Læknablaðið - 15.11.1999, Page 31
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
881
• Fjarlækningar og skurðaðgerðir
Handlækningadeild Landspítalans og Heil-
brigðisstofnunin í Neskaupstað eru að hefja
tilraun með árangursmat í fjarlækningum með
þjónustu vegna ráðgjafar í speglunum og ráð-
gjöf til sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks
vegna sjúklinga fyrir og eftir aðgerð á Land-
spítalanum. Notaður verður fjarfundabúnaður.
Verkefnið hefst árið 1999.
• Vefjafræði
í undirbúningi er að nota fjarlækningar við
rannsóknir í vefjafræði (fjarmeinafræði) á veg-
um Landspítalans, bæði innanlands og til út-
landa. Fyrstu tilraunir hafa farið fram með því
að senda sjúkdómstilvik til greiningar erlendis.
Einnig er fyrirhugað að gera þjónustuna innan-
húss aðgengilegri og auka samskiptin á milli
Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítalans á
þessu sviði.
• Fjarlækningar vegna líffæraflutninga
I samningi Tryggingastofnunar ríkisins og
Heilbrigðis- og trygginmálaráðuneytis við Rík-
isspítalann í Kaupmannahöfn um líffæraflutn-
inga er gert ráð fyrir fjarlækningum vegna sam-
skipta heilbrigðisstarfsfólks. Gert er ráð fyrir
að gögn um sjúkling verði send út og fjar-
fundur notaður fyrir klíníska umræðu sérfræð-
inga við mat á þörfum sjúklings fyrir líffæra-
skipti. Með gögnum er meðal annars átt við
rannsóknarniðurstöður. Gert er ráð fyrir að
samskiptin hefjist á þessu hausti.
• Fjarlækningar og fræðslustarfsemi
Fyrirhugað er að veita heilbrigðisstarfsfólki
aðgang að fræðslufundum Landspítalans, Sjúkra-
húss Reykjavíkur og Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri. Notaður verður fjarfundabúnaður.
Þannig má veita mun fleirum aðgang að slíkum
fyrirlestrum án þess að vera á staðnum.
• Fjarlækningar og fjarkennsla innanlands
Kennsla aðstoðarlækna á Landspítalanum,
Sjúkrahúsi Reykjavíkur og FSA verður notuð
sem vettvangur tilraunar með fjarkennslu á
vegum sjúkrahúsanna meðal annars til að fag-
fólk þurfi ekki að ferðast á milli þeirra og að
nýta fyrirlestrartíma mun betur.
• Fjarlækningar og fjarkennsla erlendis frá
Gert er ráð fyrir að halda áfram fræðslufund-
um frá háskólanum í Yale og taka einnig við
fræðslufundum frá handlækningadeild háskól-
ans í Iowa.
Ofangreindum verkefnum verða væntanlega
gerð betri skil síðar í Læknablaðinu.
Skipulagning þjónustu og
þjónustuform
Þegar einstökum verkefnum um fjarlækning-
ar lýkur, og þeim mun ljúka, þarf að finna þjón-
ustunni stað í heilbrigðiskerfinu. Fjarlækningar
eru þjónusta og hún kostar (vinna, tæki,
aðstaða) og því þarf einhver að borga og
einhver tekur við greiðslunni eins og á við um
aðra þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Til að
fjarlækingar nái fótfestu þurfa sérgreinasjúkra-
húsin að gera fjarlækningaþjónustu að reglu-
legri starfsemi og skilgreina þarf hvernig deild-
ir sjúkrahúsanna geti sinnt slíkri þjónustu.
Jafnframt þarf að meta hvaða þörf verður fyrir
aukið vinnuframlag á heilsugæslustöðum og
héraðssjúkrahúsum.
Því þarf að setja leiðbeinandi reglur um
notkun fjarlækninga, setja fram vinnureglur í
gæðamálum og koma með hugmyndir um
rekstur fjarlækninga í íslensku heilbrigðiskerfi.
Finna þarf leiðir fyrir eftirfarandi atriði
vegna fjámögnunar fjarlækninga:
• Stofnkostnaður.
• Rekstrarkostnaður.
• Greiðslur til notenda (stofnana eða einstak-
linga).
• Hver greiðir hverjum og hvemig (fjárlög,
greiðslur á milli stofnana, til einstaklinga).
• Sem opinber heilbrigðisþjónusta eða einka-
rekin (þáttur Alþingis, ráðuneytis, TR).
Enn sem komið er má segja að fjarlækningar
á Islandi séu tilaunaverkefni því ekki hefur ver-
ið skilgreint hvernig eigi að finna þjónustunni
stað í daglegum rekstri stofnana. Það hefur
þegar hindrað verkefni í að ná æskilegri út-
breiðslu og er því brátt að koma með lausnir á
ofangreindum atriðum.
Þáttur Heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytis og Tryggingastofnunar ríkisins snýr að
slíkri skipulagningu í samvinnu við heilbrigð-
isstofnanir og starfsfólk þeirra.
I áðumefndi skýrslu, Stefnumótun í upplýs-
ingamálum innan heilbrigðiskeifisins em settar
fram hugmyndir um heilbrigðisnet sem tengi
saman allar heilbrigðisstofnanir á Islandi og
verði notað fyrir samskipti þeirra. Gera má ráð
fyrir að fjarlækningar muni nota slíkt net og auð-
velda þar með uppbygginu þeirra og skipulag.