Læknablaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 42
426
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Mynd 3a. Meðalfjöldi funda á ári skemmri en hálf-
ur dagur í senn.
náms það er lesturs eða náms með aðstoð marg-
miðlunar (myndbönd, netið) síðastliðinn mán-
uð kom fram að læknar eyddu að meðaltali
11,74 klukkustundum í sjálfsnám á mánuði, en
bilið reyndist vera frá 0 upp í 64 klukkustundir.
Þegar litið er til þátttöku í fundum styttri en
hálfur dagur, ráðstefnum og þingum lengri en
hálfur dagur í senn, og námskeiðum lengri en
hálfur dagur í senn, má sjá að styttri fundir eru
algengastir innanlands og á vegum vinnuveit-
anda meðan lengri ráðstefnur, þing og nám-
skeið eru frekar sótt erlendis og þá fyrst og
fremst á vegum vinnuveitenda (mynd 3a-c).
Heimsóknir lækna á heilbrigðisstofnanir á Is-
landi í fræðsluskyni reyndust að meðaltali vera
0,3 dagar á ári en erlendis þrír dagar á ári.
Mynd 3b. Pátttaka í ráðstefnum og þingum, lengri
en liálfur dagur í senn. Meðalfjöldi funda á ári.
Fjöldi funda
1,4-
1,2-
1-
0,8-
0,6
0,4 |
0,2
0
;li
□
A Islandi
Erlendis
A vegum
vinnu-
veitenda
' A vegum
sérgreinar-
félags
A vegum 1 A vegum
lyfjafyrir- annarra
tækis
Mynd 3c. Þátttaka í námskeiðum, lengri en hálfur
dagur ísenti. Meðalfjöldi námskeiða á ári.