Læknablaðið - 15.09.1997, Page 48
588
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83: 588-9
Til íhugunar
Notkun tölvutækra gagna og
margmiðlunar við kennslu í klínískri
lyflæknisfræði
Ólafur Baldursson, Davíö O. Arnar
Kennsla í klínískri lyflæknisfræði er að
mestu leyti byggð á því að nemendur hafi um-
sjón með sjúklingum í samvinnu við kennara
sína og getur fátt komið í stað dýrmætrar
reynslu þegar læknar standa frammi fyrir erfið-
um tilfellum síðar á ferli sínum. Reynsla
læknanema og unglækna á íslandi er ólík
reynslu starfsfélaga þeirra við erlend háskóla-
sjúkrahús þar sem flókin og viðamikil tilfelli
eru gjarnan fleiri. Á síðustu árum hafa verið
sett á stofn tölvutæk gagnasöfn til notkunar í
kennslu fyrir lækna og læknanema til þess að
veita nokkurs konar sýndarreynslu í meðferð
erfiðra sjúkratilfella til viðbótar hinni raun-
verulegu reynslu. Leiða má að því líkur að
þessi kennsluaðferð gæti nýst sérstaklega vel á
íslandi þar sem sjúkratilfelli eru hlutfallslega fá
og verið góð viðbót við klíníska kennslu lækna-
nema og aðstoðarlækna.
Tölvutæk kennslugögn (computerized
educational programs) hafa ýmsa kosti sem
ekki prýða hefðbundnar kennsluaðferðir (1).
Nefna má hve auðvelt er að geyma og bæta við
nýjum upplýsingum sem er sérlega mikilvægt í
læknisfræði þar sem framfarir og breytingar í
greiningu og meðferð sjúkdóma eru örar.
Hvað notendur varðar, er kostur að geta valið
hvenær, hvar og hversu hratt menn fara yfir
kennsluefnið. Einnig geta nemendur auðveld-
lega valið og farið yfir þá þætti kennsluefnisins
sem þeim liggur mest á að stunda á hverjum
tíma. Að auki hefur verið sýnt fram á að tölvu-
tækt kennsluefni í læknisfræði er að minnsta
kosti jafnskilvirkt ef ekki betra til námsárang-
urs en hefðbundið fyrirlestrahald og kennslu-
bækur (2-6). Kostirnir njóta sín sérlega vel við
Frá University of lowa Hospitals and Clinics.
kennslu í klínískri læknisfræði þar sem marg-
miðlun er ómetanlegt hjálpartæki til skilnings á
margþættum sjúkdómstilfellum. Sem einfalt
dærni má nefna lungnabólgutilfelli: Fyrst eru
sjúkrasaga og skoðun rakin á venjulegan hátt
og í kaflanum um skoðun er unnt að setja inn
þau lungnahljóð sem búast mætti við að heyrð-
ust með hlustpípunni. Röntgenmyndir af til-
fellinu er auðvelt að sýna og útskýra, svo og
myndir af hrákasýni með þeim bakteríum sem
lungnabólgunni valda. Einnig mætti sýna
myndband af berkjuspeglun ef lungnabólgan
stæði til dæmis í sambandi við æxli í berkjum.
Við þetta er kjörið að hnýta umræðu um helstu
tegundir lungnabólgu og mætti þá aftur sýna
röntgenmyndir og fleira sem við á. Petta gerir
nemendum kleift að fá nokkra tilfinningu fyrir
sjúkratilfellum, án þess að sjá raunverulegan
sjúkling og lesa að auki ýmsan fróðleik um
viðkomandi sjúkdóm. Því flóknari sem tilfellin
eru, þeim mun betur nýtist ntargmiðlunin.
Kennsluefnið má skipuleggja á marga mismun-
andi vegu. Dæmi um þetta er að finna við
háskólasjúkrahúsið í Iowa, þar sem „The
Virtual Hospital" (http://www.vh.org/), eða
Sýndarsjúkrahúsið eins og við höfum kosið að
nefna það, hefur verið sett saman og birt á
veraldarvefnum. Höfundar þess eru frum-
kvöðlar á þessu sviði en á síðustu árum hafa
fjölmörg gagnasöfn af svipuðu tagi verið tekin
saman. Sýndarsjúkrahúsið hefur verið notað
talsvert við kennslu læknanema og unglækna
með góðum árangri og er nýlegt dæmi að finna
í tilfelli um histoplasma lungnabólgu (7).
Rétt væri að athuga gaumgæfilega stofnun
tölvutæks gagnasafns til kennslu í klínískri lyf-
læknisfræði við Háskóla íslands. Höfundar
hafa tiltölulega greiðan aðgang að frumkvöðl-
urn á þessu sviði hér við háskólasjúkrahúsið í