Læknablaðið - 15.11.1999, Blaðsíða 47
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
893
Einar Oddsson og alþingismennirnir Bryndís Hlöðversdóttir, Ásta R.
Jóhannesdóttir og Þuríður Backman Jylgjast með umrœðum um
gagnagrunnsmálið á umrœðufundi LÍ.
sagði að Delon Human, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðasam-
taka lækna yrði staddur hér á
landi í tilefni aðalfundar
Læknafélags Islands. Ekkert
kom fram um dagskrá fundar
þess sem félagið bauð fulltrú-
um ráðuneytisins að sækja og
um efni hans sagði aðeins
„þar sem lög um gagnagrunn
á heilbrigðissviði verða rædd,
en eins og kunnugt er þá hafa
Alþjóðasamtök lækna stutt
viðhorf LÍ til laganna." Reynt
var að afla frekari upplýsinga
um fundinn hjá Læknafélagi
Islands og fengust þær upp-
lýsingar að auk fulltrúa heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins væri vísinda-
siðanefndum, tölvunefnd,
landlækni og heilbrigðis- og
trygginganefnd Alþingis boð-
ið á fundinn. Einnig kom fram
að á fundinum yrðu tveir full-
trúar frá WMA. Þeir ætluðu
að kynna sjónarmið sín fyrir
yfirvöldum og síðan yrðu fyr-
irspurnir. Ekki virðist því gert
ráð fyrir að fulltrúar WMA
hlusti á sjónarmið stjórnvalda
eða kynni sér málið frekar.
I umræðunt utan dagskrár á
Alþingi 6. október sl., kom
fram hjá Ögmundi Jónassyni,
talsmanni Vinstri hreyfmgar-
innar grænt framboð, að von
væri á skýrslu eða álitsgerð
frá WMA á „næstu klukku-
stundum“ eins og þingmaður-
inn orðaði það. Þá kom einnig
fram í viðtali við formann
stjórnar Læknafélags Islands í
fréttum Sjónvarpsins sama
kvöld, að fulltrúar WMA ætl-
uðu að „kynna stjórnvöldum á
Islandi niðurstöðu þessarar
nefndar, en það verður fjallað
um niðurstöðu þessarar
nefndar á alþjóðafundi eða
ársfundi Alþjóða læknasam-
takanna í Israel í næstu viku.“
Ekkert af því sem hér er
sagt kom fram þegar heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið leitaði eftir frekari
upplýsingum um fundinn á
vegum Læknafélags íslands.
Islensk stjórnvöld hafa ekki
fengið að kynna sér þá skýrslu
og þær niðurstöður sem full-
trúar WMA ætla að kynna á
fundi LI 8. október. Það er því
Ijóst að ekki er fyrirhugað að
gefa þeim tækifæri til að gera
athugasemdir eða leiðrétta
hugsanlegar rangfærslur held-
ur einungis að hlusta á niður-
stöðu samtakanna.
Þá er bent á að á heimasíðu
WMA segir að forysta sam-
takanna muni í heimsókn
sinni til Islands hafa tækifæri
til að ræða frekar áhyggjur
vegna persónuverndar í ís-
lenska gagnagrunninum við
Læknafélag Islands og íslensk
stjórnvöld. Hér gefa samtökin
í skyn að WMA hafi rætt
gagnagrunnsmálið við íslensk
stjórnvöld. Staðreyndin er
hins vegar sú að þeir hafa
aldrei rætt við íslensk stjórn-
völd um málið og aldrei óskað
eftir upplýsingum frá þeim.
Ráðuneytið harmar þau for-
kastanlegu vinnubrögð sem
Alþjóðasamtök lækna, í sam-
starfi við Læknafélag íslands,
hafa viðhaft í þessu máli. Slík
vinnubrögð hljóta að grafa
undan tiltrú manna á samtök-
unum
Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið þiggur ekki
boð stjómar Læknafélagsins
Islands af ástæðum sem raktar
eru hér að framan. Ráðuneytið
hvetur stjórn Læknafélagisns
til að mælast til þess við full-
trúa Alþjóðasamtaka lækna að
þau dragi til baka ályktun
Chile fundarins og að þau
kynni sér vandlega sjónarmið
beggja málsaðila áður en þeir
birta niðurstöður sínar um
gagnagrunnsmálið. Niður-
stöður sem fengnar eru með
öðmm hætti eru aldrei trú-
verðugar. Ráðuneytið lýsir
undrun sinni á að núverandi
stjórn Læknafélags íslands
skuli beita WMA fyrir vagn
þeirra sem hafa að markmiði
að gera að engu þann vilja Al-
þingis sem fram kemur í lög-
um nr. 139/1998 um gagna-
grunn á heilbrigðissviði.
^ F.h.r.
Davíð A. Gunnarsson
Guðríður Þorsteinsdóttir