Læknablaðið - 15.11.1999, Page 29
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
879
Mynd 3. Viðíal við geðlœkni með hjálp fjarfundabúnaðar (enginn sjúklingur sést á myndinni).
kostnaður verður reyndar hærri). Þannig er jafn-
framt hægt að samnýta búnað betur þegar fjar-
fundabúnaður er kominn inn í tölvuna (mynd 1).
Þróun fjarlækninga á íslandi
Fjarlækningar eru eitt af atriðum í stefnu-
mótun Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
isins og birtist í skýrslunni Stefnumótun í upp-
lýsingamálum innan heilbrigðiskerfisins (9).
Þar er meðal annars fjallað um hvernig fjar-
lækningar geta haft áhrif á hvemig heilbrigðis-
þjónusta er veitt öllum landsmönnum. Bent er á
nokkrar leiðir sem þarf að útfæra betur og jafn-
framt að byggja upp fjarlækningar samhliða
notkun upplýsingatækni í heilbrigðiskerfinu.
Umræða hefur verið um markmið með fjar-
lækningum í íslensku heilbrigðiskerfi og þau
má setja fram á eftirfarandi hátt:
• Auka aðgengi almennings að heilbrigðis-
þjónustu.
• Auka aðgengi almennra lækna að ráðgjöf
sérfræðings.
• Skipuleggja símenntun fyrir heilbrigðis-
starfsfólk.
• Hafa áhrif á sjúkraflutninga (minnka þá ?).
• Fjarlækningar á að þróa þannig að þær verði
hluti af heilbrigðisþjónustu.
• Með rannsóknum og notkun á fjarlækning-
um á að leitast við að skipuleggja samskipti
og þjónustu í heilbrigðiskerfinu.
• Þróa fjarlækningar til að auka þekkingu og
þjónustu, þjóðlega og alþjóðlega.
Ohjákvæmilega fá sérfræðistofnanir mikil-
vægt hlutverk við útfærslu og skipulagningu á
þjónustu með fjarlækningum, fyrir klíníska
þjónustu, fræðslustarfsemi og kennslu. Slíkar
Mynd 4. Fœranlegur búnaður jyrir fjarlœkningar (MobileMed-
ic). I töskunni er tölva, sérhœfður hugbúnaður, höfuðtól, stafrœn
myndavél, hjartalínuriti (EKG), mœlir fyrir súrefnismettun, hita-
mœl ir og farsími/gervihnattasími.
stofnanir verða einnig mótandi á sviði fjar-
lækninga á landinu, bæði fyrir klíník og tækni.
Fjölmörg þróunarverkefni eru hafin hér á
landi. Hér á eftir er hverju verkefni lýst fyrir
sig en síðar er komið að ýmsum hindrunum
sem hafa komið upp og hvaða skipulagsbreyt-
ingar fjarlækningar kalla á.
• Fjargreining röntgenmynda, sendingar
röntgenmynda
Tilraunaverkefni milli röntgendeildar Land-
spítala og Sjúkrahúss Vestmannaeyja 1991-
1995. Reynslan af því verkefni leiddi til áætl-