Reykjanes - 03.10.2013, Qupperneq 2
2 3. október 2013
Reykjanes 18. Tbl. 3. áRganguR 2013
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is.
framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is.
auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykja vík. Auglýsingasími: 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is.
Ritstjóri: Sigurður Jónsson, netfang: asta. ar@simnet.is, sími: 847 2779. Myndir: Ýmsir. Umbrot: Prentsnið
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Upplag: 8.000 eintök. dreifing: Íslandspóstur. Vefútgáfa Pdf: www. fotspor.is
reykjanes er dreift í 8.000 eintökum ókeypis í allar íbúðir á reykjanesi.
Frí blað ið Reykja nes vill gjarn an kom ast í sam band við íbúa Suð ur nesja. Seg ið ykk
ar skoð un með því að senda inn pist il. Send ið inn fyr ir spurn. Vin sam leg ast send ið
okk ur tölvu póst á net fangið asta. ar@sim net.is eða hring ið í síma 847 2779.
Viltu segja skoðun þína?
Sem betur fer er þróunin sú að fleiri og fleiri einstaklingar ná háum aldri hér á landi. Þessi þróun á sér stað á Suðurnesjum eins og annars staðar á landinu. Nú eru 3000 íbúar Suðurnesja, sem náð hafa 60 ára aldri eða
meira. Þetta kallar að sjálfsögðu á aðgerðir yfirvalda til að sinna þessum hópi
bæði nú og í framtíðinni.
Málefni aldraðra hafa að undanförnu verið mikið til umræðu meðal sveitar-
stjórnarmanna og fleiri hér á svæðinu. Eins og fram hefur komið er nú unnið
á fullu að uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Nesvöllum. Þar mun rísa glæsileg
aðstaða, sem við fögnum öll. Það sem vekur furðu er að á sama tíma vilja margir
ráðamenn stefna að því að hjúkrunarheimilinu á Garðvangi verði lokað. Það
er óskiljanlegt miðað við þann mikla fjölda sem tilheyrir eldri borgurum.
það er óskiljanlegt að sumir ráðamenn hér á svæðinu skuli ekki vilja horfa til
framtíðar. Verði Garðvangur lagður niður fjölgar hjúkrunarrýmum nánast
ekkert. Auðvitað eigum við að horfa til framtíðar. Við eigum að horfa til næstu
20 ára. það ættu allir að geta séð að það verður mikil þörf á hjúlrunarrýmum
á næstu árum. Samhliða þessu þarf að móta stefnu varðandi dvalarheimili
aldraðra, þjónustuíbúðir fyrir aldraða og almennar leiguíbúðir fyrir aldraða.
Að sjálfsögðu ber einnig að huga að Því að aldraðir geti sem lengst búið í sínum
íbúðum. það þarf því að huga að stefnu í heimilishjálp, hjúkrunarþjónustu,
matarsendingum og félagslegri aðstoð. Það verður að koma í veg fyrir lokun
Garðvangs. Það á að stefna að því að í framtíðinnu verði 40 hjúkrunarrými
á Garðvangi. það kallar vissulega á framkvæmdir og viðbyggingu, en það er
nauðsynlegt vilji menn horfa til framtíðar.
Það á að vera keppikefli okkar að sem best þjónusta við aldraðra verði veitt í
öllum sveitarfélögum hér á Suðurnesjum. Það er hagur okkar allra að sveitar-
félögin fimm geti öll náð að blómstra. Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á
Suðurnesjum er framundan og þar hljóta menn að gera allt sem hægt er til að
ná samstöðu í þessum málaflokki og horfa vel til framtíðar og móta stefnuna
með það í huga.
Að sjálfsögðu á það svo að vera í höndum heimamanna að hafa yfirstjórn á
málefnum aldraðra og þar með talið að sjá sameiginlega um rekstur hjúkr-
unarheimila á svæðinu.
Hækkun skattleysismarka er besta kjarabótin
Kjarasamningar eru framundan. Hætta er á því að veruleg prósentuhækkun
verði niðurstaðan sem fer í gegnum allan launastigann. Framhaldið verður
svo hækkun verðlags og verðbólgan fer á fullt. Hverjir fara verst út úr slíku?
Að sjálfsögðu þeir lægst launuðu. Ríkisstjórni segist vilja liðka til svo hægt
sé að ná skynsamlegum samningum með raunverulegri kjarabót. Hækkun
skattleysismarka er þar skynsamlegasta leiðin. Sú leið kemur sér best fyrir lægst
launaða og millutekju fólkið. Það er betri kostur heldur en prósentuhækkun
sem fer upp alla launatöfluna.
Sigurður Jónsson, ritstjóri
Leiðari
Þrjú þúsund íbúar
Suðurnesja eru
60 ára og eldri
Reykjanes kemur næst út
fimmtudaginn 17. október.
næsta
blað
Haustfagnaður
Haustfagnaður eldri borgara verður í Vogum sunnudaginn 6. október
kl.15: 00.
Nýtt á
mánudögum
Félag eldri borgara á Suðurnesjum í samvinnu við Skákfélag Reykjanes-
bæjar býður uppá skák á mánudögum
kl.19: 30 á Nesvöllum. Allir velkomnir.
Vilja Vitagarð á Garðskaga
Ferða, safna og menningarnefnd Garðs leggur til að bæjarráð samþykki fjármuni á fjárhags-
áætlun ársins 2014 til áframhaldandi
uppbyggingar Vitagarðs á Garðskaga.
Verkefnið sem á eftir að vekja mikla
athygli verði það að veruleika verður
segull fyrir ferðamenn og á vel heima
á þessum stað þar sem fyrsta leiðar-
ljós fyrir sæfarendur var byggt árið
1847 af Helga á Lambastöðum. Stefnt
skal að því að verkefninu ljúki á næsta
kjörtímabili og ráð fyrir því gert í 3ja
ára fjárhagsáætlun bæjarfélagsins.
Samþykkt, Eiríkur Hermannsson
situr hjá.
FSM-nefnd varpar fram þeirri hug-
mynd að einnig verði gert ráð fyrir
fjármagni til að láta teikna og hanna
eftirmynd fyrstu vitavörðunnar sem
áður er getið um. Stefnt verði að
byggingu hennar á næsta kjörtímabili
og ráð gert fyrir fjármunum í 3ja ára
fjarhagsáætlun bæjarfélagsins. Sam-
þykkt, Eiríkur Hermannsson situr
hjá.
Árshátíð FEBS framundan
Nú styttist í árshátíð eldri borgara í Stapa.
Árshátíðin verður laugardaginn 12. október n. k.
Húsið opnar kl.18: 00 en borðhald hefst kl.19: 00
Setning árshátíðar: Sigurður Jónsson,
formaður Skemmtinefndar
Ávarp: Eyjólfur Eysteinsson formaður
FEBS
Kristinn Jóhannsson, veislustjóri
Sólborg og Sigríður Guðbrandsdætur
syngja
Arnar Ingi Tryggvason með uppistand
Glæsilegt happdrætti (innifalið í miða-
verði)
Hljómsveitin Húsbandið leikur fyrir
dansi
Fordrykkur
Aðalréttur: Hægeldaður rósmarín og
hvítlauksleginn lambahryggvöðvi með
grilluðu grænmeti. Gratineruðum kar-
töflum. Rattatoulis grænmeti og villis-
veppasósu.
Eftirréttur: Súkkulaði fantasía með
sultuðum skógarberjum og rjóma.
Kaffi og konfekt.
Rútuferðir fyrir íbúa í Garði, Grinda-
vík, Sandgerði og Vogum.
Hægt að kaupa miða hjá skemmti-
nefnd: Ásta 862 1738, Sigurður 847
2779, Jón 898 6919, Harpa 778 1746,
Eygló 661 3041, Þráinn 892 5392.
Léttur föstudagur
Jóna Valgerður mætir
Á morgun föstudaginn 4. október kl.14: 00 er Léttur föstudagur á Nesvöllum.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, for-
maður Landssambans eldri borgara
mætir og fer yfir stöðu mála hjá eldri
borgurum. Allir velkomnir.
Vilja að Bragi stækki
Á fundi Bæjarráðs Garðs í síðustu viku var upplýst að Bragi Guðmundsson,verk-
taki, er tilbúinn að taka að sér
stækkun Íþróttamiðstöðvarinnar
fyrir kr.129.693.210. Bæjarráð
samþykkir að ganga til saminga við
Braga.
Bæjarstjóri lagði fram minnisblað,
þar sem er m.a. gerð grein fyrir við-
ræðum við Braga Guðmundsson um
að hann taki að sér verkið. Bragi er
tilbúinn til að taka verkið að sér
fyrir kr. 129.693.210 og miðað við að
framkvæmdir hefjist í febrúar 2014.
Samþykkt samhljóða að fela bæj-
arstjóra að ganga til samninga við
Braga Guðmundsson, samningur-
inn verði lagður fyrir bæjarráð til
staðfestingar.
Frístundakort
í Vogum
Meginmarkmið Frístunda-kortsins er að öll börn og
unglingar í Sveitarfélaginu Vogum
geti tekið þátt í uppbyggilegu frí-
stundastarfi óháð efnahag eða fé-
lagslegum aðstæðum.
Með Frístundakortinu má greiða
að hluta fyrir íþróttaiðkun á vegum
félaga og samtaka sem starfa í
Vogum og nágrannasveitarfé-
lögunum.
Frístundakortið eykur jöfnuð
í samfélaginu og fjölbreytileika í
iðkun íþrótta.
Skilyrði fyrir veitingu styrkja
samkvæmt Frístundakortinu
• Að iðkandi/styrkþegi eigi lög-
heimili í Sveitarfélaginu Vogum
• Að styrkþegi sé á aldrinum 6 – 16
ára miðað við fæðingarár.
• Að um skipulagt starf/kennslu/
þjálfun sé að ræða í a. m. k. 10
vikur á önn.
• Styrkur getur aldrei orðið hærri
en þátttöku- eða æfingagjald við-
komandi íþrótta- eða tómstunda-
greinar.
Frestur til að sækja um styrkinn
fyrir haustönn 2013 er til 1. nóvem-
ber nk. Greitt verður 15. nóvember
Umsókn og frumriti af reikn-
ingi skal skila á bæjarskrifstofu,
Iðndal 2.
Grindavík
Uppeldi sem virkar
- Færni til framtíðar
- Námskeið hefst 16. okt.
Foreldrafærninámskeiðið UPP-ELDI SEM VIRKAR - FÆRNI TIL FRAMTÍÐAR mun hefjast
að nýju þann 16. október og verður
haldið í leikskólanum Laut. Nám-
skeiðið verður á miðvikudögum kl.
17:00 - 19:00 í fjögur skipti.
Leiðbeinendur: Ragnhildur Birna
Hauksdóttir, leikskólaráðgjafi/fjöl-
skyldumeðferðarfræðingur og Sig-
ríður Gerða Guðlaugsdóttir, leikskóla-
kennari og deildarstjóri á Króki.
Skráning og frekari upplýsingar
má nálgast í síma 420 1116 eða með
því að senda tölvupóst á ragnhildur@
grindavik.is
Við skráningu þarf að koma fram
nafn, kennitala, sími og netfang for-
sjáraðila, kennitala barns og velja þarf
námskeiðstíma. Námskeiðið gagnast
best ef báðir foreldrar mæta.
Þátttökugjald er kr. 2000 fyrir
einstaklinga og 3000 fyrir par. Inni-
falin eru námskeiðsgögn og Uppeld-
isbókin.
(Heimasíða Grindavíkur)