Læknablaðið - 15.11.1999, Side 13
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
865
landi um niðurstöður frumustroka, legháls-
speglana og vefjasýna svo og stigun legháls-
krabbameina sóttar í tölvubanka Leitarstöðvar.
Upplýsingar um stefnu heilbrigðisyfirvalda
varðandi skipulag leitar á Norðurlöndum utan
Islands eru sóttar til viðkomandi krabbameins-
skráa og/eða heilbrigðisyfirvalda. Upplýsingar
um nýgengi leghálskrabbameina eru sóttar til
viðkomandi krabbameinsskráa og upplýsingar
um dánartíðni til tölvubanka Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunarinnar í Kaupmannahöfn og þær töl-
ur fengnar staðfestar af viðkomandi krabba-
meinsskrám.
Eftirtaldar athuganir voru gerðar til að kanna
áhrif leitar á Norðurlöndum á nýgengi (inci-
dence) og dánartíðni (mortality) legháls-
krabbameins (I-V, XI), æskileg aldursmörk
markhópa (II, VI, VII, IX, XII) og bil milli
skoðana (V, VIII, X, XII).
I. Skipulag kembileitar leghálskrabbameins
á Norðurlöndum er kannað svo og meðaltöl
staðlaðs (world-standardized) nýgengis og
dánartíðni sjúkdómsins á fimm ára tímabilum
fyrir árabilið 1956-1995. Reiknuð er lækkun á
tíðnitölum milli þess fimm ára tímabils sem er
með hæsta tíðni og síðasta 10 ára tímabilsins
1986-1995.
II. Breytingar á aldursbundnu (age-
standardized) nýgengi og dánartíðni sjúkdóms-
ins eru kannaðar á íslandi fyrir aldurshópinn
25-69 ára og í 10 ára aldurshópum frá tvítugu
fyrir tímabilin 1966-1970 og 1980-1995.
III. Eftir endurskoðun á vefjagerð kvenna
sem skráðar eru með sjúkdóminn í Krabba-
meinsskrá á Islandi (20) er reiknað út staðlað
nýgengi eftir stigum og vefjagerð fyrir tímabil-
in 1964-1979 og 1980-1995. Reiknað er 95%
öryggisbil (confidence interval) á mismun ný-
gengistalna milli tímabilanna (21). Öll tilfelli
voru endurstiguð eftir stigunarkerfi Alþjóða-
samtaka fæðinga- og kvensjúkdómalækna
(FIGO) (22) og vefjagerð endurflokkuð eftir
flokkunarkerfi Alþj óðaheilbrigðisstofnunar-
innar (23).
IV. Könnuð er breyting á aldursstaðlaðri
tíðni sjúkdómsins á Norðurlöndum í aldurs-
hópnum 20-29 ára á fimm ára tímabilum á
árabilinu 1961-1995.
V. Aldursbundið árlegt nýgengi sjúkdómsins
í Finnland er kannað sérstaklega á tímabilinu
1986-1995.
VI. Arleg tíðni vægra, meðalsterkra og
sterkra forstigsbreytinga á Islandi við fyrstu
heimsókn kvenna á aldrinum 20-49 ára er
könnuð fyrir tímabilið 1966-1995.
VII. Arleg tíðni meðalsterkra og sterkra for-
stigsbreytinga á Islandi við fyrstu heimsókn er
könnuð í fimm ára aldurshópum milli 20-34
ára. Reiknaður er út aðhvarfsstuðull (linear re-
gressions coefficient) fyrstu gráðu aðhvarfslínu
sem felld er að tíðnitölum. Marktækni að-
hvarfsstuðla er reiknuð með F-prófun og sömu-
leiðis mismunur á milli þeirra.
VIII. Meðal 275 kvenna sem komu í legháls-
speglun á Islandi á árinu 1994 vegna afbrigði-
legra frumustroka er könnuð uppsöfnuð
(cumulative) tíðni forstigsbreytinga og ífarandi
vaxtar í vefjasýnum frá þeim tíma er konan
mætti síðast með eðlilegt frumustrok.
IX. Tíðni forstigsbreytinga og ífarandi vaxt-
ar í vefjasýnum á Islandi er könnuð meðal
kvenna 60 ára og eldri, fæddra á tímabilinu
1920-1926. Konurnar eru flokkaðar eftir fjölda
eðlilegra frumustroka sem tekin höfðu verið
fyrir sextugt og konunum fylgt eftir til 1. janúar
1996.
X. Uppsöfnuð tíðni meðalsterkra og sterkra
forstigsbreytinga í frumustrokum á íslandi er
könnuð meðal kvenna frá þeim tíma er þær
mættu með eðlilegt frumustrok á tímabilinu
1985-1989 og til 1. janúar 1996. Konurnar
höfðu ekki sögu um fyrri afbrigðileg strok og
eru rannsakaðar í aldurshópum eftir lágmarks-
fjölda fyrri eðlilegra stroka.
XI. Eftir endurskoðun tilfella sem skráð eru í
Krabbameinsskrá (20) er kannað hlutfall þeirra
tilfella sem greinast á stigi IA og IB occult
vegna afbrigðilegs frumustroks á þriggja ára
tímabilum á árabilinu 1966-1995. Jafnframt er
könnuð þriggja ára mæting til leitar á sömu
tímabilum. Lagðar eru aðhvarfslínur að hlut-
fallstölum og reiknaðir út aðhvarfsstuðlar og
marktækni. Reiknuð er út fylgni milli greining-
ar þessara tilfella og mætingarhlutfalls kvenna
til leitar á sömu tímabilum.
XII. Fyrir tímabilið 1986-1995 er könnuð
aldursdreifing kvenna sem greinast á stigi IA
og IB occult vegna afbrigðilegs frumustroks og
reiknuð út uppsöfnuð tíðni þessara tilfella fyrstu
72 mánuðina eftir síðasta eðlilega frumustrok.
Niðurstöður
Tafla I sýnir að fram til 1985-1988 var skipu-
leg krabbameinsleit umfangsmest á Islandi
bæði hvað varðar markhóp og bil milli skoðana
(25-29 ára á tveggja til þriggja ára fresti), en