Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1995, Blaðsíða 28

Læknablaðið - 15.04.1995, Blaðsíða 28
310 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 un á heilsugæslustöð fengu allar með talsverð eða mikil einkenni og nokkrar síðan meðferð svo sem sýkla- eða hormónalyf. Nýr spurninga- listi 10 mánuðum síðar sýndi að 61% kvenn- anna sögðust betri. Marktækt bestur var árang- ur þeirra sem höfðu haft áreynslueinkenni og komu í æfingahópa. Æfingar komu að gagni jafnvel við mikil einkenni og þótt þær væru aðeins gerðar einu sinni til tvisvar í viku. Mælt er með að greining verði virkari og konum með þvagleka boðið upp á skipulega æfingameð- ferð og hormónameðferð eftir tíðahvörf áður en gripið er til skurðaðgerðar. Inngangur Síðastliðin 10-15 ár hefur mikið verið skrifað um þvagleka, einkum hjá konum. Tölur um algengi eru mjög breytilegar eða allt frá 6-60% (1-3). Meginástæða þessa mismunar er trúlega fremur breytileg skilgreining vandamálsins og að mismunandi hópar eru rannsakaðir, heldur en að meginmunur sé á algengi þvagleka í heild á milli staða eða landa. Til dæmis taka sumir höfundar aðeins þau tilvik þar sem um félags- legt eða hreinlætisvandamál er að ræða, aðrir taka með allar konur sem einhvern tíma hafa misst þvag á undangengnu ári. Það eykur svo enn á óvissuna að umfang þvaglekans, stærð vandamálsins og áhrif á daglegt líf eru illa eða ekki mælanleg og því að verulegu leyti huglægt mat hverrar konu. Auk hinnar háu tíðni þvagleka hjá konum er tvennt mest áberandi við niðurstöður rann- sókna síðustu ára. Annars vegar að vandamál- ið er að mestu leyti falið (4) og hins vegar að meirihluta kvennanna virðist vera hægt að hjálpa með einföldum aðferðum án inngrips (non-invasive) það er með grindarbotnsæfing- um eða blöðruþjálfun (5,6). Nýlega birtust nið- urstöður rannsóknar á þvagleka á stofnunum í Reykjavík (7) en við höfum ekki fundið neitt um umfang þvagleka í heild á íslandi. Tilgangur þessarar rannsóknar var annars vegar að kanna algengi þvagleka og áhrif hans á daglegt líf „heilbrigðra“ kvenna úti í þjóðfé- laginu og hins vegar hvort hægt væri að bæta ástandið með tiltölulega einfaldri greiningu og meðferð á heilsugæslustöð. Efniviður og aðferð I október 1993 var sendur út spurningalisti (spurningalisti I) til allra kvenna 21 árs og eldri í Öxarfjarðarhéraði (íbúafjöldi 501), sem þar áttu lögheimili og bjuggu heima. Námsmenn og aðrir sem bjuggu tímabundið utan héraðs svo og konur á dvalar- og hjúkrunarstofnunum voru undanskildar. Alls fékk 131 kona sendan spurningalista og var spurt um tíðni þvagleka, hversu stórt vandamál hann væri fyrir viðkom- andi og í hvaða mæli þvagleki eða ótti við hann hindraði athafnir eða hefði áhrif á daglegt líf. Á listanum voru einnig spurningar til að greina gerð þvaglekans og hvort viðkomandi kona hafi leitað aðstoðar vegna hans, hvaða meðferð hún hafi fengið og árangur. Hringt var einu sinni í þær konur sem ekki höfðu skilað listanum mánuði eftir útsendingu og þær beðnar um svör. í janúar 1994 var hringt í allar konur með þvagleka samkvæmt spurningalista I og þeim boðnar ítarlegar skriflegar leiðbeiningar um grindarbotnsæfingar eða þátttaka í æfingahóp- um undir leiðsögn sjúkraþjálfara og hjúkrunar- fræðings eða ljósmóður. Öllum með meðal eða mikil einkenni var auk þess boðið viðtal og skoðun hjá hjúkrunarfræðingi eða lækni til nánara mats. í viðtöl komu 16 konur, þar af fóru 10 í kvenskoðun og 14 skiluðu þvagprufu í rannsókn. í framhaldi af því fengu sex konur hormónameðferð, hjá einni var gerð þvagrás- arvíkkun og tvær fengu sýklalyf. Kennsla í grindarbotnsæfingum var skipulögð þannig að konum var skipt í hópa eftir umfangi þvagleka. Konur með vægan þvagleka komu þrisvar sinn- um, tvisvar með viku millibili og síðan einu sinni eftir mánuð. Konur með meðal eða mik- inn þvagleka komu fimm sinnum, fjórum sinn- um með viku millibili og einu sinni eftir tvo mánuði. Sjúkraþjálfari kenndi og stjórnaði æf- ingum en hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir var með í öll skiptin, svaraði spurningum og tók þátt í umræðum. Allar konurnar fengu blöð með myndum og fræðslu um grindarbotn- inn, hvaða áhrif slakur grindarbotn hefði og æfingaaðferðir. Farið var markvisst í gegnum þessar leiðbeiningar og æfingar gerðar, bæði grindarbotnsæfingar og aðrar æfingar til að auka líkamsmeðvitund. Konurnar voru hvatt- ar til að gera æfingarnar einu sinni til tvisvar á dag, byrja rólega og auka smám saman. Samkvæmt svörum við spurningalista I ásamt nánara mati úr viðtölum og skoðunum var konunum skipt í hópa eftir tíðni og umfangi þvaglekans annars vegar og gerð þvagleka hins vegar og stuðst við algenga flokkun annarra (8).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.