Læknablaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 34
CÍFLOX
( cíprófloxacin )
-breiðvirkt sýklalyf
Cíflox (ciprófloxacín)
Framleiðandi: OMECA FARMA hf., Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur. Töflur, J 01 M A 02. Hver
tafla inniheldun Ciprofloxacinum INN, klóríð, mónóhýdrat, samsvarandi Ciprofloxacinum INN 250 mg
eða 500 mg. Eiginleikar: Lyfið er breiðvirkt sýklalyf af kinólónflokki. Verkunarmáti er að nokkru
óþekktur, en lyfið blokkar DNA-gýrasa, sem er sýklum nauðsynlegur til frumuskiptingar. Lyfið frásogast
um 70-80% frá meltingarvegi. Hámarks blóðþéttni næst eftir 2 klst. og helmingunartimi i blóði er um 4
klst. Um það bil helmingur lyfsins útskilst óbreytt i þvagi, en afgangurínn sem niðurbrotsefni iþvagi, galli
og saur. Lyfið verkar á margar sýklategundir, þar á meðal Gram-neikvæða stafi (einnig Pseudomonas
aeruginosa, Branhamella catarrhalis); einnig á Gram-jákvæða sýkla. Óviss verkun er á loftfælna sýkla.
Mjög virkt gegn Neissería gonorrhoea. Ábendingar. Sýkingar af völdum næmra sýkla, t.d.
þvagfærasýkingar, iðrasýkingar (salmonella o.fl.), sýkingar i blöðruhálskirtli. Frábendingar. Ofnæmi fyrir
lyfinu. Meðganga og brjóstagjöf. Varúð: Lyfið á ekki að gefa bömum á vaxtarskeiði vegna möguleika á
brjóskskemmdum af völdum lyfsins. Einnig ber að gæta varúöar við gjöf lyfsins hjá sjúklingum með
tilhneigingu til krampa. Aukaverkanir: Ogleði, uppköst og óljós magaóþægindi. Stöku sinnum
niðurgangur. Svimi, höfuðverkur og þreytutilfinning. Stöku sinnum sjóntruflanir og einstaka tilvik
ofskynjana. Húðútbrot. Tímabundin hækkun lifrarenzýma hefursést. Krístallamyndun i þvagi kemur fyrír,
ef þvag er basiskt, en virðist þó ekki valda nýmaskemmdum. Milliverkanir Lyfið hindrar niðurbrot
teófýllins og skyldra lyfja og hækkar þvi blóðþéttni þeirra. Ef nauðsynlegt er að gefa lyfin saman, þarf að
fylgjast vel með blóðþéttni teófýllíns. Sýrubindandi jvf, sem innihalda magnesium- eða
alúminíumhýdroxið, geta hindrað frásog lyfsins. Athugið: Onæmi getur myndast meðan á lyfjagjöf
stendur, t.d. við beinasýkingar. Skammtastærðir handa fullorðnum: Þvagfærasýkingan 100-250 mg
tvisvar til þrisvar sinnum á dag. Lekandi: 250 mg gefið í einum skammti einu sinni. lörasýkingar. 500
mg tvisvar til þrísvar sinnum á dag. Beinasýkingar: 750 mg tvisvar til þrísvar sinnum á dag. -Skammta
verður að minnka, ef kreatininclearance er undir 30 ml/mínútu. Lyfið er ekki ætlað bömum.
Pakkningar.
Töflur 250 mg: 10 stk.; 20 stk.; 100 stk.
Töflur 500 mg: 10 stk.; 20 stk.
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990