Læknablaðið - 15.11.1999, Side 15
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
867
140
120
100
RATE
PER 80
MILLION
60
40
20
0
1961 1966 1971 1976 1981 1986 1991
-65 -70 -75 -80 -85 -90 -95
________________________________YEARS______________________
Fig. 1. Cervical cancer in the Nordic countries. Age-specific
incidence rate in the 20-29 year age group, 1961-1995.
YEAR
Fig. 3. Trends for low-grade and moderate to higli-grade smears
at first visit, 20-49 year age group per 1,000 screened xvomen;
Iceland 1966-1995.'
YEAR
Fig. 2. Cervical cancerin Finland, 1986-1995. Age-specific inci-
dence rates in the 20-29, 30-54, 55-69 and 70-84 age groups.
1995. Þessi gildi héldust nokkuð svipuð allt
þetta tímabil. Bæði nýgengi og dánartíðni voru
hæst á tímabilinu 1966-1970 og frá þeim tíma
hefur nýgengið fallið um 68% og dánartíðnin
um 79% í aldurshópnum 25-69 ára. Á sama
tímabili hafa báðar tíðnitölurnar fallið í öllum
10 ára aldurshópunum nema 20-29 ára.
Tafla III staðfestir að frá 1964-1979 til 1980-
1995 hefur staðlað nýgengi fyrir öll sjúkdóms-
tilfelli á íslandi fallið marktækt (p<0,001) og
einnig fyrir tilfelli á stigi II og hærra (p<0,01).
Nýgengi tilfella á hulinstigi (microinvasive:
stig IA) hefur aukist marktækt (p=0,02) og ný-
gengi tilfella á stigi IB hefur minnkað, en ekki
marktækt (p=0,06). Nýgengi flöguþekjukrabba-
meina (squamous cell carcinomas) hefur lækk-
að marktækt (p>0,001), kirtilkrabbameina (ad-
enocarcinomas) aukist marktækt (p=0,04) og
blandæxla (adenosquamous carcinomas) lækk-
að lítillega (p=0,13).
Á mynd 1 má sjá aldursstaðlað nýgengi leg-
hálskrabbameina í aldurhópnum 20-29 ára á
Fig. 4. Trends for moderate to high-grade smears at first visit in
the 20-24, 25-29, 30-34 age groups per 1,000 screened women.
First-degree regression lines; Iceland 1979-1995.
Norðurlöndunum. I Finnlandi hefur nýgengið í
þessum aldursflokki verið nokkuð stöðugt síð-
ustu fjóra áratugina en aukist síðustu þrjá ára-
tugina annars staðar á Norðurlöndum. Af mynd
2 sést að á tímabilinu 1986-1995 hefur árlegt
aldurstaðlað nýgengi verið nokkuð stöðugt í
Finnlandi í aldurshópnum 20-29 og 55-69 ára
en aukist í aldurshópnum 30-54 ára. í þessum
aldurshópi sem er markhópur Finna hefur ald-
ursstaðlað nýgengi aukist úr um fjórum tilfell-
um á 100.000 konur á árinu 1991 í um níu til-
felli á árinu 1995.
Á mynd 3 sést að á Islandi hefur tíðni frumu-
stroka með vægar forstigsbreytingar við fyrstu
heimsókn í aldurshópnum 20-49 aukist úr um
20 tilfellum á 1.000 skoðaðar konur á árinu
1975 í um 60 tilfelli á árinu 1994. Tíðni meðal-
sterkra til sterkra forstigsbreytinga frá sama
tíma hefur hækkað úr um 10 tilfellum í um 30