Læknablaðið - 15.11.1999, Blaðsíða 63
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
907
Heilbrigðistækni í örum vexti
Hver verður hlutur lækna í tækniþróun
heilbrigðiskerfísins?
- Rætt við Helga Kristbjarnarson forstjóra Flögu ehf.
Helgi Kristbjarnarson heldur á Emblu sem er helsta framleiðsluvara
Flögu ehf
Heilbrigðiskerfið og störf
þeirra sem þar vinna hafa
ekki farið varhluta af þeirri
miklu tækniþróun sem átt
hefur sér stað á undanförn-
um árum. Eins og fram
kemur á öðrum stað í blað-
inu hefur tækniþróunin haft
veruleg áhrif á læknisstarfið
og fyrirsjáanlegt að þær
breytingar munu halda
áfram. Þess eru líka dæmi
að læknar hafi hagnýtt sér
þekkingu sína til þess að
stofna fyrirtæki á sviði heil-
brigðistækni - og gert það
gott.
Nýlega var lögð fram úttekt
vinnuhóps á þróun heilbrigð-
istækni hér á landi. Þar kemur
fram að rannsóknir, þróun og
framleiðsla á sviði heilbrigð-
istækni velti fimm milljörðum
króna árið 1998. Þar er átt við
lyfjaframleiðslu, stoðtækja-
gerð, framleiðslu lækninga-
tækja, hugbúnaðargerð, heilsu-
vörur og erfðatækni.
Niðurstaða úttektarinnar er
sú að á þessu sviði geti fram-
tíðin verið björt sé rétt að mál-
um staðið. Hópurinn bendir á
að íslenska heilbrigðis- og
tryggingakerfið velti um 70
milljörðum króna á þessu ári.
„I flestum nágrannalöndum
okkar hafa verið sköpuð góð
starfsskilyrði fyrir heilbrigð-
istækniiðnaðinn og þessi iðn-
aður veltir að minnsta kosti 'A
af heildarútgjöldum til heil-
brigðisþjónustunnar. Til þess
að standa jafnfætis þessum
þjóðum ætti veltan í heilbrigð-
istækni hér á landi að vera yfir
20 milljarðar króna á ári,“
segir í úttektinni.
Vinnuhópurinn var skipað-
ur af mönnum úr heilbrigðis-
tæknigeiranum og fulltrúum
Rannsóknarráðs Islands, Heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins og Landspítal-
ans. Hann benti á tiltekin for-
gangsverkefni sem eru þau að
koma á fót samstarfsvettvangi
heilbrigðiskerfis og iðnaðar,
stöðlun upplýsingakerfa, um-
bætur í skipulagi á þróunar-
samstarfi fyrirtækja og stofn-
ana á sviði heilbrigðistækni
og umbætur í mennta- og
fræðslumálum. Ráðuneyti
iðnaðar og heilbrigðismála,
Samtök iðnaðarins, Rannís og
fyrirtæki á sviði heilbrigðis-
tækni hafa í framhaldi af starfi
hópsins ákveðið að hafa með
sér samstarf um að koma á fót
samstarfsvettvangi um heil-
brigðistækni.
Þess er því að vænta að all-
nokkur framþróun muni eiga
sér stað á sviði heilbrigðis-
tækni á næstu árum. Nú þegar
hafa nokkrir læknar lagt það
fyrir sig að starfa innan þessa
geira og ef að líkum lætur
mun þeim fjölga í framtíðinni.
Það er í sjálfu sér afar eðlilegt
því grunnurinn að þeirri
tækniþróun sem þarna er um
að ræða er þekking læknisins.