Læknablaðið - 15.11.1999, Qupperneq 30
880
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
unar um að tengja 16 staði sem taka töluvert
magn af röntgenmyndum, veita umfangsmikla
heilbrigðisþjónustu eða eru þannig landfræði-
lega staðsettir að sérfræðiráðgjöf er nauðsyn-
leg. Nú eru sex staðir sem senda myndir til
Landspítalans og Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri (FSA). Fyrir fjarskipti er notuð ISDN
lína og sérstakur myndskanni fyrir röntgen-
fílmurnar sem er framleiddur á Islandi (10).
• Sending á sónarmynd, mæðraskoðun og
ómskoðun
Mæðraskoðun og ómskoðun á meðgöngu
teljast til grundvallarþjónustu í okkar heil-
brigðiskerfi. Ómtæki (sónartæki) eru til staðar
á mörgum sjúkrahúsum og heilsugæslustöðv-
um á landinu. Ómskoðunin er hins vegar um
margt flókin rannsókn. Gæði rannsóknarinnar
er háð hæfni skoðandans og mikla þekkingu
þarf til að geta túlkað myndirnar. Ómtæki hafa
verið keypt til margra heilbrigðisstofnana á
landinu án þess að þar sé tryggt að nægileg
þekking sé fyrir notkun þeirra. Nú þegar hefur
kvennadeild Landspítalans boðið upp á nám-
skeið í notkun ómtækja fyrir lækna og annað
heilbrigðisstarfsfólk. Með því að tengja slíka
þjálfun og notkun tækjanna með fjarlækning-
um má auka öryggi og gæði rannsóknanna.
I gangi er tilraunaverkefni á milli Heilbrigð-
isstofnunarinnar Seyðisfirði og kvennadeildar
Landspítalans um sendingu á sónarmynd með
fjarfundabúnaði sem tengist ISDN símalínu
(mynd 2). Tilraunin hófst í desember 1998.
• Geðlæknisþjónusta
Geðlæknisþjónusta er eingöngu til staðar á
höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Nokkur
dæmi eru um að boðið hafi verið upp á geð-
læknisþjónusta annars staðar á landinu.
Tilraun um samstarf á sviði geðlækninga á
milli geðdeildar Landspítalans og Heilbrigðis-
stofnunar Patreksfjarðar hófst í ársbyrjun 1999.
í fyrstu var byrjað á viðtölum á staðnum og fór
sérfræðingur vestur. Síðan var fjarfundabúnað-
ur notaður í tengslum við þjónustuna (mynd 3).
Gert er ráð fyrir að verkefnið standi yfir í eitt ár
sem tilraun. Að því loknu mun útkoman verða
metin og niðurstöður notaðar til að ákveða um
framhaldið. Sams konar þjónusta er hafin við
Heilbrigðisstofnunina í Neskaupstað og hafa
einnig verið gerðar tilraunir þar með notkun
fjarfundabúnaðar.
• ATM rannsóknarnet
Landspítalinn er í samvinnu við Landsímann
um að nota öfluga fjarskiptatækni (svonefnda
ATM tækni) fyrir fjarlækningar. Með slíkri tækni
má senda upplýsingar á mun styttri tíma og með
betri gæðum (fyrir fjarfundabúnað) en með
símalínum og ISDN línum. Samstarfsstaðir eru
FSA og Sjúkrahús Suðurlands Selfossi. Prófa á
sendingu sónarmynda (með fjarfundabúnaði) og
röntgenrannsóknir. Verkefnið hófst 1998.
• Fjarkennsla
Síðastliðinn vetur voru fræðslufundir frá
handlækningadeild háskólans í Yale, Connecti-
cut, Bandaríkjunum sendir til Landspítalans
með fjarfundabúnaði. Deildarlæknar, aðstoðar-
læknar og sérfræðingar Landspítalans sóttu
fyrirlestrana sem voru haldnir í fjarfundasal
Landspítalans í Eirbergi.
• Evrópuverkefni á sviði bráðalækninga
Landspítalinn og Sjúkrahús Reykjavíkur
vinna í sameiningu að Evrópuverkefni (tele-
matics áætlun) um að nota fjarlækningar í
bráðalækningum (Worldwide Emergency Tele-
medicine Services, WETS). Sérstök áhersla
verður lögð á það í verkefninu að bæta heil-
brigðisþjónustu við sjófarendur. Miðstöð slíkr-
ar þjónustu er á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, á
slysadeild, en bráðaþjónusta mun einnig verða
frá bráðamóttöku Landspítalans. Samstarfs-
lönd eru Grikkland, Ítalía og Spánn. Verkefnið
hófst árið 1998. Notaður er fjarlækningabún-
aður sem hannaður er hér á landi í samvinnu
við fyrirækið Skyn ehf. (mynd 4). Notkun bún-
aðar og samskipti með sjúklingagögn er nú
samstarfsverkefni nokkurra fyrirtækja og ein-
staklinga (11).
Eftirfarandi verkefni eru í
undirbúningi eða eru hafín
• Bráðaþjónusta á Norður-Atlantshafi
í framhaldi af Evrópuverkefni eru Landspít-
alinn og Sjúkrahús Reykjavíkur saman í verk-
efni sem er styrkt af NORA (Norræna Atlants-
nefndin, stofnun um byggðamál norðvestur
svæðanna: N-Noregs, Færeyja, Islands og Græn-
lands) um að þróa heildstæða þjónustu fyrir
heilbrigðismál sjófarenda á N-Atlantshafi. Sam-
starfsaðilar eru frá Færeyjum og Grænlandi.
Verkefnið hefst árið 1999.