Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.1998, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 15.06.1998, Blaðsíða 22
472 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 ist var staðfest hjá 32% þeirra. í öðrum rann- sóknum hefur verið sýnt fram á inntöku bólgu- eyðandi gigtarlyfja hjá 18-44% þeirra sem fá rofsár á maga og skeifugörn (2,9,17,19). Inn- taka bólgueyðandi gigtarlyfja hefur sýnt sig að vera algengari hjá sjúklingum með rofsár á maga, heldur en hjá þeim sem eru með rofsár á skeifugörn (19). I okkar rannsókn fannst ekki marktækur munur á staðsetningu rofsára hjá sjúklingum sem tóku bólgueyðandi gigtarlyf við greiningu. Nokkuð margar rannsóknir hafa verið gerðar á meðferð með verndandi maga- lyfjum samfara inntöku bólgueyðandi gigtar- lyfja. Bólgueyðandi gigtarlyf hafa eyðileggj- andi áhrif vegna þess að þau draga úr fram- leiðslu prostaglandína í slímhúð magans. Það lyf sem best hefur gefist gegn áhrifum bólgu- eyðandi gigtarlyfja á magaslímhúð er mísópro- stól (afbrigði af prostaglandíni El). Lækkuð hefur verið tíðni skeifugarnarsára með gjöf H9- blokkera. Súkralfate hefur reynst gagnslaust til verndunar maga- og skeifugarnarslímhúðar þegar bólgueyðandi gigtarlyf eru annars vegar (20). Enginn þessara 22 sjúklinga sem tóku bólgueyðandi gigtarlyf var á verndandi með- ferð með magalyfjum. Staðsetning sára í maga og skeifugörn hefur breyst töluvert á síðustu áratugum. Tíðni rof- sára í skeifugörn hefur farið lækkandi (21). Skeifugarnarsár eru algengust hér (tafla I) og er það í samræmi við niðurstöður frá Noregi, Sviss og Skotlandi (2,16,22). Ekki er mark- tækur munur á tíðni rofsára á maga, portverði og portvarðarmunni, í okkar rannsókn. Sam- kvæmt öðrum rannsóknum er röðun rofsára eftir algengi þannig: 1) skeifugörn, 2) port- vörður, 3) portvarðarmunni og 4) magi (2,16). Árið 1990 var kviðsjáraðgerð við rofsári fyrst lýst (23). Fyrsta kviðsjáraðgerðin við rof- sári var reynd hér 1992. Snúið var í opna að- gerð. Ef tafla IV er skoðuð þá hefur kviðsjárað- gerðum farið fjölgandi frá 7,6% af heildar- fjölda aðgerða 1992 í 85% af heildarfjölda að- gerða 1995. Þegar tekin er upp ný aðferð verð- ur í upphafi að gera ráð fyrir þeim tíma sem tekur að læra hana. Með þetta í huga verður að skoða aðgerðartíma og fjölda aðgerða sem breytt er í opna aðgerð. Fyrstu tvö ár kviðsjár- aðgerðanna fékkst ekki mikil þjálfun þar sem aðgerðir voru þrjár á þessum tíma. Árið 1994 kom síðan mikill fjöldi sjúklinga inn með rof- sár og voru alls gerðar 16 kviðsjáraðgerðir það ár. Bæði hefur aðgerðartími styst og færri að- gerðum er breytt í opna aðgerð, þrátt fyrir fáar aðgerðir í byrjun. Væg lenging á meðalaðgerð- artíma varð árið 1995 og hlutfallslega fleiri að- gerðum breytt í opna það ár. Ekki er augljós skýring á þessum afturkipp. Meðalaðgerðartíma kviðsjáraðgerða hefur verið lýst frá 80-135 mínútur (3,8,11,24-26). Aðgerðartími hér er sambærilegur. Hjá nokkr- um einstaklingum voru aðrar aðgerðir gerðar í sömu svæfingu. Þetta veldur því að aðgerðar- tíminn er ekki nákvæmur fyrir viðgerð á rofsári þessara sjúklinga. Engar aðgerðir voru gerðar aukalega við kviðsjáraðgerð. Niðurstöður okkar sýna tilhneigingu til styttri sjúkrahúslegu eftir kviðsjáraðgerðir en þær sem eru að hluta til eða að öllu leyti gerðar opnar. Sjúklingar útskrifast að meðaltali 2,3 dögum fyrr eftir kviðsjáraðgerð. Nokkrir þætt- ir geta skýrt þennan mismun. I fyrsta lagi er með kviðsjáraðgerð komist hjá því að gera stóran skurð í efri hluta kviðar og sársauki eftir aðgerð er minni. Ekki eru allir sammála um að þessi þáttur skipti miklu máli ef lífhimnubólga er orðin mikil þegar að aðgerð kemur, því mikil einkenni frá lífhimnubólgu yfirgnæfi einkenni frá skurðsári hvort sem aðgerð er gerð opin eða með kviðsjá. I öðru lagi er vinnusvæði í kviðsjáraðgerð minna og verkfæri fínlegri. Hnjask á maga og görnum er minna og sjúklingarnir því fljótari að losna við magaslöngu auk þess sem inntaka drykkja og matar hefst fyrr. í þriðja og síðasta lagi er hægt með kviðsjá að framkvæma betri skolun á kviðarholi sem kemur í veg fyrir frekari lífhimnubólgu. Gangur eftir aðgerðir er í samræmi við erlendar niðurstöður. Að mati skurðlækna sem meðhöndlað hafa rofsár á maga og skeifugörn þá hefur sjúklinga- hópurinn breyst. I seinni tíð hefur meira borið á sjúklingum með viðameiri og alvarlegri heilsuvandamál. Nærri helmingur sjúklinganna var með önnur alvarleg heilsuvandamál og kemur það heim og saman við erlendar niður- stöður (2,27,28). Nærtækasta skýringin á þessu er hugsanlega sú staðreynd að fólk lifir lengur með alvarlega sjúkdóma, auk þess sem þessum sjúklingum eru gefnir sterar og bólgueyðandi gigtarlyf til að lina þjáningar og halda einkenn- um niðri. Dánartíðni hjá sjúklingum með rofsár á maga og skeifugörn hefur aukist undanfarin ár (16,28). Ur hinum ýmsu rannsóknum hefur heildardánartíðni þessara sjúklinga verið á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.