Reykjanes - 03.10.2013, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 3. október
Kl. 5.45-23.00 Sólarströndin og tækjasalur í Lífsstíl opinn.
Spinning kl 6.05 (frír aðgangur), Buttlift kl 11.15 (frír aðgangur),
Spinning kl 12.05, MetaFITT kl 16.35 og Pallar/STEP kl 17.25
(frír aðgangur). Stakir tímar á kr. 500.
Kl. 8.30-9.00 Njarðvíkurskóli, á sal skólans. 8.-10. bekkur
fræðast um ábyrgð í umferðinni (skellinöðrur, hjálmanotkun og
farþega).
Kl. 09.45 Leikskólinn Gimli býður foreldrum og öðrum bæjar-
búum að fara í vettvangsferð með nemendum og kennurum í
Barnalund sem er umhverfis- og útikennslusvæði leikskólans.
Kl.10.00 Inniíþróttadagur í leikskólanum Garðaseli (allir taka þátt).
Næst yngsti árgangur (2010) kemur til með að fara í stuttar gön-
guferðir. Yngsti árgangurinn (2011) tekur þátt eftir getu og þroska.
Kl. 10.00 Nesvellir. Frítt í leikfimi í boði öldrunarþjónustu.
Kl. 10.00-10.35 Njarðvíkurskóli, á sal skólans. Krissi lögga talar
við nemendur 3.-4. bekkja um öryggi í umferðinni og útivistartíma.
Kl. 10.00-11.00 Mánavallabörnin (yngstu börnin) í leikskólanum
Tjarnarseli bjóða bæjarbúum að skoða ævintýralega útisvæðið
sitt í Tjarnarseli sem börn, foreldrar og kennarar hönnuðu í
samstarfi við George Hollander og Sarke Mrnakova hjá fyrirtækinu
SAGE-gardens sf.
Kl. 10.35-11.15 Njarðvíkurskóli, stofa 303. Krissi lögga talar við
nemendur 7. bekkjar um útivistartímann.
Kl. 12.30-16.30 Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og
líkamlegt ofbeldi gegn börnum verður haldin í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja.
Kl. 13.00-15.00 Heilbrigðisstofnun Suðurnesja býður upp á
blóðþrýstings og blóðsykursmælingar ásamt almennri heilbrigðis-
fræðslu á heilsugæslu HSS.
Kl. 16.30-20.30 Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum ætlar að
vera með námskeið í að hætta að reykja með Valgeiri Skagfjörð.
MSS niðurgreiðir þetta námskeið þannig að þátttakendur þurfa að
greiða 5.000 krónur fyrir það. Sjá nánar á heimasíðu MSS.
Kl. 17.00 Gengið til betra lífs. Hilmar Bragi Bárðarson mun
greina frá lífsreynslu sinni og hvernig hann endaði á sjúkrahúsi
fyrir það eitt að hugsa ekkert um eigin heilsu. Hann mun segja
frá því hvernig hann snéri við lífinu og hefur á nokkrum vikum
náð ótrúlegum árangri á leið sinni til betra lífs með því að breyta
matarræði og fara út að ganga. Gengið frá Reykjaneshöll.
Kl. 17.00-18.45 Bókasafn Reykjanesbæjar býður upp á
bókmennta göngu. Genginn verður góður hringur frá Ráðhúsinu
um bæinn með stoppi þar sem lesið verður upp úr bókum sem
tengjast svæðinu, staðir heimsóttir og sagt frá. Boðið verður upp
á hressingu í húsakynnum safnsins í Ráðhúsi.
Fermingarfræðsla í Keflavíkurkirkju: Fjallað m.a. um það
hvernig við getum forðast freistingar í lífinu. Boðið verður upp á
eplabita.
Föstudagur 4. október
Kl. 5.45-23.00 Sólarströndin og tækjasalur í Lífsstíl opinn.
MetaFITT kl 6.05 (frír aðgangur), Spinning-6pack og slökun
kl. 12.05, Insanity kl 17.00 (frír aðgangur) og Spinning kl 18.00
(frír aðgangur). Stakir tímar á kr. 500.
Kl. 9.45 Nesvellir. Stóladans í matsal.
Kl. 11.00 Heilsumatur á Nesvöllum á vegum Menu veitinga.
Kl. 11.00 Boðið upp á heilsusúpu og ávexti á eftir messu í
Keflavíkurkirkju.
Kl. 12.30 Verður Margét Leifsdóttir með fyrirlestur um heilsu og
mataræði í kaffihúsi Kaffitárs á Stapabraut 7.
Kl. 17.10 og 18.05 Metabolic-tímarnir verða styrktartímar fyrir
minningarsjóð Ölla og er fólk hvatt til þess að mæta með frjáls
framlög í þennan sjóð
Kl. 19.20-20.50 Opin æfing í blaki fyrir unglinga og fullorðna í
íþróttahúsi Heiðarskóla.
Laugardagur 5. október
Kl. 5.45-23.00 Sólarströndin og tækjasalur í Lífsstíl opinn.
MetaFITT kl 9.30 (frír aðgangur). 100 mín Spinning kl 10.20.
Stakir tímar á kr. 500.
Kl. 11.00 Foreldrafélag Akurskóla býður upp á göngu frá
Akurskóla. Genginn verður Lambafellsklofi. Sameinast verður í
bíla við Akurskóla.
Sunnudagur 6. október
Kl. 10.00-17.00 Sólarströndin og tækjasalur í Lífsstíl opinn.
Stakir tímar á kr. 500.
Kl. 11.00-12.30 Opin æfing í blaki fyrir unglinga og fullorðna í
íþróttahúsi Heiðarskóla.
Alla vikuna
Heilsudagar verða haldnir í Nettó verslunum dagana 26. septem-
ber til 6. október. 25% afsláttur af heilsuvörum.
Bókasafn Reykjanesbæjar vekur athygli á fjölbreyttum
safngögnum um heilsu og forvarnir alla vikuna.
Á Akri verður heilsuvikan notuð til að auka fjölbreytni í hollu
matarræði. Börnin fá tækifæri til að borða framandi hollustufæði,
ávexti og grænmeti sem sjaldan sést á borðum. Vikan verður
á sama tíma nýtt til umfjöllunar með börnunum um hollan og
óhollan mat.
15% afslátt af öllum líkamsræktarkortum í Lífsstíl og stakir tímar
á kr. 500 frá 30. sept. til 6. okt.
Opnir dagar í Lífsstíl 30. sept og 1. okt., frír aðgangur fyrir alla.
Á heilsudögum verður ókeypis á æfingar hjá taekwondo-deild
Keflavíkur. keflavik.is/taekwondo
Kl.10.00-10.30 alla daga vikunnar verða leikir á útisvæði leik-
skólans Holts. Allir velkomnir sem vilja koma og leika með.
Vegna Heilsu- og forvarnaviku Reykjanesbæjar verður Kvenna-
sveitin Dagbjörg sýnileg um bæinn og mun fara í grunnskóla
Reykjanesbæjar og færa öllum 6 ára börnum endurskinsmerki.
Auk þess verður kvennasveitin með kynningar á slysvarnaverk-
efnum í bænum eins og Glöggt er gests augað og gjöfin sem við
gefum öllum átta mánaða börnum sem koma í skoðun í Ungbar-
naeftirlitið, en það er pakki sem inniheldur gátlista og bækling um
öryggi barna á heimilum og svokallaða fingravini ( klemmuvörn ).
Kynningarfundur á starfsemi sveitarinnar verður svo 7. október
kl. 20.00 í húsi Björgunarsveitarinnar að Holtsgötu 52 þar sem allir
eru velkomnir.
Í Holtaskóla munu allir nemendur taka þátt í Norræna skóla-
hlaupinu. Nemendur eru hvattir til að ganga/hjóla í skólann þessa
viku, en einnig verður boðið upp á aukna hreyfingu eftir því sem
veður leyfir. Boðið verður upp á tvær skipulagðar gönguferðir fyrir
starfsfólk í lok vinnudags.
Sporthúsið býður upp á „Opna viku“ í tilefni á Heilsu- og
forvarnarviku Reykjanesbæjar. Aðgangur að tækjasal og opnum
hóptímum sem telja yfir 50 tíma í hverri viku. Kynnið ykkur dag-
skrá nánar á www.sporthusid.is/rnb
Nemendur Njarðvíkurskóla vinna verkefni þar sem grunnþættirnir
heilbrigði og velferð eru hafðir að leiðarljósi. Skólinn er skráður
í verkefnið Göngum í skólann og útfæra umsjónarkennarar það
verkefni með nemendum sínum.
Háaleitisskóli er skráður í verkefnið Göngum í skólann. Um-
sjónakennarar vinna ýmis verkefni með nemendum sem tengjast
átakinu, eins eru nemendur hvattir til að nýta sér virkan ferðamáta
í og úr skólanum, t.d. að ganga eða hjóla. Hið árlega norræna
skólahlaup verður í þessari viku, annahvort á fimmtudeginum eða
föstudeginum (háð veðurspá).
Að auki verður Heilsumiðstöð Birgittu með heilsuráðgjöf, nærin-
garráðgjöf og m.fl. kl. 16.00-18.00 þann 9. október.
Íþrótta- og tómstundasvið Reykjanesbæjar
ÖRYGGISVÖRUR, EFNAVÖRUR
OG SMUREFNI FULL BÚÐ AF ÖRYGGIS- OG REKSTRARVÖRUM FYRIR ÚTGERÐINA OG SJÓMANNINN.
KÍKTU Í KEMI BÚÐINA OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.