Reykjanes - 05.09.2013, Blaðsíða 1
Súðarvogi 9
104 Reykjavík
Sími 553 3599
Ultrasonic
hreinsun TÆKNIV É L M S M I Ð J A
www.taeknihf.is
taeknihf@taeknihf.is
Vélar
Dælur
Gírar
• Viðgerðir
• Upptektir
• Túrbínur
• Spíssar
• Vélaniðursetningar
og önnur skipa-
og bátaþjónusta
Þjónustuaðili fyrir:
Glæsilegur undirfatnaður frá
Vanity Fair og Lauma.
HAMRABORG 20A • KÓPAVOGI 544-4088 • YNJA.IS
Útsalan er hafin
Erum á Facebook
Vinsælu læknahal ararnir frá
komnir í hvítu & svörtu.
BÍLDSHÖFÐA 12 - 110 RE YK JAVÍK - SÍMI: 577 1515 - WWW.SKORRI.IS
5. september 2013
16. tölublað 3. árgangur UMHVERFISVOT TUÐ PRENTUN
Við syngjum um lífið
Menningar- og fjölskylduhátíðin Ljósanótt í Reykjanesbæ verður haldin í 14. skiptið í ár og hefst
fimmtudaginn 5. september og stendur
til sunnudagsins 8. september. Ljósanótt
telst til einnar stærstu fjölskylduhátíðar
landsins. Í fyrra sóttu um 20 þúsund manns
hátíðina og búist er við svipuðum fjölda í
ár. Fjölbreyttir viðburðir verða á dagskrá
alla dagana þar sem menning og listir
verða áberandi ásamt ýmsum óvæntum
og skemmtilegum viðburðum fyrir alla
fjölskylduna.
Í ár kynnum við til sögunnar nýtt slag-
orð Ljósanætur, Við syngjum um lífið..!
Þar er vísað í ríka tónlistarhefð svæðisins
og vitnað í hinn ódauðlega texta, Söngur
um lífið, sem Keflvíkingurinn Þorsteinn
Eggertsson, einn ástsælasti textahöfundur
landsins, samdi og Rúnar Júlíusson flutti
á fyrstu sólóplötu sinni. Slagorðið er ekki
síður lýsandi fyrir mannlífið á Suðurnesjum
þar sem léttleikinn ríkir þrátt fyrir allt, við
höldum áfram þótt á móti blási, syngjum
um björtu hliðarnar og njótum lífsins
meðan kostur er og hvetjum aðra til að
gera það sama.