Læknablaðið - 15.11.1999, Page 44
892
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Af ofangreindu er ljóst að
enn sem fyrr eru efa- og and-
stöðuraddir við miðlægum
gagnagrunni á heilbrigðis-
sviði sterkar innan Læknafé-
lags íslands og þær sem hæst
ber, en á ofangreindum um-
ræðufundi komu vissulega
einnig fram önnur sjónarmið,
þar sem lögð var áhersla á ör-
yggi fyrirhugaðrar dulkóðun-
ar og þar með persónuvernd
einstaklingsins. Einnig kom
fram það sjónarmið að fyrir-
hugaður miðlægur gagna-
grunnur væri alls ekkert eins-
dæmi heldur væri fjöldi slíkra
gagnabanka til, til dæmis í
Svíþjóð, Bandaríkjunum, á
Nýja-Sjálandi og víðar.
Þess má geta neðanmáls, að
álit vinnuhóps Alþjóðafélags
lækna um miðlægan gagna-
grunn, sem minnst er á í grein-
inni hér að ofan, hefur nú ver-
ið sent öllum aðildarfélögum
Alþjóðafélags lækna til um-
fjöllunar. Sá hluti er fjallar
sérstaklega um gagnagrunn ís-
lenska heilbrigðisgeirans er
birtur hér í blaðinu. Alit
vinnuhópsins mun birtast í
heild á heimasíðu Lækna-
blaðsins.
-bþ-
Bréf heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
til Læknafélags Islands 8. október 1999
Læknafélag íslands
Guðmundur Björnsson,
formaður
Hlíðasmára 8,
200 Kópavogur
Reykjavík 8. október 1999
Vísað er til bréfs Læknafé-
lags Islands dags. 20. septem-
ber sl. Þar sem fulltrúum heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins er boðið til
fundar með Delon Human,
framkvæmdarstjóra Alþjóða-
samtaka lækna (WMA). Af
þessu tilefni vill ráðuneytið
taka eftirfarandi fram:
Alþjóðasamtök lækna
ræddu lögin um gagnagrunn á
heilbrigðissviði á fundi sínum
í Santiago í Chile í apríl sl.
Það var m.a. gert að frum-
kvæði stjórnar Læknafélags
íslands, sem sendi sérstakt er-
indi til samtakanna. Gagnrýnt
var á þeim tíma að spumingar
þær sem stjórn Læknafélags
Islands lagði fyrir fundinn
hefðu verið til þess fallnar að
kalla eftir tiltekinni fyrirfram
gefinni niðurstöðu. I fréttavið-
tali sem birtist við Guðmund
Björnsson, formann stjómar
Læknafélags íslands sagði
hann m.a. vegna fram kominn-
ar gagnrýni: „Þessar spurn-
ingar sem voru lagðar fyrir
fundinn voru svona vinnu-
plagg og það má vel vera að
þær hafi verið óheppilega orð-
aðar en það er ekki hægt að
blekkja 100 manna fund og
margra mánaða vinnu hjá
svona virðulegum samtök-
um.“ Mun þar vera átt við
WMA.
Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið hafði frum-
kvæði að því að bjóðast til að
senda fulltrúa á fund Alþjóða-
samtaka lækna í Chile til þess
að gefa upplýsingar um
gagnagrunnslögin. I framhaldi
af því barst ráðuneytinu boð
um þátttöku og kom þar fram
að gert væri ráð fyrir þátttöku
í umræðum um gagnagrunns-
málið. Ráðuneytið sendi tvo
fulltrúa á fundinn í því skyni
að skýra og upplýsa um
gagnagrunnslögin og taka þátt
í umræðum. Þess má geta að
þeir fengu engin gögn fyrir
fundinn, þrátt fyrir beiðni um
það og sáu þeir því ekki
spurningar Læknafélagsins
fyrr en daginn fyrir fundinn.
Fulltrúum íslenskra stjórn-
valda var tjáð að þessi fundur
mundi ekki álykta eða komast
að niðurstöðu, hann væri ein-
ungis til kynningar málsins og
upphaf meira samstarfs. Emb-
ættismennirnir tveir fengu síð-
an að flytja stutt ávarp og
svara fyrirspurnum. Að öðru
leyti fengu þeir ekki að taka
þátt í fundinum. Þeir fengu
því hvorki að hlýða á fram-
sögu fulltrúa stjórnar Lækna-
félags íslands né taka þátt í
umræðum um málið eins og
gert hafði verið ráð fyrir. Ekki
var því um að ræða neinar við-
ræður við íslensk stjónvöld á
þessum fundi eða síðar.
A grundvelli þessarar væg-
ast sagt óvönduðu málsmeð-
ferðar ályktuðu Alþjóðasam-
tök lækna síðan á þessum
sama fundi um íslenska
gagnagrunninn og sendu frá
sér fréttatilkynningu. Fregnir
af því bárust hins vegar full-
trúum ráðuneytisins frá ís-
landi. Alyktun þessi hefur síð-
an verið notuð víða til að
ófrægja íslenska lagasetningu
og íslensk stjórnvöld.
I fyrrgreindu bréfi Lækna-
félagsins frá 20. september