Læknablaðið - 15.09.1997, Side 36
578
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
korn áður eða ekki. Tveir sjúklingar í hópi B
fengu geislalungnabólgu en enginn í hópi A.
Flöguþekjukrabbamein var algengasta vefja-
gerðin í báðum hópum eins og búast mátti við,
þar sem rannsóknaráætlunin útilokaði sjúk-
linga með útbreiðslu út fyrir brjóstkassa.
Tafla II sýnir lifun í vikum fyrir alla sjúklinga
í forrannsókninni og eftir að slembiúrtak hófst
í þeirri röð sem þeir komu inn í hvorn hóp fyrir
sig. Allir sjúklingarnir eru nú látnir. Lifun
sjúklinga í hópi A var á bilinu 15-175 vikur og
miðgildi var 29 vikur. Lifun sjúklinga í hópi B
var á bilinu 9-108 vikur og miðgildi 30 vikur. Ef
fjórum sjúklingum úr forrannsókn er bætt við
hóp A hækkar miðgildi lifunar í 35 vikur og
gefur það vísbendingu um þau áhrif sem val
sjúklinga í rannsóknir getur haft.
Mynd 1 sýnir Kaplan-Meier lifunarferil allra
sjúklinga sem fengu meðferð. Það er enginn
marktækur munur á lifun sjúklingahópanna í
heild, ekki heldur þótt skoðuð séu einstök
tímabil.
Fyrirætlun okkar að meta lífsgæðastuðul
reglubundið og nota þær upplýsingar til að
bera saman áhrif meðferðar á lífsgæði tókst
ekki. í stað þess var reiknaður út legutími á
sjúkrahúsi til þess að fá hugmynd um hversu
virkir sjúklingar voru í kjölfar meðferðar.
Sjúklingar í hópi A þurftu að meðaltali styttri
sjúkrahúsvist en sjúklingar í hópi B (7,4±2,8
vikur á móti 18,5±9,0 vikum). Þessi munur var
ekki staðtölulega marktækur (p=0,21) vegna
þess hve vikmörk voru stór.
Þrír af 14 sjúklingum sem fengu bæði 198Au
korn og ytri geislun dóu skyndidauða vegna
blóðhósta en hjá þeim öllum hafði meðferðin
haft góð áhrif um talsverðan tíma. Einn af átta
sjúklingum sem fékk ytri geislun eingöngu dó
skyndilega úr blóðhósta. Þessi munur var ekki
marktækur. Helstu dánarorsakir voru vegna
áhrifa æxlisvaxtar í brjóstkassa svo sem lungna-
sýking og öndunarbilun og eins vegna fjar-
meinvarpa.
Umræða
Aðgerðir til að auka lifun og lífsgæði hinna
mörgu sjúklinga með óskurðtæk lungna-
krabbamein er mikilvægt verkefni rannsókna á
lungnakrabbameinum.
í þessari rannsókn reyndum við að varpa
ljósi á þá spurningu hvort staðbundin geislun
með198 Au kornum ásamt ytri geislun gæfi betri
árangur en ytri geislun ein sér með framvirkri
Table II. Survival (in weeks) of patients receiving mAu-bra-
chytherapy and external radiation (group A) and those receiv-
ing external radiation only (group B).
Group A Group B
Pilot study 31
44
59
134
Randomized study 175 9
27 16
38 68
16 23
24 15
58 108
23 37
40 97
31
15
Median survival 29 30
slembaðri rannsóknaraðferð. í rannsóknum
sem þessum hefur lifun reynst áreiðanlegasti
nrælikvarðinn. Miðgildi lifunar sjúklinga sem
fengu bæði innri og ytri geislun var 29 vikur en
meðal sjúklinga sem fengu aðeins ytri geislun
var miðgildið 30 vikur. Lífslengdarferlar hóp-
anna voru mjög svipaðir og hvergi marktækur
munur á þeim. Sjúklingahópurinn er minni en
gert var ráð fyrir og rýrir það möguleika til
ályktana. Niðurstöður benda þó til að meðferð
með staðbundinni geislun á undan ytri geislun
muni ekki bæta að ráði horfur sjúklinga hvað
lifun varðar.
Það var eftirtektarverður munur á þörf fyrir
sjúkrahúslegu hópi A í vil en munurinn var
ekki staðtölulega marktækur, líklega vegna
þess hve sjúklingar voru fáir og vikmörk stór.
Cumulatívo survival
Fig. 1. Kaplan-Meier cumulative survival plot for patients
receiving198Au brachytherapy and external radiation (circles)
and those receiving external radiation only (squares). Time
represents weeks from entry.