Læknablaðið - 15.07.1995, Blaðsíða 8
Svo hjartanlega samtaka
Tvö lyf sem efla áhrif hvors annars sett saman í eina töflu:
Lágmarks skammtar / Hámarks verkun
Lágmarks kostnaður / Hámarks fylgni
í niðurstöðum íslenskrar rannsóknar* segir:
“í stuttu máli virðist lítið gagn í því að auka skammta Enalapríls og Hýdróklórtíazíðs í vægum
til meðalsvæsnum háþrýstingi umfram 10 mg + 12,5 mg á dag."
“Þessi niðurstaða styrkist enn frekar vegna vaxandi hjáverkana og kostnaðar við gjöf stærri
skammta."
REYKJAVÍKURVEGI 78
220 HAFNARFJÖRÐUR
Úr Sérlyfjaskrá: TÖFLUR; C 02 L M 02. Hver tafla inniheldur: Enalaprilum INN, maleat, 10 mg, Hydrochlorothiazidum INN 12,5 mg. Eiginleikar: Blanda enalapríls og hýdróklórtíazíðs og hafa
þau eflandi áhrif hvort á annaö. Enalapríl hamlar hvata, er breytir angiotensin I í angiotensin II. sem er kröftugasta æðasamdráttarefni líkamans. Enalapríl er forlyf. U.þ.b. 60% frásogast,
umbrotnar í lifur í enalaprílat, sem er hið virka efni. Áhrif enelapríls ná hámarki eftir 4-6 klst. og geta haldist í 24 klst. Helmingunartimi er um 11 klst., en er mun lengri, ef nýrnastarfsemi er
skert. Lyfið útskilst í þvagi. Hýdróklórtiazíö blokkar enduruppsog natríumjóna í nýrnagöngum og eykur nýrnaútskilnað natriums, klóríös, magnesíums, bikarbónats og vatns. Minnkar
nýrnaútskilnað kalsíums. Lengd verkunar er 6-12 klst. Ábendingar: Hár blóðþrýstingur. Frábendingar: Ofnæmi fyrir öðru hvoru lyfinu. Lágt kalíum í sermi. Lifrar- eða nýrnabilun
Þvagsýrugigt. Meðganga og brjóstagjöf: Má alls ekki nota lyfiö á meögöngu. ACE hamlar geta valdið fósturskemmdum. Lyfið skilst út í brjóstamjólk, en áhrif á barniö eru ólíkleg, þegar lyfið
er notað i venjulegum skömmtum. Varúð: Lyfið getur valdiö of mikilli blóðþrýstingslækkun hjá sjúklingum sem misst hafa salt og vökva úr líkamanum. Lyfið getur hækkað blóðsykur hjá
sykursjúkum Aukaverkanir: Algcngar (>1e/o): Ofnæmi, hósti, svimi, höfuðverkur, sinadráttur, vöðvastiröleiki og þreyta, getuleysi. Hækkun þvagsýru og blóðsykurs, lækkun kalíums,
magnesíums og klóríös í sermi. Sjaldgæfar (0,1-1%): Þreyta, slen, lágur blóöþrýstingur og yfirlið. Ógleði, niðurgangur. Húðútþot, ofnæmisbjúgur. Vöðvakrampar. Brengluð nýrnastarfsemi.
Kreatínín, urea, lifrarenzým og bilirúbin geta hækkað, en komast í fyrra horf, ef lyfjagjöf er hætt. Skammtastæröir handa fullorðnum: 1 tafla á dag. Skammtastærðir handa börnum: Lyfiö
er ekki ætlað börnum. Pakkningar: 30 stk. (þynnupakkaö) 2097 kr. 100 stk. (þynnupakkaö) 6226 kr. Afgreiöslutilhögun: R. Greiösluþátttaka: B. Júni 1995
'Þórður Harðarson, Árni Kristinsson, Jóhann Ragnarsson: Hver er ákjósanleg samsetning enalapríls og hýdróklórtíazíðs við háþrýstingi? Læknablaðið 1994; 80: 57-62.