Læknablaðið - 15.11.1999, Blaðsíða 58
902
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
huga þau mál um þessar mund-
ir og okkur veitti ekki af að
gera slíkt hið sama því hann
væri ekki trúaður á að framlög
ríkisins til heilbrigðismála
myndu aukast á næstu árum.
Kristmundur Asmundsson
spurði frummælendur um það
hvar málið stæði í samninga-
viðræðum við ríkisvaldið.
Þórir svaraði fyrstur og ítrek-
aði að kjör heilsugæslulækna
heyrðu nú undir Kjaranefnd
sem væri dómstóll sem ekki
væri hægt að semja við. Það
væri hins vegar tilfinning
heilsugæslulækna að nefndar-
menn biðu þess sem gerðist í
samningum ríkisins við sjúkra-
húslækna.
Arnór svaraði fyrir vinnu-
tímanefndina sem hann sagði
eiga að gera tillögu um nýtt
vinnufyrirkomulag. Það hefði
tekið nefndina heilt ár að skil-
greina hvað væri virkur vinnu-
tími lækna og því væri raunar
ekki alveg lokið. Enn væri
deilt um túlkun á frítökurétt-
arákvæðum kjarasamningsins
en nauðsynlegt væri að aðilar
hefðu sama skilning á frítöku-
rettinum svo hægt væri að
meta þörf fyrir vinnuafl. Hann
bætti því við að í raun gætu
læknar skrifað undir sam-
komulag á grundvelli vinnu-
tímatilskipunarinnar strax í
dag en þá væri ólíklegt að sam-
komulagið tæki mið af sér-
stöðu lækna, það myndi frekar
byggjast á því samkomulagi
sem í gildi er á almennum
vinnumarkaði. Afleiðingin
yrði annað hvort minnkandi
þjónusta eða sjálfboðavinna
lækna. Þetta vildu læknar ekki
og þess vegna væri brýnt að
höfða til rrkisvaldsins um að
það þurfi að sinna þessari að-
lögun samningsins.
Bjarni Torfason átti loka-
orðið þegar hann sagði að í
þessu máli dygðu engar ein-
faldar lausnir. Það væri engin
lausn að fjölga læknum um
þriðjung. Sú leið væri bæði
ófær og dygði auk þess ekki
til lausnar á vandanum sem
við væri að etja.
-ÞH
HEIMILD
1. Haffner J, Moesgaard F, Leppániemi
A, Magnússon J, Kvemebo K, Wall-
in G, et al. Nordisk Medicin 1998;
113: 341-5.
Atacand
Hassle, 970003
Töflur, C 09 C A 06 RB
Hver tafla inniheldur Candesartanum INN, cílexetíl 4 mg, 8
mg eða 16 mg. Abendingar: Hár blóðþrýstingur. Skammtar
°g lyfjagjöf: Skömmtun: Venjulegur viðhaldsskammtur
Atacand er 8 mg eða 16 mg einu sinni á dag. Lyfið má taka
með eða án matar og án tillits til aldurs. Hjá sjúkiingum með
alvarlega skerta nýmastarfsemi (þ.e. kreatínín klerans <30
ml/mín.) skal hefja meðferð með 4 mg. Börn: Lyfið er ekki
ætlað börnum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju af
innihaldsefnum lyfsins. Meðganga og brjóstagjöf. Varnað-
arorð og varúðarrcglur: Skyld lyf geta aukið þvagefni í
blóði og kreatínín í sermi hjá sjúklingum með tvíhliða
nýmaslagæðaþrengsli eða þrengsli í slagæð að einu nýra ef
aðeins eitt nýra er til staðar. Þetta getur einnig átt við um
angíótensín II viðtaka antagónista. Hjá sjúklingum með al-
varlega skert blóðrúmmál geta einkenni lágþrýstings komið
fram. Samtímis gjöf á Atacand og kalíumsparandi þvagræsi-
lyfi getur valdið hækkun á kalíumþéttni í sermi. Milliverk-
anir: Engar þekktar. Aukaverkanir: Lágþrýstingur vegna
áhrifa lyfsins. Lyfhrif: Eiginleikar: Candesartan er
angíótensín II viðtaka blokki, sérhæfður fyrir ATl viðtaka,
með sterka bindingu við og hæga losun frá viðtakanum. Það
hefur enga eigin virkni. Blóðþrýstingslækkandi verkun hefst
innan 2 klst., hámarks blóðþrýstingslækkandi verkun næst
innan fjögurra vikna og helst við langtíma meðferð. Blóð-
þrýstingslækkun af völdum lyfsins helst jöfn í 24 klst. og
þess vegna er nægjanlegt að gefa lyflð einu sinni á dag.
Candesartan eykur blóðflæði um ným og viðheldur eða eyk-
ur gaukulsíunarhraða á meðan viðnám nýmaæða og síunar-
hlutfall minnkar. Atacand hefur engar óæskilegar verkanir á
blóðsykur eða blóðfitu.
Pakkningar og verð:
Töflur 4 mg: 28 stk. 2853 kr.; 98 stk. 7966 kr.; 1 tafla x 98
stk. 6858 kr. Töflur 8 mg: 28 stk. 3172 kr.; 98 stk. 8987 kr.;
1 tafla x 98 stk. 7837 kr. Töfiur 16 mg: 28 stk. 3810 kr.; 98
stk. 10980 kr.; 1 tafla x 98 stk. 9797 kr. Greiðsluþátttaka:
B
Sjá ítarlegri upplýsingar um lyfið í texta Sérlyfjaskrár 1999
Umboð á Islandi: