Reykjanes - 27.06.2013, Síða 14
14 27. júní 2013
Minningarskilti um Einar Ben
og Hlín afhjúpað í Herdísvarvík
Laugardaginn 15. júní 2013, kl 14: 00, var afhjúpað minningarskilti um búsetu þjóðskáldsins Einars
Benediktssonar og Hlínar Johnson, síð-
ustu ábúendur í Herdísarvík í Selvogi.
Nemendafélagið Grimmhildur, félag
H-nemenda (e. mature students) á
Hugvísindasviði við Háskóla Ís-
lands, hafði með stuðningi hollvina
Herdísarvíkur látið útbúa minn-
ingarskiltið. Þá var einnig afhjúpað
örnefnaskilti sem áhugamannafélagið
FERLIR hafði veg og vanda að.
Á því er að finna margvíslegan
fróðleik sem FERLIR hefur aflað um
staðhætti, tóftir sjóbúða og búskap á
jörðinni, bæði með aðstoð örnefna-
lýsinga og hinna elstu manna, Þórarins
Snorrasonar á Vogsósum og Þórðar
Sveinssonar úr Selvogi, er enn muna þá
tíð er búskapur var í Herdísarvík. Auk
þess veitti Ingólfur Árnason, barnabarn
Hlínar góðar upplýsingar um svæðið.
Einar Benediktsson ánafnaði Há-
skóla Íslands jörðina Herdísarvík, sem
í hans tíð var afskekkt. Með tilkomu
Suðurstrandarvegar er Herdísarvík
komin í alfaraleið. Við það opnast nýir
möguleikar til að sinna verndun við-
kvæmra sögu- og menningarminja sem
þar eru. Uppbygging Herdísarvíkur
getur orðið mikilvægt skref í átt til þess
að minningu skáldsins sé haldið á lofti.
Á minningarskiltinu má m. a. lesa
eftirfarandi: “Hér stendur síðasta
heimili þjóðskáldsins Einars Bene-
diktssonar og sómakonunnar Hlínar
Johnson. Bæði voru þau sannir heims-
borgarar sem fluttu til Herdísarvíkur,
í lítið hús við sjóinn í afskektri sveit,
þar sem útsærinn er á aðra hönd og
klettahamrarnir á hina. Einar ánafnaði
Háskóla Íslands jörðina með gjafarbréfi
árið 1935.
Einar Benediktsson var fæddur 31.
október 1864 að Elliðavatni, sonur
hjónanna Benedikts Sveinssonar, sýslu-
manns og alþingismanns, og Katrínar
Einarsdóttur frá Reynivöllum í Skaga-
firði. Einar nam við Lærða skólann og
las síðan lög við Hafnarháskóla. Hann
kvæntist Valgerði Zoëga (1881-1955)
og varð þeim sex barna auðið. Þau
skildu.
Einn þekktastur varð Einar Bene-
diktsson fyrir skáldskap sinn en hann
var einnig kunnur sem stórhuga frum-
kvöðull og lífskúnstner. Hann starf-
aði sem lögfræðingur og sýslumaður
og var bæði fyrsti dagblaðsútgefandi
og fasteignasali á Íslandi. Einar þótti
örlátur og gjafmildur gleðinnar maður.
Einar Benediktsson hefur verið kall-
aður “. . . einhver jötunefldasti andi
sem fæðst hefur á Íslandi “ [Guðjón
Friðriksson, 2000]. Síðustu átta árin
dvaldi hann í Herdísarvík ásamt Hlín.
Hér lést hann 12. janúar árið 1940.
Hlín Johnson (f. 16.11.1876, d.
15.10.1965) fæddist að Sandhaugum í
Bárðardal. Hún giftist Ingólfi Jónssyni
frá Jarlsstöðum í sömu sveit og varð
þeim átta barna auðið. Þau skildu. Hlín
þótti listagóð saumakona, sem saumaði
bæði kven- og karlmannsföt. Þau Einar
og Hlín kynntust árið 1927 og fluttu til
Herdísarvíkur í júlí 1932 og tók Hlín
við bústjórninni. Hér í Herdísarvík var
búskapur með kýr, sauðfé, hænsni og
endur. Fiskur var veiddur úr tjörninni
og seldur til erlendra sjómanna, ásamt
lagnaðarís úr tjörninni sem geymdur
var í sérstöku íshúsi [nú horfið] hér
á staðnum. Lambakjöt og bleikja var
reykt í reykofni og var frægt að gæðum,
ekki síður en göróttur landinn sem
Hlín bruggaði.
Halldór Laxness lýsti Hlín með
þessum orðum: “. . . lík fornkonu,
þolir ekki annað lögmál en sjálfrar
sín, og þess vegna fer strandleingjan
og fjallið og einveran og úthafið henni
best” [Björn Th. Björnsson]. Hlín bjó í
Herdísarvík allt fram um 1960.
Höfundarverk Einars er æði mikið.
Eftir hann liggja meðal annarra verka:
Sögur og kvæði, Hafblik, Hrannir,
Vogar og Hvammar, ásamt þýðingum,
ritgerðum og fleiru. Margir íslenskir
málshættir eiga rætur sínar í ljóðum
Einars”.
Athöfnin var öllum opin. Erindi
fluttu m. a. Halldór Blöndal, fyrrum
alþingismaður, ráðherra og forseti Al-
þingis og Illugi Gunnarsson, mennta-
málaráðherra. Komst þeim báðum vel
að orði, bæði til minningar um Einar
og Hlín sem og tengsl þeirra við Her-
dísarvíkina á síðustu æviárum skálds-
ins. Lét Illugi þau orð falla í kjölfar tölu
sinnar “að hann væri enn ekki búinn að
venjast því að tala sem ráðherra”, en að
teknu tilliti til tölunnar lærist honum
það vonandi aldrei - því talan var bæði
einstaklega einlæg og efnisrík.
Jóhann Davíðsson hélt “velkomst”
við sögu- og minjaskiltið og bauð síðan
Guðrúnu Ásmundsdóttur, leikkonu að
afhjúpa það. Að orðum hennar loknum
var eins og við manninn mælt; tók þá
svo til samstundis sólin að skína með
tilheyrandi yl og hlýju.
Í lok formlegrar afhjúpunar leiddi
FERLIR stutta göngu um svæðið. Að
henni lokinni var boðið upp á kaffi-
hressing í húsi skáldsins og Hlínar.
Frá 1895 til 1927 bjó í Herdísarvík
með fjölskyldu sinni Þórarinn Árna-
son, sonur Árna Gíslasonar stórbónda í
Krýsuvík og fyrrum sýslumanns Skaft-
fellinga. Hafði Þórarinn gagnsamt bú
og bjó við rausn að fornum hætti.
Árið 1908 eignast Einar skáld Bene-
diktsson Herdísarvík (ásamt Krýsu-
vík, sem hann átti þó með erlendum
mönnum), en mun lítt hafa skipt sér
af högum landseta sinna. Árið 1927
leigir hann jörðina Ólafi Þorvaldssyni,
síðar kunnum fræðimanni og rithöf-
undi, sem þar bjó með sinni fjölskyldu
fram til 1933 en leigumáli hans var ekki
endurnýjaður eftir það. Hafði Ólafi
búnast prýðisvel á jörðinni og hefði,
að eigin sögn, feginn vfljað vera þar
lengur. Í júlímánuði 1932 fluttist eig-
andi jarðarinnar, Einar Benediktsson,
þá viðurkennt höfuðskáld þjóðarinnar
með litríkan afhafna- og umsvifaferil
að baki, til Herdísarvíkur ásamt sam-
býliskonu sinni, Hlín Johnson. Hófst
þá smíði nýs íbúðarhúss (járnvarins
timburhúss) á jörðinni, norðarlega í
túninu og allnokkurn spöl frá gamla
bænum. Var húsið fullbúið snemma í
septembermánuði það ár. Stendur það
enn, nú uppgert, og hefur um allmörg
ár verið notað sem sumarorlofshús há-
skólastarfsmanna. Meðan á byggingu
hússins stóð höfðust Einar og Hlín
við í gamla bænum ásamt fjölskyldu
Ólafs, en fluttu síðan inn í húsið nýja
jafnskjótt og það varð íbúðarhæft. Yf-
irsmiður hússins var Sigurður Hall-
dórsson úr Reykjavík, en allt bygging-
arefni var flutt sjóleiðina frá Reykjavík
að Herdísarvík á strandferðaskipinu
Skaftfellingi, en síðan á opnum báti
frá skipshlið í lendingarvör. Bjuggu
þau Einar og Hlín síðan í húsi þessu
þar til Einar andaðist 12. janúar 1940,
sem fyrr er getið, þá farinn að heilsu
og kröftum eins og kunnugt er, en Hlín
síðan, mest ein en stundum með að-
keyptri hjálp, nokkuð á annan tug ára,
þar til hún brá búi og byggð lagðist af
í Herdísarvík.”
Heimild: -Morgunblaðið
15. janúar 2000, bls. 34-35
Fjórir afkomendur og nöfnur Hlínar.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Flott föt fyrir flottar konur
Stærðir 38-58
Verslunin Belladonna
fotspor.is