Læknablaðið - 15.11.1999, Page 37
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
885
Aðalfundur LÍ 1999
Aðalfundur Læknafélags
Islands var haldinn föstu-
daginn 8. og laugardaginn 9.
október. Sérstakir gestir
fundarins voru Anders Milt-
on og Delon Human formað-
ur og framkvæmdastjóri AI-
þjóðafélags lækna sem hér
voru í boði Læknafélags Is-
lands.
Að morgni föstudagsins,
áður en aðalfundur LÍ hófst,
bauð LI til umræðufundar
með fulltrúum Alþjóðafélags
lækna eins og greint er frá
annars staðar í blaðinu.
Guðmundur Björnsson for-
maður LI setti fundinn og
bauð fulltrúa Alþjóðafélags
lækna sérstaklega velkomna,
ávörpuðu þeir fundargesti áð-
ur en gengið var til hefðbund-
inna aðalfundarstarfa. í máli
þeirra kom fram að Alþjóðafé-
lag lækna hefur verið sam-
stíga stjórn Læknafélags ís-
lands í afstöðu til fyrirhugaðs
miðlægs gagnagrunns á heil-
brigðissviði hér á landi. Þeir
vísuðu í því sambandi til yfir-
lýsingar fundar aðalstjórnar
Alþjóðafélags lækna sem
haldinn var í Santiago de
Chile 15.-18. apríl síðastlið-
inn, en þar sagði meðal annars
að „félagið standi heilshugar
að baki þeirri afstöðu Lækna-
félags Islands að lýsa and-
stöðu við lög uin gagnagrunn
á heilbrigðissviði sem Alþingi
íslendinga setti nýlega.“ Enn-
fremur sagði þar að Alþjóða-
félag lækna ítrekaði „varð-
stöðu sína um trúnað við sjúk-
linga; grundvallarreglu um
upplýst samþykki og frelsi til
vísindarannsókna.“ Þeir sögðu
afstöðu til íslensks gagna-
grunns á heilbrigðissviði ekk-
ert einstaka heldur væri af-
staðan hin sama til allra
gagnabanka þar sem varð-
veittar væru heilsufarsupplýs-
ingar um einstaklinga. Þegar
um þátttöku sjúklinga í vís-
indarannsóknum væri að ræða
skipti grundvallarmáli að upp-
lýsinga þar til væri aflað með
upplýstu samþykki viðkom-
andi einstaklinga, þannig að
sjúklingar tækju ákvörðun um
þátttöku. Hin grundvallarregl-
an væri ekki síður mikilvæg
en hún er sú að sjúklingar geti
ávallt, á hvaða tímapunkti sem
er, dregið sig til baka úr
rannsókn og hætt þátttöku.
Hefðbundin aðalfundarstörf
hófust á skýrslu formanns um
starf stjórnar á síðasta
starfsári. Formaður lýsti
afdrifum ályktana síðasta að-
Stjórn LÍ
starfsárið
1999-2000
Sigurbjörn Sveinsson
formaður
Jón Snædal varaformaður
Arnór Víkingsson ritari
Eyþór Björgvinsson
gjaldkeri
Meðstjómendur
Birgir Jóhannsson
fulltrúi FÚL
Katrín Fjeldsted
fulltrúi FÍH
Sigurður Björnsson
fulltrúi SÍL
Helgi H. Sigurðsson
Sigurður Kr. Pétursson
alfundar og hvernig þeim
hefði verið fylgt eftir. Hann
rakti einstaka málaflokka sem
komið höfðu til kasta stjórnar
og verið mistímafrekir. Ekki
kom á óvart að þar bar hæst
gagnagrunnsmálið og öll sú
umræða og umfjöllun sem far-
ið hefur fram á vegum LÍ um
það mál. Við lok skýrslu sinn-
ar kvaðst Guðmundur Björns-
son ekki gefa kost á sér til
framhaldandi setu sem for-
maður LÍ og kæmu þar til
bæði persónulegar og atvinnu-
legar ástæður.
Gjaldkeri lagði því næst
fram ársreikninga, gerði grein
fyrir þeim og kynnti fjárhags-
áætlun.
Að lokinni skýrslu for-
manns og gjaldkera og umræð-
um þar um greindu forsvars-
menn einstakra stofnana og
starfshópa LÍ frá starfi á síð-
asta starfsári. Þar má nefna Líf-
eyrissjóð lækna, Læknablaðið,
Orlofsheimilasjóð lækna,
Fræðslustofnun lækna, nefnd
er annast útgáfu Heilbrigðis-
sögu íslands, fagráð LI og
bygginganefnd Nesstofusafns.
Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra Ingibjörgu
Pálmadóttur hafði verið boðið
til aðalfundar en ekki séð sér
fært að mæta við upphaf fund-
ar. Hún mætti hins vegar til
fundar upp úr klukkan þrjú og
var boðin velkomin af fundar-
stjóra Olafi Þór Ævarssyni
formanni LR sem jafnframt
þakkað ráðherra og ráðuneyti
hennar fyrir gjöf til LÍ, sem er
útskorið fundarpúlt með
merki LÍ. Ráðherra ávarpaði
síðan fundinn og má segja að
það ávarp hafi komið nokkuð