun álver í Helguvík
ekki verða að veruleika. Jafnvel þó sá
samningur náist þarf til viðbótar að
ná samningum við önnur orkufyr-
irtæki um þá orku sem uppá vantar
fyrir starfsemina. Vonandi kemur
niðurstaða í þær viðræður sem fyrst
því aðalatriðið er uppbygging atvinnu
á Suðurnesjum. Á meðan samningar
takast ekki líður tíminn og lengist
sem fer í að bíða eftir atvinnutækifær-
unum. Önnur tækifæri sem gætu nýst
Suðurnesjamönnum fara framhjá þar
sem öll orka sem mögulega er hægt að
finna er upppöntuð fyrir álverið sem
kannski kemur. Það skiptir því mjög
miklu máli að niðurstaða fáist þannig
að álverið fari sem fyrst í gang eða að
öðrum kosti svo setja megi kraft í að
fá önnur fyrirtæki á svæðið.
Við skulum ekki gleyma því að fyr-
irtækin hvert um sig hugsa um sinn
hag fyrst og fremst en það er hlutverk
sveitarstjórnarmanna og þingmanna
að gæta að hag almennings.
Er til næg orka?
Þegar sveitarstjórnarmenn á
Suðurnesjum voru að fjalla um og
undirbúa að álver í Helguvík gæti
tekið til starfa var talið að helsta
vandamálið væri orkuflutningur og
samningar um línulagnir við sveitar-
félög. Við sveitarstjórnarmenn vorum
fullvissaðir um á hverjum fundinum
á fætur öðrum að næg orka væri
fyrir hendi af forstjóra Hitaveitu
Suðurnesja og þáverandi formanni
stjórnar hitaveitunnar, bæjarstjór-
anum í Reykjanesbæ. Ef efasemdir
komu upp í umræðunni var farið yfir
tækifærin sem fælust í djúpborun og
tilraunir með borholur sem framleitt
gætu margfalt meiri raforku en aðrar
borholur. Vonir sem bundnar voru við
djúpborun á þeim tíma voru byggðar
á ofmikilli bjartsýni og nú er ljóst að
sú tækni bjargar engu í orkumálum í
nánustu framtíð.
Rætt er um að skortur sé á þekkingu
og reynslu á rekstri jarðhitavirkjana.
Flestir sérfræðingar segja að aldrei
sé hægt að fullyrða neitt um virkjun
á þeim svæðum. Þar sé alltaf ákveðin
óvissa til staðar og þess vegna þurfi
að bora rannsóknarholur til frekari
upplýsingaöflunar áður en vinnslu-
holur eru boraðar. Ég held að í raun
sé ekki vitað með vissu hve mikla orku
HS Orka geti afhent til álversins fyrr
en frekari rannsóknir hafa farið fram.
Rammaáætlun
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
fór í einu og öllu eftir lögbundnu ferli
rammaáætlunar. Stjórnarandstaðan
þáverandi hélt öðru fram og klifaði
stöðugt á “pólitískum fingraförum”
sem þyrfti að afmá og boðuðu að ef þau
kæmust til valda yrði rammaáætlun
breytt. Nú eru þau komin til valda og
umhverfisráðherra hefur nú þegar
gefið það út á heimasíðu ráðuneytis-
ins að rammaáætlun verði ekki breytt
og áherslur verði áfram í samræmi við
lög um rammaáætlun og fyrirliggjandi
þingsályktunartillögu. Þessari hugar-
farsbreytingu umhverfisráðaherrans
fagna ég þó hinir sem kusu stjórnar-
flokkana vegna loforða um á breytingu
á rammaáætlun, fagni varla með mér.
Ef virkjanakostir í neðri hluta
Þjórsár verða að loknu faglegu mati
flokkaðar í nýtingarflokk fer nýtt
umhverfismat fram og mögulegt er
að ráðast í virkjanaframkvæmdir að
því loknu. Ef virkjanakostirnir verða
flokkaðir í verndarflokk þá fer frið-
lýsingarferlið í gang. Að rammaáætlun
hefur verið unnið í fjölda ára og að síð-
asta áfanganum síðan árið 2007. Með
rammaáætlun er fengin framtíðar-
sýn sem myndar skýran grunn undir
stefnumótun stjórnvalda og áætlana-
gerð atvinnulífsins og um leið undir-
strikar hún mikilvægi náttúruverndar.
Ég fagna því að ný ríkisstjórn ætli, eins
og sú fyrri, að fara eftir lögbundnu ferli
og vinna þannig að sátt um vernd og
nýtingu orkusvæða.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,iðnaðarráðherra
Gríðarlega
mikilvæg framkvæmd
Eins og allir vita er ég eindreginn stuðningsmaður þess að álverið rísi í Helguvík og hef ítrekað
sagt að ég muni gera allt sem ég get í
krafti míns embættis til að svo megi
verða. Með öðrum orðum – ég mun
gæta þess að það stoppi ekkert á mínu
borð sem varðar þetta verkefni. Ríkis-
stjórnin er einhuga um þetta og hafa
formenn beggja stjórnarflokkanna lýst
stuðningi við þessa framkvæmd. Ég hef
ekki mestar áhyggjur af því að ekki sé
til nægileg orka – spurningin snýst um
verð fyrir orkuna. Þar verða menn að
ná samkomulagi og ég vona að niður-
staða fáist í það sem allra fyrst. Ríkis-
valdið kemur ekki að þeim samningum
og á endanum er þetta alltaf ákvörðun
sem tekin er á markaðsforsendum. En
ég trúi því að stuðningur stjórnvalda
skipti máli og það að menn finni að
verkefnið er velkomið. Þetta er gríðar-
lega mikilvæg framkvæmd, ekki bara
fyrir okkur Suðurnesjamenn, heldur
landsmenn alla og óþolandi að búa við
þessa óvissu ár eftir ár. Ég mun gera
mitt til þess að henni verði eytt.